Síldarævintýri að hætti Baldurs

Síldarævintýri að hætti Baldurs

Það er ekkert danskara en síld og snafs á aðventunni. Líkt og raunin er um marga aðra góða danska siði þá skipa dönsku síldarhefðirnar ríkan sess í hugum margra Íslendinga. Baldur Sæmundsson, sem lengi var veitingastjóri á Hótel Sögu og hefur undanfarin ár verið áfangastjóri í Hótel- og matvælaskólanum í MK, er einn þeirra sem tekur dönsku hefðirnar "alla leið" og hefur áratugum saman haldið miklar síldarveislur.

Baldur segir að hann hafi fyrst byrjað að sökkva sér ofan í síldina þegar hann starfaði á Hótel Sögu en á síðari árum hafi síldarævintýrin verið meira til heimabrúks. "Þetta er auðvitað bara eins konar della fyrir þessari dönsku stemmningu og dönsku hefðum. Eg hef sankað að mér margvíslegum uppskriftum í gegnum árin, flestar eru þær gamlar danskar uppskriftir sem ég hef fært í stílinn og lagað að íslenskum smekk."

Gammeldansk-síldin hans Baldurs er fræg en hana fá nánustu ættingjar og vinir árlega í jólagjöf. "En fólk verður hins vegar að skila bökkunum svo að maður getur notað þá aftur á næsta ári," segir Baldur.

Yfirleitt notar hann maríneraða síld eða kryddsíld í réttina þótt stundum hafi hann gert allt frá grunni með ferskri síld. "Kryddsíldin sem maður fær er það góð að ég fer yfirleitt styttri leiðina. Hitt er auðvitað aðeins meira mál því að ef maður notar ferska síld þá þarf maður að byrja á því að leggja niður."

Síðari hluti desember er síldartíminn hjá Baldri og þá er nærfjölskyldunni boðið í miklar veislur að danskri hefð. "Mér finnst mjög heillandi hvernig Danir gera þetta þar sem fjölskyldan kemur saman, sest niður og ræðir síðan heima og geima yfir síldinni á aðventunni. Ég hef upplifað þetta nokkrum sinnum í Danmörku og þetta er alveg einstakt. Það má segja að Danir séu svolítið líkir Frökkum að þessu leyti, það er sest niður klukkan ellefu og svo bara sjá menn til hvernig dagurinn þróast. Það eru engin önnur plön ef borðhaldið skyldi dragast á langinn."

Baldur segir snafsinn auðvitað vera ómissandi þátt í þessu öllu saman og hann er einn margra Íslendinga sem iðulega bíður spenntur eftir jólaákavítinu frá Álaborg. "Ég veit eiginlega ekki hvernig þetta verður í ár fyrst að það verður ekkert jólaákavíti frá árinu 2010. Alla jafna fæ ég mér þrjár flöskur, það fara tvær á aðventunni og svo ein á þorranum. Nú hefur mér einungis tekist að verða mér úti um tvær frá eldri árgöngum," segir Baldur og er greinilega áhyggjufullur.

Þegar hann er spurður um góð ráð til þeirra sem eru að byrja að útbúa síld segir hann að menn verði að muna eftir því að þerra kryddsíldina áður en hún er notuð, annað hvort á hreinu stykki eða eldhúspappír. Síðan þurfi bara að útbúa síldarlög og svo bara að prufa sig áfram með því að bæta hinu og þessu út í og sjá hvað komi út úr því.

Uppskriftina að síldarleginum má finna með því að smella hér:

Vatn, edik og sykur látið í pott og suðan látin koma upp. Þá er öllu öðru blandað saman við og látið sjóða í 20 mínútur.

Að því búnu er ekkert því til fyrirstöðu að byrja á því að útbúa síldarrétti á borð við Gammeldansk-síld, síld með perlulauk og ákavíti, síld með eggi, kavíar og silungahrognum, síld í dillrjóma, sérrísíld á eggjabátum og sinnepssíld.

Gamall félagi Baldurs á Sögu, Trausti Víglundsson, sem hefur séð um veitingar á Hótel Loftleiðum undanfarin ár, hjálpaði okkur við að setja síldarréttina saman.

Sjá einnig vinotek.is



Litskrúðugir vordrykkir

Litskrúðugir vordrykkir
4.4. Það er vor í lofti og af því tilefni fengum við Aðalstein Jóhannesson til að setja saman nokkra sumarlega drykki í öllum regnbogans litum en hann er menntaður sem þjónn og vínþjónn og hefur komið víða við bæði hér heima og í Noregi. Meira »

Drykkir Jóa í Tapashúsinu

Drykkir Jóa í Tapashúsinu
26.2. Tapashúsið er einn af nýjustu veitingastöðunum í Reykjavík og býður upp á suðræna stemmningu. Jóhann Gunnar Baldvinsson setti saman nokkra spennandi drykki fyrir okkur. Bols Cheesecake er drykkur þar sem jógúrtlíkjör ásamt jarðarberjalíkjör mynda samsetningu sem ótrúlegt nokk minna skemmtilega á góða ostaköku. Svipuð hráefni eru notuð í Bols Raspberry Delight en útkoman þó allt önnur, svolítil smoothie-tilfinning yfir drykknum. Jógúrtlíkjörinn kemur einnig við sögu í Apple Cream Delight þar sem limesafi og eplalíkjör gefa góðan ferskleika. Meira »

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras
18.12. Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar