Lambasneiðar með suður-evrópskum hætti
Kryddin í þessum rétti eru sótt til suður-evrópskrar matargerðar. Það er til dæmis tilvalið að nota lamba sirloin-sneiðar, sem eru góðar og ódýrar.
- 1 kg. lambasneiðar, helst sem þynnstar
- 1 sítróna
- 4-5 hvítlauksrif, pressuð
- 1 dl ólívuolía
- 1 dós svartar ólívur, steinlausar
- 1 msk þurrkað óreganó
- 1 msk paprikukrydd
- 1/2-1 tsk chiliflögur
- 1-2 dl hvítvín
- salt og pipar
Kreistið safann úr sítrónunni. Blandið safanum saman við ólívuolíuna, hvítlaukinn, óreganó, paprikukrydd og chiliflögur. Látið magnið af chiliflögunum ráðast af því hvað þið viljið hafa réttinn sterkan. Veltið kjötsneiðunum upp úr kryddlegininm. Saltið og piprið og látið standa í um klukkustund.
Hitið stóra pönnu og setjið sneiðarnar út á ásamt kryddleginum. Brúnið sneiðararnar báðum megin. Bætið þá ólívunum saman við. Lækkið hitann og látið malla áfram í nokkrar mínútur. Bætið loks hvítvíninu út á, notið það til að hreinsa upp skófarnar sem hafa myndast á pönnunni og sjóðið stuttlega niður í þykka sósu.
Berið fram með grískum sítrónukartöflum. Kröftugt suður-ítalskt rauðvín hentar með, t.d. A Mano Primitivo.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift
















