Saltfiskur með mjúkum kartöflum
Saltfiskur gefur veirð sannkallaður herramannsmatur, ekki síst þegar hann er eldaður að hætti Spánverja og Portúgala. Hér er hann á beði úr rjómaelduðum kartöflum með steinselju og svörtum ólívum.
- 500 g vel útvatnaður saltfiskur, helst þykk hnakkastykki
- 2-3 stórar bökunarkartöflur
- 2 laukar
- 6 hvítlauksgeirar
- 5 dl matreiðslurjómi
- 5 dl fiskisoð
- 1 búnt steinselja, fínsöxuð
- 1 lúka svartar ólívur, saxaðar
- ólívuolía
- salt og pipar
Skerið kartöflurnar og laukinn í þunnar skífur. Hitið nokkrar matskeiðar af olíu á pönnu. Byrjið á því að mýkja laukinn. Þegar hann fer að taka á sig brúnan lit er kartöfluskífunum bætt saman við ásamt 4 fínt söxuðum hvítlauksgeirum. Steikið með lauknum í 3-4 mínútur. Hellið fiskisoðinu út á og sjóðið alveg niður. Bætið þá matreiðslurjómanum út á pönnuna og sjóðið þar til að úr verður þykkt mauk. Merjið kartöflurnar með sleif. Passið upp á að þær brenni ekki við botninn.
Setjið saltfiskinn í eldfast form, penslið með olíu og setjið 2 saxaða hvítlauksgeira með. Bakið í 15-20 mínútur við 200 gráður, allt eftir þykkt stykkjanna.
Setjið kartöflumaukið á disk. Saltfisk yfir. Sáldrið þá vel af steinselju og söxuðum ólívum yfir. Til að kóróna þetta er gott að setja smá af hágæða ólívuolíu á hvern disk.
Berið fram með góðu spænsku hvítvíni, t.d. Baron de Ley Blanco.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift
















