London heillar

London heillar

Það er að því er virðist endalaust úrval af veitingastöðum í London. Sumir koma og fara. Aðrir eru alltaf jafnvinsælir og sumir meira að segja alltaf jafngóðir.

Hótelið St. Martins Lane við samnefnda götu er í miðju leikhúshverfinu í Covent Garden, ofursvalt hótel hannað af Ian Schrager. Hann hafði getið sér gott orð sem hönnuður lúxushótela í Bandaríkjunum og St. Martins Lane var fyrsta hótelið í Evrópu sem hann hannaði. Hönnuninn einkennist af hinum stílhreina mínímalisma tíunda áratug síðustu aldar, við Íslendingar myndum líklega kalla þann stíl "alveg rosalega 2007". Sú lýsing á raunar einnig við um veitingastaðinn Asia de Cuba sem er að finna inni á hótelinu. Ofursvalur staður þar sem menn koma til að sýna sig og sjá aðra, ekki síður en til að borða.

Staði með sama nafni er nú einnig að finna víðar, m.a. í New York, og eins og nafnið gefur til kynna er matargerðin blanda af aðferðum og hráefnum frá Asíu og Suður-Ameríku og Karíbahafi.

Staðurinn iðar af lífi, tónlistin er fremur há og maturinn yfirleitt virkilega góður. Skammtarnir eru risavaxnir og það er því tilvalið fyrir hópa að skipta réttum á milli sín og smakka af sem flestum diskum. Fyrir fjóra er yfirdrifið nóg að panta þrjá forrétti og þrjá aðalrétti. Réttur á mann þýðir að leifa verður ansi miklu.

Þarna má t.d. fá önd "Ropa Vieja" en þar er þessum klassíska spænsk/kúbanska rétti blandað saman við kínversku Peking-öndina og Hoi-Sin-sósu. Eða þá "Mu Shu" rækjur með ljúffengum kummin-pönukökum og chili-miso-sósu. Af aðalréttunum var það ekki síst kúbanskur BBQ-kjúklingur sem heillaði með mildum kókoshnetuhrísgrjónum og avókado-salsa.

Vínlistinn er góður og kokkteilarnir frábærir. Þjónustan virkar á köflum kaótísk en allt skilar sér hratt og vel. Asia de Cuba er ekki ódýr, en hann verður minna dýr eftir því sem fleiri eru og geta skipt á milli sín réttum. Gerið ráð fyrir 15-20 þúsund á mann fyrir kvöldverð með víni.

Wild Honey í Mayfair (12 St. George Street), steinsnar frá Oxford Circus, er um flest algjör andstaða Asia de Cuba. Nýfranskur og evrópskur í fáguðum veitingasalum með dökkum eikarpanel á veggjum. Japönsk áhrif í hönnun létta hins vegar upp staðinn.

Staðurinn er rekinn af sömu aðilum og halda úti veitingastaðnum Arbutus og líkt og sá staður hefur Wild Honey nýlega áskotnast Michelin-stjarna.

Þarna er ekki ys og þys líkt og á Asia de Cuba heldur rólegt og lágstemmt andrúmsloft.Það er raunar einkennandi fyrir matargerðina líka. Hún er fáguð, mild og dregur fram bragð einstakra hráefna með frábærum hætti. Rófusalat var hreinasta unun og íslenskur þorskur (sérstaklega tekið fram á matseðli hvaðan hann kæmi) var létteldaður í mildri skelfiskssósu. Skoskt nautakjöt var hægeldað, nánast í mauk, þannig að það hefði mátt borða með skeið. Með því fullkomin kartöflumús og bragðmikil soðsósa. Ostaúrvalið er hreinlega frábær.

Vínlistinn á Wild Honey er lítill en mjög vel valinn og tiltölulega ódýr miðað við London. Ekki spillir heldur fyrir að öll vín eru fáanleg í 25 cl karöflum. Þjónustan fáguð og þægileg. Verðlagið virkilega hagstætt, ekki síst fyrir Michelin-stjörnu stað. Hádegisverður er á 25 pund fyrir þrjá valfrjálsa rétti af seðli.

Fyrir þá sem una indverskri matargerð er enginn skortur á góðum stöðum. Líklega er hvergi í heiminum hægt að finna eins marga hágæða indverska matsölustaði og í London. Einn þeirra sem hefur vekið hvað mest umtal er Amaya í Knigthsbridge (Alkin Arcade, 15 Motcomb Street) enda einn örfárra indverska staða sem hefur öðlast hina eftirsóttu Michelin-stjörnu. Staðurinn er nútímalegur í allri hönnun og opið eldhúsið setur sterkan svip sinn á hann. Þjónustan er sæmileg og maturinn góður -  hins vegar ekki eins góður og á Austur-Indía.

 

 

Sjá einnig vinotek.is



Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras
18.12. Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Vinsæll vínkjallari

Vinsæll vínkjallari
17.10. Það er alltaf gaman fyrir vínáhugamenn að skoða góða vínkjallara og ekkert veitingahús á Íslandi státar af eins fjölbreyttum og góðum vínkjallara á Hótel Holt. Þar er að finna mörg af bestu og þekktustu vínum heims, ekki síst hinum frönsku. Fyrir nokkru byrjaði Holtið að opna vínkjallarann fyrir hópa sem þess óska og hefur það notið sívaxandi vinsælda að byrja kvöldið á fordrykk í vínkjallaranum og þá jafnvel algengt að gestir velji sér þar vínið til að hafa síðar með kvöldverðinum. Meira »

Kokteilar á Cafe París

Kokteilar á Cafe París
6.10. Við fengum Orra Pál Vilhjálmsson barþjón á Cafe París til að setja saman nokkra drykki fyrir okkur. Hann notar mikið sænska drykkinn Xanté sem hefur notið mikilla vinsælda á börum í Evrópu en þessi líkjör er blanda úr frönsku koníaki og belgískum eplum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar