Hreindýramedalíur á seljurótarbeði

Hreindýramedalíur á seljurótarbeði

Villbráð hæfir hátíðum eins og áramótum og fátt jafnast á við safaríka léttsteikta hreindýrasteik af lund eða hryggjarvöðva (file). Mestu skiptir tvennt: að forðast ofeldun og að láta kjötið jafna sig eftir steikingu, tíu mínútur hið minnsta.

Á veisluborði eins og við jól og áramót þar sem margir bjóða þríréttaðan kvöldverð er engin ástæða til að miða við meira en 200 gr. steikur á mann að hámarki. Þetta er einföld uppskrift af hreindýramedalíum á seljurótarbeði sem borin er fram með rauðvínssósu. Uppskriftin er fyrir fjóra.

Byrjað er á seljurótarmaukinu og sósunni áður en kjötið er steikt enda tekur það stuttan tíma.

Seljurótarmauk

  • 1 seljurót (sellerírót)
  • 1 skalottulaukur
  • olífuolía
  • salt og pipar
  • 1 dl rjómi

Seljurótin er flysjuð og skorin í teninga, laukurinn flysjaður og skorinn smátt. Seljurótin og laukurinn eru síðan steikt í olíu í nokkrar mínútur og krydduð með salti og pipar. Að því búnu er rjómanum hellt yfir og soðið uns seljurótin er orðin mjúk. Þetta er síðan sett í matvinnsluvél og maukað vel. Ef maukið er of þykkt má bæta við lítilsháttar rjóma og bæta við nýmöluðum pipar og salti eftir smekk og tilfinningu.

Rauðvínssósa með lauk og beikoni

  • 2 msk ólífuolía
  • 4 sneiðar smátt skorið beikon
  • 10 skrældir perlulaukar
  • 10 niðursneiddir sveppir
  • 1 tsk fínt skorið ferskt timjan
  • 2 lárviðarlauf
  • 1 tsk tómatpuré
  • 4 dl rauðvín
  • 2 msk rauðvínsedik
  • 4 dl villibráðarsoð
  • sósujafnari
  • 30 gr kalt smjör
  • salt og nýmalaður svartur pipar

Beikon, laukur og sveppir eru svissaðir á pönnu í fáeinar mínútur. Lárviðarlaufi, timjan, tómatpúré, rauðvíni og rauðvínsediki er síðan bætt á pönnuna og soðið niður um þrjá fjórðu. Því næst er villibráðarsoðinu bætt við og þykkt með sósujafnara. Þá er potturinn tekinn af hitanum og smjörinu bætt saman við sósuna. Hrært í þangað til smjörið hefur bráðnað og sósan að lokum smökkuð til með nýmöluðum svörtum pipar og salti. Gætið þess að sósan má alls ekki sjóða eftir að smjörið er komið saman við.

Hreindýramedalíur

Skerið lundina eða hryggjarvöðvann í tvær 400 gr. steikur, kryddið með nýmöluðum svörtum pipar og salti og steikið á öllum hliðum í eina mínútu á snarpheitri pönnu. Takið steikurnar og setjið í 180gráðu heitan ofn í 5-7 mínútur og takið síðan kjötið út úr ofninum, vefjið í álpappír og látið steikurnar jafna sig í að minnsta kosti 10 mínútur. Skerið þá lungamjúkar steikurnar í átta 100 gr. medalíur.

Rétturinn er borinn fram þannig að seljurótarmaukið er smurt á diskinn og steikurnar settar snyrtilega ofan á; sósunni hellt allt um kring. Skreytt með fersku timjani.

Með hreindýri smellpassa öll bestu rauðvínin, reynið t.d. með hinu spænska Malpaso.

Sjá einnig vinotek.is



Amerískt kartöflusalat

Amerískt kartöflusalat
Í gær, 21:28 Þetta er sígilt amerískt kartöflusalat sem hentar vel sem meðlæti með nær öllu griluðu kjöti.  Meira »

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Í gær, 20:45 Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur.  Meira »

Farro með lax og parmesan

Farro með lax og parmesan
24.5. Hér er blandað saman ítölskum og austurlenskum áhrifum enda falla þessir bragðheimar oft einstaklega vel saman. Farro er forn ítölsk korntegund sem enn er mikið notuð á Ítalíu. Farro má fá í Frú Laugu en einnig er hægt að nota Bankabygg. Meira »

Pizza með risarækjum og klettasalati

Pizza með risarækjum og klettasalati
20.5. Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða forréttur. Uppskriftina fengum við frá snillingnum Sigurjóni Þórðarsyni, ráðgjafa og matreiðslumeistara. Meira »

Farro með grilluðu grænmeti

Farro með grilluðu grænmeti
10.5. Farro er ítölsk korntegund, spelt, sem á sér langa og merkilega sögu. Þetta er til að mynda kornið sem að hélt sveitum Rómverja á lífi þegar þeir þrömmuðu um Evrópu. Farro minnir um margt á bygg en er bragðmeira og aðeins harðara undir tönn. Farro fæst t.d. í Frú Laugu en einnig er hægt að nota Bankabygg. Meira »

Nautasteik í hvítlauks og sinnepskryddlegi

Nautasteik í hvítlauks og sinnepskryddlegi
6.5. Þessi marinering er mjög bragðmikil og hentar fyrir flestar nautasteikur sem eiga að fara á grillið.  Meira »

Salat með grilluðum kúrbít, tómötum og fetaosti

Salat með grilluðum kúrbít, tómötum og fetaosti
6.5. Þetta er sumarlegt og litríkt salat sem getur staðið eitt og sér eða verið meðlæti með grilluðu kjöti eða fiski.  Meira »

Pizza með beikoni, papriku og rjómaosti

Pizza með beikoni, papriku og rjómaosti
4.5. Beikon gefur pizzunni gott bragð og passar vel við rjómaostinn og paprikurnar sem hér eru notaðar með.  Meira »

Kröftug lambagrillsteik

Kröftug lambagrillsteik
2.5. Þetta er mjög bragðmikil marínering  með blöndu af vesturlenskum og austurlenskum áhrifum sem passar ekki síst við vel fitusprengda bita af lambinu á borð við prime eða kótilettur. Meira »

Hrísgrjón með avókadópestó

Hrísgrjón með avókadópestó
1.5. Þetta er eiginlega eins konar blanda af pestó og guacamole, sem er blandað saman við hrísgrjón. Tilvalið meðlæti með grillmat eða grænmeti. Meira »

Rósmarínlegnar nautasneiðar

Rósmarínlegnar nautasneiðar
1.5. Rósmarín er undursamleg kryddjurt sem passar ekki síst vel með nautakjöti og lambakjöti. Hér er kryddlögur sem er upplagður fyrir nautakjötssneiðar (t.d. ribeye eða nautalund) sem eiga að fara á grillið. Meira »

Kartöflusalat með graslauk

Kartöflusalat með graslauk
28.4. Graslaukurinn er farinn að teygja sig það langt upp úr jörðinni að það má fara að klippa hann og nota í matargerðina. Það er til dæmis hægt að nota graslauk í gott kartöflusalat með grillmatnum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar