Nautalund Wellington
Nautalund Wellington eða Beef Wellington er afskaplega glæsilegur réttur sem sómar sér á hvaða veisluborði sem er. Og það er auðveldara að elda hann en flestir halda. Á frönsku heitir rétturinn Filet de Bouef en Croute enda myndu Frakkar ekki nefna rétt með sama nafni og hertoginn er bar sigurorð af Napóleon við Waterloo.
- 1/2 nautalund
- 300 g fínt saxaðir sveppir
- 2 skalottulaukar, fínsaxaðir
- 1 msk ferskt timjan
- 1 dl hvítvín eða rauðvín
- 1 pakkning ítölsk skinka.
- smjördeig
- 1 egg
- salt og pipar
Takið nautalundina út úr ísskáp að minnsta kosti klukkustund áður en hún er elduð.
Foreldið lundina með því að brúna í olíu eða smjöri á pönnu.
Næst er búið til svokallað sveppa duxelle. Mýkið laukinn í smjöri á pönnu. Bætið söxuðu sveppunum og timjan saman við. Þegar sveppirnir eru orðnir mjúkir er víninu hellt út á og soðið algjörlega niður þannig að eftir situr þykk sveppablanda á pönnunni. Saltið og piprið.
Leyfið sveppablöndunni að kólna aðeins. Fletjið smjördeigið út. Tilbúið smjördeig er yfirleitt í nægjanlega stórum sneiðum til að rúma lundina.
Smyrjið sveppablöndunni á smjördeigið og raðið síðan skinkusneiðunum á hana. (Í sumum uppskriftum er foie gras notuð í stað skinku og einnig má sleppa skinkunni og leyfa sveppunum að njóta sín einum og sér.)
Leggið lundina á deigið og rúllið því upp. Setjið á plötu þannig að "brotið" snúi niður. Lokið fyrir endana með því að þrýsta á með gaffli. Pískið eggið og penslið deigið. Skerið nokkrar ræmur í deigið þversum og gatið aðeins með gaffli.
Eldið í 200 gráðu heitum ofni þar til að deigið er orðið gullið og fallegt, 25-30 mínútur. Takið steikina út og leyfið að jafna sig í að minnsta kosti 5 mínútur áður en að hún er skorin.
Með þessu er gott að hafa rauðvínssósu eða sósu sem gerð er með því að leysa upp skófarnar á pönnunni sem kjötið var steikt á með rauðvíni eða púrtvíni. Bæta síðan sveppaduxelle (sem verður þá að halda smá til haga af), skvettu af rauðvíni og og svolitlu nautasoði út á og sjóða niður.
Hér þarf gott og klassískt rauðvín með, t.d. Brio de Cantenac frá Margaux eða góðan Chianti Classico.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift















