Mexíkóskt lasagna með nautahakki
Það er gaman að snúa klassískum réttum yfir á önnur lönd. Hér er lasagna með mexíkóskum blæ þar sem tortilla-pönnukökur koma í stað pasta.
- 500 g nautahakk
- 2 dósir tómatar
- 2 msk tómatsósa
- 1 pakkning Taco-krydd
- 1 laukur, fínsaxaður
- 2 grænir chilibelgir, fínsaxaðir
- 8 tortilla-pönnukökur
- 2 bréf rifinn gratín-ostur
- 1 dós maísbaunir
- 1 dós pintobaunir
Hitið olíu á pönnu og mýkið laukinn og chili-piparinn í um tíu mínútur. Bætið þá hakkinu saman við og brúnið. Bætið taco-kryddi út á og hrærið vel saman við kjötið. Hellið tómötunum úr dósinni ásamt safanum og tómatsósunni á pönnunna. Látið malla á vægum hita í um 10 mínútur.
Hellið vökvanum frá maísbaununum og pintobaununum. Setjið í skál og blandið saman við helminginn af rifna ostinum.
Setjið helminginn af kjötblöndunni í botninn á stóru, ofnföstu fati. Þekið með fjórum tortilla-pönnukökum. Það getur veirð þægilegt að skera þær í tvennt - allt eftir því hvernig fatið er í laginu. Næst kemur bauna- og ostablandan, þá hinn helmingurinn af kjötblöndunni og loks osturinn.
Setjið fatið í 200 gráðu heitan ofn og eldið í 30 mínútur.
Berið fram með t.d. góðu tómatasalati og heimatilbúnu guacamole. Með þessu mjúkt og suðrænt rauðvín, t.d. hið kaliforníska Turning Leaf Zinfandel.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift
















