Matarboðið endaði með matreiðslubók

Matarboðið endaði með matreiðslubók

Matarboð geta verið afdrikarík. Þannig var það að minnsta kosti með matarboð sem María Björk Sverrisdóttir hélt í sumar. Það endaði með því að nokkrum mánuðum síðar var komin út matreiðslubók með uppskriftum 40 þjóðþekktra Íslendinga.

Bókin heitir Uppáhaldsrétturinn minn og kom út fyrir nokkrum dögum. Í henni er að finna uppskriftir margra þekktra Íslendinga, söngvara, fjölmiðlafólks, leikara og veitingamanna. Má þar nefna Diddú, Ladda, Egil Ólafsson, Egil "Gillz" Einarsson, Eyvöru Pálsdóttur, Chandriku Gunnarsdóttur, Siggu Beinteins og Björgvin Halldórsson.

María Björk, sem auk þess að vera tónlistarmaður er mikill áhugamaður um mat og matargerð. Hún bjó lengi í New York og síðastliðinn vetur fór hún þangað í ferð með vinafólki, meðal annars Friðgeiri Inga Eiríkssyni, yfirmatreiðslumeistara á Hótel Holti, þar sem mörg af bestu veitingahúsum borgarinnar voru heimsótt. Það var svo eitt síðdegi í júlímánuði að Friðgeir Ingi hringir í Maríu. Hann var í fríi, sagðist vera svangur og spyr hvort að hún geti ekki boðið í mat.

María hljóp upp til handa og fóta og var í fyrstu í stökustu vandræðum með hvernig hún ætti eiginlega að elda eitthvað sem væri nógu gott fyrir Friðgeir Inga. Að lokum varð humar og nautasteik fyrir valinu og að lokinni máltíð var ljóst að eldamennska Maríu hafði slegið í gegn. "Ég var mjög upp með mér að hann skyldi vera svona hrifinn af mínum mat," segir María. Og til að kóróna allt þá hringir Friðgeir daginn eftir til að þakka fyrir sig og segir að eldhúsið hjá Maríu sé nú orðið uppáhaldsveitingahúsið hans.

Viku seinna hringir María og segist vera komin með hugmynd. Væri ekki sniðugt að fá þjóðþekkta Íslendinga til að koma í eldhúsið sem gestakokka? Nokkrum dögum síðar hringir hún aftur og þá hefur hugmyndin þróast enn frekar: "Af hverju gefum við ekki út bók með uppskriftum þekktra Íslendinga?"

Það var strax ákveðið að hrinda hugmyndinni í framkvæmd og nú tæpum þremur mánuðum seinna er bókin komin út. "Það tóku þessu allir mjög vel," segir María. "Auðvitað var einn og einn sem skoraðist undan, til dæmis ónefndur útvarpsmaður sem sagði að ég vissi ekki hvað ég væri að kalla yfir mig. Það eina sem að hann kynni að matreiða væri beigla með sultu. Annar tilvonandi kandídat sagðist ekkert geta eldað flóknara en pylsu með tómat, sinnepi og steiktum lauk. Þetta var auðvitað mikil vinna að koma þessu saman enda um fólk sem hefur nóg á sinni könnu að ræða, en að endingu small þetta allt saman."

Að lokum var búið að fullskipa liðið og eldaði Friðgeir Ingi og útfærði allar uppskriftirnar fyrir bókina. Hann segir margar uppskriftirnar hafa slegið algjörlega í gegn þegar verið var að útfæra þær og hver einasti biti verið kláraður.

Friðgeir Ingi segir að rykinu hafi jafnframt verið dustað af upphaflegu hugmyndinni um að fá gestakokk og standi til að reyna að fá 3-4 af þeim sem lögðu til uppskriftir að taka þátt í því. Raunar hafi það þegar verið ámálgað við einn uppskriftarhöfund.

Þau María og Friðgeir Ingi segja "pottþétt" að framhald verði á og eru þau þegar farin að leggja drög að næstu bók.

