Heimilislegur Laugaás

Heimilislegur Laugaás

Það eru þrír áratugir liðnir frá því að veitingahúsið Laugaás opnaði fyrst dyr sínar fyrir gestum. Þau eru ekki mörg íslensku veitingahúsin sem geta státað af svo langri tilveru hvað þá að árin hafi liðið án þess að breytingar yrðu á rekstrarhaldi og yfirmatreiðslumanni.

Þrátt fyrir að gífurlegar breytingar hafi orðið á veitingahúsaumhverfinu á Íslandi frá árinu 1979 nýtur Laugaás alltaf mikilla vinsælda og það er oftar en ekki þéttsetið við borðin. Tíminn hefur að mörgu leyti staðið í stað á Laugaási, umhverfið tekur ekki miklum breytingum og matargerðin ekki heldur. Gestir vita að hverju þeir ganga og líkar það vel.

Andrúmsloftið er heimilislegt og að mörgu leyti er það að setjast inn á Laugaás svipað og að setjast inn í eldhús í heimahúsi. Hingað kemur fólk ekki uppáklætt til að fara fínt "út að borða" heldur til þess að borða og þá ekki síður og jafnvel frekar á virkum dögum en um helgar. Opnunartíminn tekur líka mið af hefðbundnum matmálstíma fólks, það er lokað klukkan níu á kvöldin.

Laugaás er rammíslenskur staður en jafnframt ekki hefðbundið íslenskur í þeim skilningi að hann sé svipaður mörgum öðrum stöðum. Því miður er þeir ekki margir staðirnir sem hafa náð að festa sig í sessi sem litlir hverfisveitingastaðir fjarri miðborginni þar sem boðið eru upp á þægilegt umhverfi, heiðarlega matargerð og heimilislega bistro-stemmningu.

Matseðillinn er svolítið kaótískur, það eru sértilboð og sérseðlar í bland við aðalréttina. Þarna eru nokkrir klassískir réttir. Gratínið stendur fyrir sínu og hefur ekki tekið breytingum í gegnum árin, hveitiþykkt með miklum osti, góðri ýsu og smá karríbragði. Nú var líka boðið upp á humarmatseðill þar sem hægt var að kaupa nokkrar mismunandi skammtastærðir. Útfærslan mjög svipuð því sem boðið er upp á í fjöruborði suðurstrandarinnar með couscous og kartöflum. Humarinn var ágætur, fremur smávaxinn en hæfilega eldaður.

Einnig er hægt að fá lamb í mismunandi útfærslum. Sú klassíska er að taka niðursneitt lambalærið með béarnaise. Jafnt sósan sem kjötið í fínu lagi með ágætu salati og bakaðri kartöflu með smjöri. Lambafilé var í sömu útfærslu nema hvað sósan var önnur, þokkaleg soðsósa.

Útfærslur réttanna eru ekki flóknar. Eins og annað er hún heimilisleg og laus við alla stæla, enda líklega það sem laðar fólk að ár eftir ár, oft sömu fjölskyldurnar. Verðlag er líka þægilegt, það fer ekki illa með veskið að snæða á Laugaási, jafnvel þótt vínflaska sé pöntuð með máltíðinni. Laugaás er því þægilegur valkostur ef menn nenna ekki að elda heima eða vilja skipta um umhverfi

 

 

 

Laugaás
Laugarásvegur 1
Andrúmsloft: Köflótt gluggatjöld og innréttingar sem hafa haldið sér í aldarfjórðung ásamt heimilislegri og vinalegri þjónustunni og matreiðslunni.

