Lax með valhnetum og steinselju
Ofnbakaður lax með blöndu úr ristuðum valhnetum, grilluðum paprikum, steinselju og sítrónu. Það er auðvitað lika hægt að skipta út laxinum fyrir bleikju.
- 1 laxaflax
- 2 dl valhnetukjarnar
- 3 msk grillaðar paprikur úr dós (t.d. Sacla, Ítalía)
- 1 msk fljótandi akasíuhunang
- 1 búnt steinselja, fínsöxuð
- safi úr 1/2 sítrónu
- 1 msk rifinn sítrónubörkur
- klípa af cayennepipar
- ólívuolía
- salt og pipar
Hitið ofn í 180 gráður. Setjið hneturnar á bökunarplötu og ristið í um 8 mínútur. Leyfið að kólna aðeins. Saxið hneturnar og setjið í skál. Blandið sítrónusafa, cayennepipar, paprikunum, helmingnum af steinseljunni, hunangi og um 1 msk af ólívuolíu saman við. Saltið og piprið. Geymið.
Hækkið hitann á ofninum í 200 gráður. Blandið saman 1 msk ólívuolíu, sítrónuberkinum, hinum helmingnum af steinseljunni og smá pipar. Smyrjið laxaflakið með blöndunni. Eldið í ofni í rétt innan við korter. Skemur ef flakið er lítið.
Setjið á fat og dreifið hnetublöndunni yfir fatið. Berið fram með t.d. hýðishrísgrjónum og grænu salati.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift
















