Dönsk jólaönd upp á gamla móðinn

Dönsk jólaönd upp á gamla móðinn

Öndin er Dönum það sem rjúpan er Íslendingum, sem sýnir kannski hve Danir eru komnir langt frá allri villibráð. En eins og Íslendingar eru þeir náttúrlega mjög íhaldssamir í uppskriftum af jólamat, enda jóladagarnir ekki heppilegur tími fyrir tilraunaeldhús nema hjá mjög hugdjörfu fólki.

Í eftirfarandi uppskrift sem komin er frá Danmörku og elduð hefur á íslensku heimili um áraraðir á jólunum hafa íslenskar Peking-endur reynst vel, þurfa þó helst að vera að lágmarki um 2.7 kíló stykkið (þær eru stundum æði litlar í frystikistum stórmarkaðanna).

Öndin er hreinsuð og þurrkuð.

Tveir ystu hlutar vængjanna hoggnir af, þeir, háls og innmatur sett í 1 lítra af vatni og soðið með nokkrum sveskjum og hálfu epli í klukkutíma til að búa til gott soð.

Öndin krydduð vel með salti og pipar og fyllt með sveskjum og eplabitum.

Lokuð með pinnum og læri og vængjum líka tyllt við með pinnum, svo hún haldi nú kyrru fyrir í ofninum.

Nudduð með salti og lögð á rist yfir steikarplötu með bringuna niður. Sett í ofninn í 40 mínútur við 180 gráður.

Tekin út, snúið við, salti stráð yfir og nú í ofninn við 160 gráður, helmingurinn af soðinu í ofnskúffuna og steikt þannig í um það bil 50 mínútur á kíló (tvo og hálfan tíma). Ausið öðru hverju í skúffuna.

Soðið síað í pott.

Mestu feitinni, þó ekki allri, fleytt ofan af, það er auðgert þegar soðið hefur kólnað aðeins, en áríðandi, því annars fyllir sósan hverja kransæð.

Þykkt með hveiti og látin sjóða í tíu mínútur og smökkuð til.

Öndin sett smástund í ofninn á fullu blússi svo skinnið verði stökkt.

Öndin stendur í kortér, áður en hún er skorin.

Svo þarf náttúrlega að vera heimalagað rauðkál með: Kíló af rauðkáli skorið í bita, soðið með 1 dl af rifsberjasaft og 1 dl af rauðvíni, við lágan hita, epli í teningum blandað saman við, kryddað með sykri og salti eftir smekk  og soðið við lágan hita í þrjú kortér.

Rétt áður en það er borið fram má hræra tveimur matskeiðum af andafeitinni saman við, þá glansar það fallega.

Borið fram með brúnuðum kartöflum og Waldorf salati.

Til að fullkomna dönsku jólin er um að gera að hafa Riz á l'amande á eftir, enda er sá réttur aldanskur þrátt fyrir franskan hljóm nafnsins. Jafnvel í vöruskorti styrjaldaráranna áttu Danir alltaf nóg af mjólkurvörum, svo þeir tóku upp á því að drýgja hrísgrjón með rjóma í þessum eftirrétti sem alltaf hefur notið mikilla vinsælda á Íslandi. En frank-danska nafnið er miklu hátíðlegra en hinn íslenski möndlugrautur.

Með önd sem þessari eiga virkilega góð rauðvín með. Ólíkt t.d. hamborgarhryggnum dregur öndin fram það besta í góðum vín. Reynið t.d. með Finca Monasterio eða Chateau d'Agassac.

Sjá einnig vinotek.is



Amerískt kartöflusalat

Amerískt kartöflusalat
Í gær, 21:28 Þetta er sígilt amerískt kartöflusalat sem hentar vel sem meðlæti með nær öllu griluðu kjöti.  Meira »

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Í gær, 20:45 Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur.  Meira »

Farro með lax og parmesan

Farro með lax og parmesan
24.5. Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk korntegund sem enn er mikið notuð á Ítalíu. Farro má fá í Frú Laugu en einnig er hægt að nota Bankabygg. Meira »

Pizza með risarækjum og klettasalati

Pizza með risarækjum og klettasalati
20.5. Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða forréttur. Uppskriftina fengum við frá snillingnum Sigurjóni Þórðarsyni, ráðgjafa og matreiðslumeistara. Meira »

Farro með grilluðu grænmeti

Farro með grilluðu grænmeti
10.5. Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að hélt sveitum Rómverja á lífi þegar þeir þrömmuðu um Evrópu. Farro minnir um margt á bygg en er bragðmeira og aðeins harðara undir tönn. Farro fæst t.d. í Frú Laugu en einnig er hægt að nota Bankabygg. Meira »

Nautasteik í hvítlauks og sinnepskryddlegi

Nautasteik í hvítlauks og sinnepskryddlegi
6.5. Þessi marinering er mjög bragðmikil og hentar fyrir flestar nautasteikur sem eiga að fara á grillið.  Meira »

Salat með grilluðum kúrbít, tómötum og fetaosti

Salat með grilluðum kúrbít, tómötum og fetaosti
6.5. Þetta er sumarlegt og litríkt salat sem getur staðið eitt og sér eða verið meðlæti með grilluðu kjöti eða fiski.  Meira »

Pizza með beikoni, papriku og rjómaosti

Pizza með beikoni, papriku og rjómaosti
4.5. Beikon gefur pizzunni gott bragð og passar vel við rjómaostinn og paprikurnar sem hér eru notaðar með.  Meira »

Kröftug lambagrillsteik

Kröftug lambagrillsteik
2.5. Þetta er mjög bragðmikil marínering  með blöndu af vesturlenskum og austurlenskum áhrifum sem passar ekki síst við vel fitusprengda bita af lambinu á borð við prime eða kótilettur. Meira »

Hrísgrjón með avókadópestó

Hrísgrjón með avókadópestó
1.5. Þetta er eiginlega eins konar blanda af pestó og guacamole, sem er blandað saman við hrísgrjón. Tilvalið meðlæti með grillmat eða grænmeti. Meira »

Rósmarínlegnar nautasneiðar

Rósmarínlegnar nautasneiðar
1.5. Rósmarín er undursamleg kryddjurt sem passar ekki síst vel með nautakjöti og lambakjöti. Hér er kryddlögur sem er upplagður fyrir nautakjötssneiðar (t.d. ribeye eða nautalund) sem eiga að fara á grillið. Meira »

Kartöflusalat með graslauk

Kartöflusalat með graslauk
28.4. Graslaukurinn er farinn að teygja sig það langt upp úr jörðinni að það má fara að klippa hann og nota í matargerðina. Það er til dæmis hægt að nota graslauk í gott kartöflusalat með grillmatnum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar