Parmesankjúklingur

Parmesankjúklingur

Ofnbakaður kjúklingur er alltaf vinsæll. Þessi parmesankjúklingur krefst þess þar að auki ekki að maður standi yfir pottunum lengi.

  • 600 g beinlaus kjúklingur, bringur, læri eða lundir, Skorið í strimla
  • 2 laukar, saxaðir
  • 3 msk fínsaxaður hvítlaukur
  • 2,5 dl rjómi
  • 150 g Parmesan, rifinn
  • 2-3 tsk krydd, t.d. timjan/rósmarín/salvía
  • ein lúka söxuð basillauf
  • smjör og olía
  • salt og pipar

Hitið smjör og olíu saman á pönnu og mýkið laukinn og hvítlaukinn þar til að hann fer að taka á sig lit. Það er gott að byrja á lauknum og bæta hvítlauknum við eftir 2-3 mínútur. Þegar laukurinn er orðinn vel gullinn er hann tekinn af pönnunni og geymdur.

Bætið smá olíu á pönnuna og steikið kjúklingastrimlana. Saltið, piprið og kryddið með kryddum að ykkar smekk. Þegar kjúklingurinn er að verða tilbúinn er um 1 dl af vatni bætt út á pönnuna til að hreinsa upp skófarnar (ennþá betra er að nota hvítvín ef þið eigið það til).

Setjið kjúklinginn ásamt vökvanum úr pönnunni í ofnfast form og laukinn ofan á. Blandið saman rjóma og parmesan og hellið yfir.

Setjið í 200 gráðu heitan ofn og eldið í um 35-40 mínútur. Sáldrið söxuðu basillaufunum yfir áður en borið er fram með hrísgrjónum og salati.

Hér er gott að hafa Chardonnay-vín með t.d. frá Gérard Bertrand.

Fjölmargar fleiri kjúklingauppskriftir má svo sjá hér.

Sjá einnig vinotek.is



Tabasco kjúklingur “butterfly”

Tabasco kjúklingur “butterfly”
00:00 Þetta er eldheitur kjúklingur í anda Mið-Ameríku þar sem Tabasco-magnið er talið í matskeiðum en ekki dropum. Farið þó varlega til að byrja með. Það er alltaf hægt að bæta aðeins Tabasco við en það er ekki hægt að taka það í burtu. Meira »

Spænskt chorizo-pasta

Spænskt chorizo-pasta
í gær Pasta er eitthvað sem að við tengjum yfirleitt við ítalska matargerð. Hér eru það hins vegar spænsku áhrifin sem eru allsráðandi en uppskriftina fundum við á lista yfir “bestu pasta-uppskriftir í heimi”. Og það verður að segjast eins og er að góð er hún. Meira »

Lime-marineraðar kótilettur

Lime-marineraðar kótilettur
16.6. Lime, fiskisósa og chili gefa þessum grilluðu lambakótilettum asískt yfirbragð og hunangið tryggir smá sætu í bland við sýruna. Meira »

Belgískar vöfflur með bláberjasósu

Belgískar vöfflur með bláberjasósu
16.6. Belgískar pönnukökur eru bæði góðar og flottar á borði.  Þessa uppskrift fann ég á netinu og voru þær sagðar vera  hinar “einu sönnu” belgísku vöfflur  og við tókum því á orðinu.  Mér sýnist helsti munurinn á milli venjulegra vafflna og þeirra belgísku liggja í því að eggjahvíturnar eru þeyttar í belgísku vöfflunum. Ég gerði þessa bláberjasósu með vöfflunum sem var rosalega góð með þeim og rjómanum Meira »

Gómsætt guacamole

Gómsætt guacamole
14.6. Þessi mexíkóski smáréttur er tilvalinn  sem forréttur/ídýfa í veislu eða sem meðlæti með mexíkóskum réttum. Við höfum áður verið með upp uppskrift af guacamole en gerum það hér með svolítið öðruvísi hætti. Meira »

Óreganó-kjúklingur “butterfly”

Óreganó-kjúklingur “butterfly”
13.6. Það er eitthvað svo Miðjarðarhafslegt við óreganó og sítrónu en sú blanda á afskaplega vel við grillaðan kjúkling. Einhver besta leiðin til að grilla kjúkling er að skera hann í “butterfly”. Meira »

Rúlluterta með rjóma og jarðaberjum

Rúlluterta með rjóma og jarðaberjum
13.6. Þetta er sumarleg rúllurterta með vanillurjóma og jarðaberjum. Það er auðvitað hægt að nota hvaða ber eða ávexti sem er í staðinn fyrir jarðarberin. Meira »

Paprikukartöflur með parmesan

Paprikukartöflur með parmesan
12.6. Þessar ofnbökuðu kartöflur með papriku, hvítlauk og parmesan eru einstaklega gott meðlæti með grillmatnum.  Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Spænskt chorizo-pasta | f.truncatewords(15)}

Spænskt chorizo-pasta

Pasta er eitthvað sem að við tengjum yfirleitt við ítalska matargerð. Hér eru það hins vegar spænsku áhrifin sem eru ... Meira
Belgískar vöfflur með bláberjasósu | f.truncatewords(15)}

Belgískar vöfflur með bláberjasósu

Belgískar pönnukökur eru bæði góðar og flottar á borði. Þessa uppskrift fann ég á netinu og voru þær sagðar vera ... Meira
Casillero del Diablo 2011

Casillero del Diablo 2011

3 og hálf stjarna Ef eitthvað eitt vín er táknrænt fyrir Chile þá er það Casillero del Diablo Cabernet Sauvignon. Concha y Toro er stærsta vínhús Chile, Cabernet er vinsælasta þrúgan og Casillero del Diablo er sú lína sem Concha er þekktast ... Meira

Fleiri víndómar