Sænskir kanilsnúðar

Sænskir kanilsnúðar

Sænskir kanilsnúðar eru alltaf klassískir. Þessir eru með marsípani en það er auðvitað hægt að sleppa því ef fólk er ekki fyrir marsípan. Aðrir vinsælir og góðir snúðar sem við höfum líka verið með en eru í allt aðra átt eru svokallaðir Cinnabons, ameriskir kanilsnúðar með kremi og eru alveg guðdómlegir.

  • 1.5 l hveiti
  • 1 þurrgersbréf
  • 1/2 tsk salt
  • 2 tsk muldar kardimommur (eða kardimommuduft)
  • 1 dl sykur
  • 150 grömm smjör
  • 5 dl mjólk
  • 1 egg

Fylling

  • smjör
  • kanilsykur
  • marsípan

Blandið þurrefnunum saman. Bræðið smjörið og bætið mjólkinni saman við. Þetta á að vera vel volgt. Bætið vökvanum og egginu að síðustu saman við og hrærið í 5-10 mín. Látið hefast í 1 klst.  Skiptið síðan deiginu í tvo hluta og fletjið deigið út í ferninga. Berið vel á það af smjöri og kanilsykri. Síðan er mjög gott að rífa marsipan yfir. Rúllað upp og skorið í 2-3 cm breiða bita sem settir eru í pappírsform. Látið hefast á bökunarplötunni í 30 mín. Penslað með eggi og stráð perlusykur yfir.

Bakað við 250 gráður í ca 10 mín.

Fjölmargar uppskriftir að kökum og fleira má svo finna hér.

Sjá einnig vinotek.is



Taco Pizza

Taco Pizza
00:00 Það þarf auðvitað ekki að spyrja að því hvaðan hugmyndin að þessari pizzu kemur. Taco og pizza njóta mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og auðvitað tilvalið að reyna að splæsa þetta saman í eitt. Útkoman er bara lygilega góð. Meira »

Grillaður asískur lax með kókosgrjónum

Grillaður asískur lax með kókosgrjónum
í gær Þetta er alveg hreint magnaður grillaður lax. Brögðin eru úr asíska eldhúsinu og við notum líkt og svo oft áður þurrkaðan chili (chiliflögur) til að magna upp bragðið. Hér er það hvorki meira né minna en matskeið sem gefur ágætan en ekki yfirþyrmandi “hita” í réttinn. Þið getið minnkað – eða aukið – chili-magnið allt eftir því hvað þið viljið ganga langt í þeim efnum. Kókosgrjónin eru siðan sótt til Taílands en þau falla frábærlega að krydduðum mat. Meira »

Asísk kjúklingaspjót með sesam

Asísk kjúklingaspjót með sesam
23.5. Þetta eru bragðmikil og fín kjúklingaspjót á grillið með asísku yfirbragði. Sesamolían og sesamfræin gefa tóninn.  Meira »

Mexicali-kjúklingur “butterfly”

Mexicali-kjúklingur “butterfly”
21.5. Mexicali er nafnið á höfuðborg Baja California sem er sá hluti Kaliforníuskagans sem tilheyrir Mexíkó. Mexicali er hins vegar líka hugtak sem notað er yfir þann sambræðing af matarvenjum Mexíkó og Kaliforníu sem finna má í suðurhluta ríkisins, svona svipað og Tex-Mex í Texas. Grillaðir “butterfly”-kjúklingar sem marineraðir hafa verið í góðri kryddblöndu njóta mikilla vinsælda í Suður-Kaliforníu og margir litlir staðir sem sérhæfa sig í að bera fram slíkan kjúkling. Hér er ein ekta, fín Mexicali-uppskrift. Meira »

Einföld og flott grillsósa

Einföld og flott grillsósa
20.5. Kaldar grillsósur eru alltaf góðar með kjötinu og þess vegna fiskinum. Það er BBQ-bragð í þessari og hún á því vel við grillkjöt með slíkri sósu. Svo er líka hægt að nota hana með t.d. grilluðum lax og kartöflum. Meira »

Franskt kartöflusalat

Franskt kartöflusalat
19.5. Það er ekkert náttúrulögmál að það verði að nota majonnes og/eða sýrðan rjóma í kartöflusalat. Þetta ferska kartöflusalat er í frönskum stíl og það eru sinnep, laukur og kryddjurtir sem að gefa því bragðið. Það hentar með ýmsu, bæði grilluðu kjöti og fiski eða þá köldu roastbeef, svo dæmi sé tekið. Tilvalið í jafnt grillveisluna sem veisluborðið. Meira »

Karabískur humar með rommi og engifer

Karabískur humar með rommi og engifer
17.5. Sósan með þessum  humar er einstaklega góð og það væri einnig hægt að elda t.d. risarækjur með sama hætti. Við elduðum humarinn á pönnu á grilli en auðvitað er hægt að gera það á venjulegri pönnu líka. Meira »

Lasagna að hætti Jamie Olivers

Lasagna að hætti Jamie Olivers
16.5. Þetta er einn af þeim betri lasagnaréttum sem ég hef gert og voru allir fjölskyldumeðlimirnir sammála því. Þessi leið við að elda lasagna kemur upphaflega úr smiðju Jamie Olivers en trixið er að skipti út hinni hefðbundnu béchamelsósu fyrir blöndu af sýrðum rjóma og parmesanosti. Tær snilld. Lasagna að hætti Jamie Olivers má nú finna í ýmsum útgáfum og hér er okkar útfærsla. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Grillaður asískur lax með kókosgrjónum | f.truncatewords(15)}

Grillaður asískur lax með kókosgrjónum

Þetta er alveg hreint magnaður grillaður lax. Brögðin eru úr asíska eldhúsinu og við notum líkt og svo oft áður ... Meira
Mexicali-kjúklingur “butterfly” | f.truncatewords(15)}

Mexicali-kjúklingur “butterfly”

Mexicali er nafnið á höfuðborg Baja California sem er sá hluti Kaliforníuskagans sem tilheyrir Mexíkó. Mexicali er hins vegar líka ... Meira
Montes Alpha Chardonnay 2011

Montes Alpha Chardonnay 2011

4 og hálf stjarna Montes Alpha Chardonnay er toppvínið í hvítu frá Montes-vínhúsinu í Chile en eins og margir muna var stofnandi þess Aurelio Montes staddur hér á landi síðasta haust og má sjá viðtal sem tekið var við hann þá hér. Meira

Fleiri víndómar