Trivento-helgi á Argentínu
Francisco Bragoni, sem er sérstakur “vínsendiherra” argentínska vínhússins Trivento verður hér á landi dagana 3. -6. nóvember. Af því tilefni verða m.a. Trivento-dagar á veitingahúsinu Argentínu.
Einnig mun Vínskólinn halda svokallaðan Master Class 3. nóvember þar sem áherslan verður á argentínsk vín og vín frá Trivento.
Bragoni er menntaður vínþjónn og lauk prófi sem slíkur frá Instituto Arraynes í Mendoza. Hann hefur unnið um árabil í vín- og veitingageiranum. Undanfarin ár hefur hann starfað við að ferðast um heiminn og kynna argentínsk vín og þá ekki síst að halda vínkvöldverði þar sem margvíslegum réttum er parað saman við vín frá Trivento.
Sú verður einmitt raunin á Argentínu þar sem settur hefur verið saman fjögurra rétta matseðill. Kristján Sigfússon veitingamaður á Argentínu segir að seðillinn sé settur saman þannig að hann falli sem best að vínunum en jafnframt sé um leik að haustlitunum að ræða.
Byrjað er á bökuðum þorskhnakka á gulrótarmauki og hvítvínsrjóma en með því er boðið fram Tribú Chardonnay. Þá kemur grafin gæsabringa með geitaosti, heslihnetum og rauðbeðuþynnum en með þeim rétti var valið vínið Trivento Viognier. Í aðalrétt er grillað nauta rib-eye með trufflusmjöri og rauðvínið Trivento Coleccion Fincas Syrah. Í eftirrétt er loks súkkulaðifrauð með Camus-legnum sveskjum og karamellueplum og sætvínið Trivento Brisa de Osono Late Harvest.
Verð fyrir matseðilinn er 8.650 krónur og fyrir vínseðilinn 5.500 krónur.
Bragoni mun fræða gesti um vínin dagana 3.-6 nóvember og þá verður einnig boðið upp á freyðivín frá Trivento og óvæntum vínum skotið aukreitis inn í vínseðilinn.Trivento er þriðja stærsta vínhús Argentínu og hafa Trivento-vínin verið mest seldu argentínsku vínin hér á landi um árabil. Framleiðsla vínhússins er mjög fjölbreytt, allt frá vínum á borð viðMixtus og Tribú yfir í einnar ekru vínin Fincas, Golden Reserve og Amado Sur og toppvínið Eolo.
Vínin frá Trivento koma aðallega af átta ekrum af mismunandi svæðum í Mendoza sem samtals þekja tæplega þrettán hundruð hektara.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift















