Kjúklingur með kryddjurtum og sítrónu

Kjúklingur með kryddjurtum og sítrónu

Það er auðvelt að búa til dýrindismáltíð úr kjúklingi og endalaust hægt að leika sér með mismunandi bragðsamsetningar. Í þessari uppskrift er notaður heill kjúklingur þar sem kryddjurtir og sítróna spila aðalhlutverkið. Sítrónan gerir kjúklinginn virkilega safaríkan. Hér má svo finna fjölmargar kjúklingauppskriftir í viðbót.

  • 1 heill kjúklingur
  • 1 lúka fersk steinselja
  • 1 lúka ferskt timian
  • 1 sítróna
  • 2-3 hvítlauksrif
  • 2 tsk paprikuduft
  • 2 tsk pipar
  • 2 tsk sinnepsfræ
  • 2 tsk kórianderduft
  • 1/2 tsk sjávarsalt
  • 1/2 dl ólíufuolía
  • 1 msk fljótandi hunang

Stillið ofninn á 175 gráður. Skerið fersku kryddjurtinar niður og rífið börkinn af hálfri sítrónu. Blandið kryddjurtunum, sítrónuberkinum og hvítlauknum ásamt safanum úr  1/2 sitrónu saman við kryddblönduna ásamt saltin, ólífuolíu og hunangi.  Makaðu  mareneringunni á kjúklinginn, bæði undir skinninu og utan á kjúklinginn,  það er eiginlega nauðsynlegt að nota hendurnar við það verk. Setjið síðan hinn helminginn af sítrónunni inn í kjúklinginn.  Eldið kjúklinginn í ofni við 175 gráður í 60-80 mín.

Berið fram með einföldu risotto og góðu salati.

Með þessum kjúkling á gott hvítvín vel við s.s. hið sikileyska Rapitala Cataratto-Chardonnay

Sjá einnig vinotek.is



Mexicali-kjúklingur “butterfly”

Mexicali-kjúklingur “butterfly”
í gær Mexicali er nafnið á höfuðborg Baja California sem er sá hluti Kaliforníuskagans sem tilheyrir Mexíkó. Mexicali er hins vegar líka hugtak sem notað er yfir þann sambræðing af matarvenjum Mexíkó og Kaliforníu sem finna má í suðurhluta ríkisins, svona svipað og Tex-Mex í Texas. Grillaðir “butterfly”-kjúklingar sem marineraðir hafa verið í góðri kryddblöndu njóta mikilla vinsælda í Suður-Kaliforníu og margir litlir staðir sem sérhæfa sig í að bera fram slíkan kjúkling. Hér er ein ekta, fín Mexicali-uppskrift. Meira »

Einföld og flott grillsósa

Einföld og flott grillsósa
20.5. Kaldar grillsósur eru alltaf góðar með kjötinu og þess vegna fiskinum. Það er BBQ-bragð í þessari og hún á því vel við grillkjöt með slíkri sósu. Svo er líka hægt að nota hana með t.d. grilluðum lax og kartöflum. Meira »

Franskt kartöflusalat

Franskt kartöflusalat
19.5. Það er ekkert náttúrulögmál að það verði að nota majonnes og/eða sýrðan rjóma í kartöflusalat. Þetta ferska kartöflusalat er í frönskum stíl og það eru sinnep, laukur og kryddjurtir sem að gefa því bragðið. Það hentar með ýmsu, bæði grilluðu kjöti og fiski eða þá köldu roastbeef, svo dæmi sé tekið. Tilvalið í jafnt grillveisluna sem veisluborðið. Meira »

Karabískur humar með rommi og engifer

Karabískur humar með rommi og engifer
17.5. Sósan með þessum  humar er einstaklega góð og það væri einnig hægt að elda t.d. risarækjur með sama hætti. Við elduðum humarinn á pönnu á grilli en auðvitað er hægt að gera það á venjulegri pönnu líka. Meira »

Lasagna að hætti Jamie Olivers

Lasagna að hætti Jamie Olivers
16.5. Þetta er einn af þeim betri lasagnaréttum sem ég hef gert og voru allir fjölskyldumeðlimirnir sammála því. Þessi leið við að elda lasagna kemur upphaflega úr smiðju Jamie Olivers en trixið er að skipti út hinni hefðbundnu béchamelsósu fyrir blöndu af sýrðum rjóma og parmesanosti. Tær snilld. Lasagna að hætti Jamie Olivers má nú finna í ýmsum útgáfum og hér er okkar útfærsla. Meira »

Einfalt spaghetti grasekkjunnar

Einfalt spaghetti grasekkjunnar
15.5. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta auðveldur spaghettiréttur og maður er enga stund að skella í hann.  Grasekkjunafið er komið til af því að ég varð grasekkja í nokkra daga og nennti  ekki mikið að hafa fyrir matnum eitt kvöldið. Það er gott að vera með litla tómata en þeir gefa gott samþjappað bragð þegar að þeir eru eldaðir.  Ég get alveg mælt með tómötum sem ég prufaði um daginn og heita Piccolo en þeir eru alveg einstaklega sætir. Hef reyndar ekki séð þá í síðustu skipti sem ég hef farið út í búð. Meira »

Merguez-borgarar á pítubrauði með jógúrtsósu

Merguez-borgarar á pítubrauði með jógúrtsósu
14.5. Merguez eru norður-afrískar pylsur sem eru vinsælar á Maghreb-svæðinu, Túnis, Alsír og Marokkó. Þetta eru allt fyrrum franskar nýlendur og þaðan bárust þær til Frakklands og njóta mikilla vinsælda. Flestir þeir sem borðað hafa á couscous-veitingahúsum ættu að þekkja þær. Þessar bragðmiklu pylsur er hægt að gera sjálfur samkvæmt uppskriftinni hér að neðan. Í stað þess að gera “pylsur” mótum við hins vegar kjötið í hamborgara og grillum (eða steikjum) og höfum með pitabrauði og jógúrtsósu með kóríander. Algjört ljúfmeti. Meira »

Grillaðar paprikur

Grillaðar paprikur
13.5. Grillaðar paprikur er hægt að kaupa tilbúnar í dósum í flestum verslunum. Það jafnast samt ekkert á við að grilla sínar eigin paprikur. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Einföld og flott grillsósa | f.truncatewords(15)}

Einföld og flott grillsósa

Kaldar grillsósur eru alltaf góðar með kjötinu og þess vegna fiskinum. Það er BBQ-bragð í þessari og hún á því ... Meira
Karabískur humar með rommi og engifer | f.truncatewords(15)}

Karabískur humar með rommi og engifer

Sósan með þessum humar er einstaklega góð og það væri einnig hægt að elda t.d. risarækjur með sama hætti. Við ... Meira
Saint Clair Vicar’s Choice Sauvignon Blanc 2012

Saint Clair Vicar’s Choice Sauvignon Blanc 2012

4 stjörnur Það er eitthvað við Sauvignon Blanc frá Nýja-Sjálandi sem bara heillar. Hann er svo ferskur, ágengur og unaðslegur. Sætur en ekki væmin. Ferskur en aldrei of sýrumikill. Vicar’s Choice 2012 er fölt á lit, grösugt og grænt í ... Meira

Fleiri víndómar