Uppskriftir
|
21. nóvember
Gulrótarsalat með sítrus og valhnetum
Þetta salat má bera fram eitt og sér eða sem meðlæti, t.d. með fiski eða kjúklingaréttum. Sítrussafinn gefur góðan ferskleika, hunangið smá sætu og ristaðar hneturnar yndislegt bragð og eitthvað stökkt undir tönn.
- 500 g rifnar gulrætur
- rifinn börkur af 1/2 sítrónu
- safi úr 1/2 sítrónu
- 2 msk appelsínusafi
- væn lúka valhnetur
- 3 vorlaukar, saxaðir
- 1 lúka söxuð steinselja
- 1 msk akasíuhunang
- 1/2 dl ólívuolía
- salt og pipar
Ristið hneturnar í 7-8 mínútur í 200 gráðu heitum ofni.
Blandið saman hunangi, ólívuolíu, sítrónusafa, sítrónuberki, appelsínusafa, salti og pipar.
Blandið öllu saman í stórri skál. Setjið í ísskáp og geymið í a.m.k. 15 mínútur áður en borið er fram.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





Prenta uppskrift
