Sjá einnig vinotek.is



Litskrúðugir vordrykkir

Litskrúðugir vordrykkir
4.4. Það er vor í lofti og af því tilefni fengum við Aðalstein Jóhannesson til að setja saman nokkra sumarlega drykki í öllum regnbogans litum en hann er menntaður sem þjónn og vínþjónn og hefur komið víða við bæði hér heima og í Noregi. Meira »

Drykkir Jóa í Tapashúsinu

Drykkir Jóa í Tapashúsinu
26.2. Tapashúsið er einn af nýjustu veitingastöðunum í Reykjavík og býður upp á suðræna stemmningu. Jóhann Gunnar Baldvinsson setti saman nokkra spennandi drykki fyrir okkur. Bols Cheesecake er drykkur þar sem jógúrtlíkjör ásamt jarðarberjalíkjör mynda samsetningu sem ótrúlegt nokk minna skemmtilega á góða ostaköku. Svipuð hráefni eru notuð í Bols Raspberry Delight en útkoman þó allt önnur, svolítil smoothie-tilfinning yfir drykknum. Jógúrtlíkjörinn kemur einnig við sögu í Apple Cream Delight þar sem limesafi og eplalíkjör gefa góðan ferskleika. Meira »

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans

Paleo - steinaldarfæði hellisbúans
10.1. Það er fastur liður um áramót að menn strengi fögur fyrirheit um framtíðina og oftar en ekki tengjast þau hollu mataræði og aukinni hreyfingu. Ekkert nema gott um það að segja. Meira »

Freyðandi áramót

Freyðandi áramót
29.12. Árið 2011 er að renna í aldanna skeið og eflaust munu margir skjóta ekki bara flugeldum heldur einnig kamapvínstöppum á loft af því tilefni. Meira »

Jólaákavíti í þrjátíu ár

Jólaákavíti í þrjátíu ár
21.12. Þegar fer að líða að jólum bíða Danir spenntir eftir því að jólaákavítið frá Aalborg komi á markaðinn en þar í landi er rík hefð fyrir því að bera fram ískaldan snafs með julefrokost-borðinu. Danir drekka hvorki meira né minna en hálfa milljón lítra af snafsi í desember, það eru ansi mörg staup á hvern Dana. Meira »

Púrtvín og ostar

Púrtvín og ostar
19.12. Það tengja margir osta og rauðvín ósjálfrátt saman. Staðreyndin er hins vegar sú að oft henta önnur vín betur með ostum en rauðvín. Í mörgum tilvikum eru hvítvín besti kosturinn og púrtvín geta sömuleiðis verið frábær kostur með góðum ostum. Meira »

Frönsk jól - foie gras

Frönsk jól - foie gras
18.12. Frakkar borða vissulega foie gras allt árið um kring en á jólunum er hún nánast ómissandi á veisluborðinu. Foie Gras er lifur úr gæs eða önd sem í flestum tilvikum er seld niðursoðin þótt í Frakklandi megi einnig fá hana ferska eða frosna. Meira »

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag

Jólamatarmarkaður Búrsins á laugardag
7.12. Einstakur jólamatarmarkaður verður haldinn laugardaginn 10. desember kl 12-16 fyrir utan verslunina Búrið í Nóatúni 17. Þar verður komið upp risastóru tjaldi þar sem á annan tug framleiðenda og bænda munu kynna afurðir sínar bjóða til sölu. Öllum gestum á jólamatarmarkaðinn verður að sjálfsögðu boðið upp á sjóðandi heitt súkkulaði með rjóma. Meira »

Veisludrykkir Valtýs

Veisludrykkir Valtýs
3.12. Valtýr Bergman á Fiskmarkaðnum er einn reynslumesti barþjónn landsins og hefur oft verið sigursæll í kokteilakeppnum. Við fengum hann til að setja saman nokkra góða veisludrykki fyrir okkur. Meira »

Leyndarmál villta kokksins

Leyndarmál villta kokksins
29.11. Íslenska villibráðin er stórfenglegt hráefni en það vefst fyrir mörgum hvernig eigi að fara með það. Í nýrri bók Úlfars Finnbjörnssonar matreiðslumeistara sem ber heitið Stóra bókin um villibráð er hægt að finna upplýsingar um nær allt er snýr að villibráð. Hvernig eigi að verka hana og elda hana. Mikill fengur er af þessu glæsilega riti en segja má að Úlfar hafi helgað stóran hluta af starfsævi sinni villibráðinni. Meira »

Kalkúnahátíðin mikla

Kalkúnahátíðin mikla
26.11. Þakkargjörðarhátíðin eða Thanksgiving er einn helsti hátíðisdagur Norður-Ameríku og skipar þar svipaðan sess og aðfangadagur hjá okkur. Þetta er helgin sem fjölskyldur sameinast þó svo að fjölskyldumeðlimirnir búi í öðrum ríkjum. Meira »

Trivento-helgi á Argentínu

Trivento-helgi á Argentínu
25.10. Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember.  Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar