líkjöra. Hollenska matargerðin er " />

Heitt í Hollandi

Heitt í Hollandi

Holland er þekkt fyrir margt og má þar nefna blóm, bjór og osta eins og Gouda og Edam eða þá genever og líkjöra. Hollenska matargerðin er hins vegar ekki þekkt út fyrir landsteinana og það ekki að ástæðulausu. Hún er alla jafna einföld og samanstendur mikið af súpum og heimilisréttum á borð við kjötbita með kartöflum og soðnu grænmeti. Eða þá Hutspot og Stamppot, sem eru eins konar pottréttir þar sem stappaðar kartöflur eru uppistaðan, í fyrra tilvikinu ásamt gulrótum en í því seinna með káli og rósakáli.

Það má færa rök fyrir því að Kalvin hafi verið meiri áhrifavaldur í hollenskri matargerð en til dæmis Escoffier.

Rétt eins og í Belgíu og Norður-Frakklandi er majonnes vinsælt með flestu og sömuleiðis sinnep.

Það vakti nokkra athygli fyrr á þessu ári er ástralskir hermenn í Afganistan gerðu hálfgerða uppreisn vegna þess að þeim var gert að borða hollenskan mat. Málið kom meira að segja til kasta ástralska þingsins og varð niðurstaðan sú að tíu ástralskir kokkar voru sendir til Afganistan til að róa hermennina.

Það er þó ekki þar með sagt að ekki sé hægt að finna góða veitingastaði í Hollandi. Staðir þar sem boðið er upp á framandi matargerð eru til dæmis algengir og bera vitni annars vegar fyrrum nýlenduveldi Hollendinga (sem réðu meðal annars yfir Indónesíu um tíma) og hins vegar þeim mikla fjölda innflytjenda, ekki síst múslima, sem flust hafa til Hollands á síðustu áratugum.

Nýlendurnar og fyrsta stórfyrirtæki heimsins, Austur-Indíafjelagið, hafa reyndar haft margvísleg áhrif á hollenska framleiðslu, líkt og lesa má um hér.

Í Amsterdam, sem er líklega vinsælasti áningarstaður Íslendinga í Hollandi, er að finna marga ágæta veitingastaði, jafnt klassíska sem nútímalega þar sem ungir kokkar eru á harðahlaupum frá hinum kalvínísku hefðum.

Vilji menn kynnast vandaðri og ný-klassískri hollenskri matargerð með örlitlu frönsku ívafi er D'Vijff Vlieghen eða Flugurnar fimm við götuna Spuitstraat í gamla miðbænum mjög góður kostur. Gengið er inn úr húsasundi í gamla, fallega byggingu. Staðurinn sjálfur teygir sig raunar yfir fimm hús við síkin og hefur hver salur sitt þema, sumir með Rembrandt-myndum. Staðurinn hefur yfir sér aldagamalt yfirbragð en er raunar ekki eldri en 1939.

Matreiðslumaðurinn René Kramer er einn af helstu forsvarsmönnum ný-hollenska eldhússins þar sem sígildir hollenskir réttir og hráefni eru notuð á nútímalegan hátt, matargerðin raunar ef eitthvað er frekar frönsk en hollensk. Við reyndum m.a. annars andarpaté, héra og útgáfu af hinum sígilda eftirrétt Jan in de Zak, sem er hollenskur rúsínubúðingur. Allt stóð þetta ágætlega undir væntingum, staðurinn sjálfur afskaplega fallegur, vínlistinn mjög góður og þjónustan ágæt.

Borgin Rotterdam er um flest andstaða Amsterdam. Nútímaleg borg og miðstöð hollenska viðskiptalífsins, þökk sé einni stærstu höfn í heimi. Þótt stórfenglegar byggingar og mannvirki á borð við Erasmus-brúna gefi Rotterdam nútímalegt yfirbragð má þar enn komast í andrúmsloft liðinna tíma.

Hotel New York sem opnaði 1993 er til húsa í hinum gömlu höfuðstöðvum skipafélagsins Holland Amerika Lijn sem hélt uppi farþegasiglingum á milli Rotterdam og New York. Þótt hótelið sé ekki gamalt fangar það andrúmsloft farþegasiglinga síðustu aldar þegar ferðir á milli landa voru umvafnar mun meiri rómantík en nú er raunin.

Veitingastaður hótelsins er stórt og mikið brasserie sem iðar af lífi. Þar er hægt að gæða sér á sjávarréttum af ýmsu tagi, skelfiskur í fjölmörgum útgáfur er ráðandi á matseðlinum, þótt auðvitað sé hægt að fá kjötrétti líka, og verðlagið er bara alveg þolanlegt, jafnvel fyrir íslenska krónueigendur.

Það virðist raunar sem andrúmsloft fyrri hluta síðustu aldar sé í mikilli tísku í Hollandi þessa dagana. Heitasti barinn í Amsterdam heitir Door 74 og er þemabar í anda bannáranna í Bandaríkjunum. Þetta er ekki bar heldur "speakeasy" þar sem engin skilti eða merkingar gefa til kynna hvað sé að finna á bak við hurðina. Þegar gengið er fram hjá mætti helst halda að húsið væri tómt og í niðurníðslu. Þegar inn er komið birtist hins vegar nýr heimur þar sem hipp og kúl Amsterdam-búar skeggræða yfir klassískum kokkteilum.

Einungis 42 gestum er hleypt inn í einu og er mælt með því að menn láti vita af sér fyrirfram með því að hringja eða senda textaskilaboð á +31 (0)6 3404 5122 og er þá látið vita til baka hvort hægt sé að taka við fleiri gestum.

Í Rotterdam er það hins vegar Level sem er heitasti barinn, afskaplega svalur og nútímalegur kokkteilbar þar sem hægt er að snæða smárétti auk þess að velja úr einhverjum besta kokkteillista Hollands.

Sjá einnig vinotek.is



Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras
18.12. Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Vinsæll vínkjallari

Vinsæll vínkjallari
17.10. Það er alltaf gaman fyrir vínáhugamenn að skoða góða vínkjallara og ekkert veitingahús á Íslandi státar af eins fjölbreyttum og góðum vínkjallara á Hótel Holt. Þar er að finna mörg af bestu og þekktustu vínum heims, ekki síst hinum frönsku. Fyrir nokkru byrjaði Holtið að opna vínkjallarann fyrir hópa sem þess óska og hefur það notið sívaxandi vinsælda að byrja kvöldið á fordrykk í vínkjallaranum og þá jafnvel algengt að gestir velji sér þar vínið til að hafa síðar með kvöldverðinum. Meira »

Kokteilar á Cafe París

Kokteilar á Cafe París
6.10. Við fengum Orra Pál Vilhjálmsson barþjón á Cafe París til að setja saman nokkra drykki fyrir okkur. Hann notar mikið sænska drykkinn Xanté sem hefur notið mikilla vinsælda á börum í Evrópu en þessi líkjör er blanda úr frönsku koníaki og belgískum eplum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar