Kótilettur með ólívum
Þetta er svolítið öðruvísi aðferð við eldun á lambakótilettum en við erum vön enda kemur hún frá Suður-Ítalíu. Hvort sem er í Kalabríu, Kampaníu eða Púglíu er algengt að rekast á lambakótilettur eða bógsneiðar af lambi eldaðar með ólívum og sítrónu.
1 kg. a af snyrtum lambakótilettum eða bógsneiðum
Safi úr einni sítrónu
3 dl svartar ólívur, olíulegnar og steinlausar, grófsaxaðar
1 tsk þurrkað óregano
1/2 tsk þurrkaðar chili-piparflögur (hot pepper eða red pepper flakes)
ólívuolía
Hitið olíuna á pönnu saltið og brúnið kótiletturnar. Það er líklegt að þið þurfið að steikja kótiletturnar í tveimur umgöngum. Hellið fitunni af pönnunni.
Setjið nú allar kótiletturnar á pönnuna, kryddið með óreganó og chili-flögunum, hellið sítrónusafanum yfir og bætið ólívunum saman við. Veltið þessu öllu vel saman með sleif, setjið lok á pönnuna og eldið á mjög vægum hita í um 20 mínútur.
Berið kótiletturnar fram sjóðandi heitar, beint af pönnunni ásamt ólívunum. Þetta er sósulaus réttur og fínt að bera fram með bökuðum kartöflubátum.
Kröftugt suður-ítalskt rauðvín á borð við Feudi San Marzano Negroamaro eða Biscecglia Terra di Vulcano Aglianico.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum






















