Grískur Kapama- kjúklingur
Gríska matargerðin er dæmigerð Miðjarðarhafsmatargerð hvað hráefni varðar. Það leynir sér hins vegar ekki í mörgum uppskriftum að Grikkland er í austurhluta Miðjarðarhafsins. Í Kapama-kjúkling eða "Kota Kapama" koma til dæmis krydd og brögð við sögu sem minna á Austurlönd nær.
1 stór kjúklingur, bútaður í átta bita
1 dós saxaðir tómatar
1 dós tómatapúrra
3 kanilstangir
1 tsk kanilkrydd
2 lárviðarlauf
1 lauxur, saxaður
3-4 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 msk sykur
2 dl vatn
smjör
salt og pipar
Parmesan-ostur
500 g smágert pasta, t.d. makaróní eða mini-penne
Kryddið kjúklingabitana með salti, pipar og kanil. Bræðið um 2 msk af smjöri í þykkum potti og brúnið kjúklingabitana vel.
Blandið saman maukuðu tómötunum, tómatapúrrunni, sykri og vatni. Hellið yfir kjúklinginn í pottinum og setjið svo kanilstengurnar og lárviðarlaufin útí.
Steikið laukin og hvítlaukin í smjöri á annarri pönnu og bætið síðan út í kjúklingapottinn. Látið malla undir loki í 50 mínútur.
Eldið pastað skv leiðbeiningum. Það er gaman að bera þennan rétt fram á stóru fati. Setjið soðið pastað á fatið og hellið síðan kjúklingaréttinum yfir.
Samkvæmt hinni upprunalegu grísku uppskrift á að bera fram rifinn Kefalotiri-ost með þessu öllu. Hann er hins vegar ekki fáanlegur hér á landi en Parmigiano eða Grana Padano getur vel komið í hans stað.
Með þessu kröftugt suður-evrópskt rauðvín á borð við Luzon Jumilla.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum





















