Fyllt lambalæri að hætti Grikkja
Þessi uppskrift kemur upprunalega frá Grikklandi. Lambalærið þarf að vera úrbeinað og skorið út í svokallað fiðrildi eða "butterfly".
Það þarf að gera annars vegar kryddlög og hins vegar fyllingu áður en við höldum lengra:
Kryddlögur
1 dl ólívuolía
1 dl hvítvín
safi úr hálfri sítrónu
1 tsk þurrkað timjan eða óreganó
1 lárviðarlauf, mulið
3-4 hvítlauksgeirar, pressaðir
salt og pipar
Fylling
8 skalottulaukar, fínsaxaðir
1 búnt steinselja, fínsaxað
1 búnt dill, fínsaxað
4 hvítlauksgeirar, pressaðir
350 grömm Fetaostur
Blandið öllu saman sem á að fara í kryddlöginn í stórri skál. Setjið lærið ofan í og veltið vel upp úr leginum. Látið það marínerast í nokkrar klukkustundir, gjarnan yfir nótt.
Hitið ofninn í 180 gráður.
Blandið saman saxaðri steinseljunni, dillinu, skalottulaukunum og hvítlauknum. Myljið fetaostinn saman við.
Takið lærið úr kryddleginum og opnið. Setjið fyllinguna á miðjuna og lokið lærinu aftur. Festið saman með snæri. Setjið á fat, hellið kryddleginum yfir og eldið í ofninum í tvær og hálfa klukkustund.
Bakaðir eða steiktir kartöflubátar eru mjög góðir með og græn salat.
Því miður eru grísk rauðvín ekki í boði og við verðum því að leita annað. Vín á borð við Perrin Reserve Cotes-du-Rhone-Villages eða Torres Gran Coronas smellpassa.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum





















