Uppskriftir
|
27. janúar
Súpa úr sætum kartöflum
Þetta er þykk og matarmikil vetararsúpa. Sætu kartöflurnar ráða ferðinni en það er chili sem gefur henni bitið.
- 1 kg sætar kartöflur (tvær meðalstórar), flysjaðar og skornar í bita
- 1 laukur, saxaður
- 7 dl grænmetissoð
- 3 hvítlauksgeirar, pressaðir
- 1/2 tsk chiliflögur
- 1 tsk mulinn kóríander
- Parmesanostur
- paprikukrydd
- smjör
- salt og pipar
Hitið um matskeið af smjöri á pönnu eða í stórum potti, helst pottjárnspotti. Mýkið lauk og hvítlauk ásamt kóríander og chili. Bætið kartöflubitunum út á pönnuna og steikið í nokkrar mínútur.
Bætið grænmetissoðinu út á pönnuna. Leyfið suðunni að koma upp og látið malla í 10-15 mínútur eða þar til að kartöflurnar eru soðnar í gegn.
Maukið í matvinnsluvél. Bragðið til með salti og pipar ef þarf.
Setjið í skálar. Rífið Parmesanost yfir og sáldrið loks smá paprikukryddi yfir.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





Prenta uppskrift















