Uppskriftir
|
11. desember
Heimalagað rauðkál
Rauðkál er að margra mati ómissandi með jólamatnum og sannir sælkerar gera auðvitað sitt eigið rauðkál. Hér er notað hunang í staðinn fyrir sykur.
- 1 lítill til meðalstór rauðkálshaus
- 1,5 dl gott vínedik, t.d. cider-edik
- 1 dl fljótandi hunang
- 3 dl Pomegranate-safi eða trönuberjasafi
- 3-4 negulnaglar
- klípa af salti
Saxið grófkálið og setjið í stóran pott. Blandið öðru hráefni saman við. Sjóðið saman á vægum hita í eina klukkustund eða þar til rauðkálið er orðið vel mjúkt.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





Prenta uppskrift
















