Sesamgrís
Kínversk matargerð hefur öðlast sitt eigið líf vestan hafs og þar hefur þróast afbrigði hennar sem blandar saman þessum tveimur menningarheimum og er í raun orðin að því sem margir tengja við "kínverskan" mat. Þessi uppskrift er í þeim stíl. Hér er notað grísakjöt en það má allt eins nota kjúklingakjöt.
- 500 g grísakjöt í bitum
- 1 dl akasíuhunang
- 1 dl mild sojasósa
- 1 dl vatn
- 4-5 hvítlauksrif, pressuð
- 3 sm engiferrót, rifin
- 1 tsk chiliflögur
- 2 msk Maizena
- 2 vænar msk sesamfræ
Byrjið á því að þurrista sesamfræin á heitri pönnu þar til að þau taka að dökkna, án þess þó að brenna.Geymið.
Setjið vatn, soja, hunang, hvítlauk, engiferr, chiliflögur og maizena í skál og pískið vel saman.
Hitið olíu á pönnunni og brúnið kjötbitana. Hellið sósunni út á pönnunna og sjóðið hressilega í nokkrar mínútur þar til að sósan fer að þykkna. Lækkið hitann, hellið sesamfræjunum yfir, blandið saman og látið malla í um 10 mínútur.
Berið fram með hrísgrjónum og gufusoðnum gulrótum og brokkolí.
Með þessu hentar gott nýjaheimshvítvín best, t.d. Cono Sur Viognier.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Pizza með risarækjum og klettasalati





Prenta uppskrift
