2.0 stjörnur

Sjá einnig vinotek.is



Tapasbarinn

Tapasbarinn
30.10. Tapasbarinn í Hlaðvarpanum er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðunum í Reykjavík. Það er yfirleitt mikið að gera og gjarnan fullt út úr dyrum. Tapasmenningin spænska sem byggir á smáréttum sem gjarnan eru borðaðir við barborðið virðist eiga vel við Íslendinga. Stemmningin á Tapasbarnum er líka ansi suðræn, það er matarlykt í loftinu, angan af hvítlauk og grilluðum fisk og kjöti, líf og fjör á flestum borðum. Meira »

Kolabrautin

Kolabrautin
29.9. Það verður ekki af Kolabrautinni tekið að umgjörðin utan um hana er á heimsmælikvarða. Þótt bygging Hörpunnar hafi verið umdeild er húsið ekkert annað en listaverk. Það vakti töluverða spennu þegar tilkynnt var á sínum tíma að hjónin Leifur Kolbeinsson og Jónína Kristjánsdóttir, áður veitingamenn á Primavera, og Jóhannes Stefánsson, oft kenndur við Múlakaffi, myndu taka að sér veitingarekstur í hinu nýja og glæsilega tónlistarhúsi. Meira »

Argentína steikhús

Argentína steikhús
21.3. Það eru nokkrir veitingastaðir orðnir að eins konar fasta í íslensku veitingahúsalífi.  Steikhúsið Argentína við Barónsstíg er óneitanlega í þeim flokki. Argentína er einhvern veginn alltaf söm við sig og alltaf jafnvinsæl meðal gesta. Meira »

Austur Steikhús

Austur Steikhús
1.7.2010 Austur Steikhús heitir veitingahúsið sem opnaði fyrr á árinu í fyrrum aðalútibúi gamla Búnaðarbankans við Austurstræti. Nafnið vísar væntanlega jafnt til staðsetningarinnar sem þess að eitthvað er sótt til Austurlanda í matargerðinni. Meira »

Fiskifélagið

Fiskifélagið
2.11.2009 Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar Fiskifélagið opnaði dyr sínar í sumar fyrir gestum. Ljóst var að staðurinn yrði að marka sér sérstöðu á þessari sillu matargerðarinnar. Meira »

101

101
23.9.2009 Hótelið 101 markaði ákveðin tímamót þegar það opnaði dyr sínar í mars 2003. Það var fyrsta íslenska boutique-hótelið. Lítið, hrikalega hipp og kúl og hugsað fyrir hverju einasta smáatriði í hönnun og skreytingum. Það var greinilegt að nýtt Ísland var að fæðast, alþjóðlegt og spennandi og … jæja það héldum við að minnsta kosti þá. Meira »

Dill

Dill
16.8.2009 Veitingastaðurinn Dill hefur vissulega töluverða forgjöf á marga nýja staði. Það er ekki á hverjum degi sem að menn fá tækifæri til að opna veitingastað í húsi hönnuðu af sjálfum Alvari Aalto. Meira »

Orange

Orange
4.8.2009 Í gegnum glerhurðina sem leiðir úr matsalnum inn í eldhúsið  má sjá mann íklæddan hvítum sloppi með skíðagleraugu og risavaxna slaufu burðast með þunga kúta.  Sjá má gesti gauta spurulum augum hvor til annars? Hvar erum við eiginlega stödd? Er þetta eldhús eða er þetta tilraunastofa? Meira »

Mars og Venus

Mars og Venus
30.6.2009 Það er líklega vart hægt að hugsa sér ólíkari staði en Hamborgarabúlluna og matstofuna Maður lifandi. Það eina sem þessir staðir eiga sameiginlegt er að þeir eru "skyndibitastaðir" í þeirri merkingu að ekki þarf að bíða lengi eftir matnum og ekki þarf langan tíma til að borða hann. Alla rétti er sömuleiðis hægt að taka með sér heim eða í vinnuna og í báðum tilvikum eru staðirnir orðnir að eins konar "keðjum" þ.e. nokkur útibú eru starfrækt. Meira »

Hótel Holt

Hótel Holt
12.6.2009 Holtið hefur allt frá upphafi haft sérstöðu í hópi íslenskra veitingahúsa. Það hefur verið ákveðinn fasti, vin þar sem hefðir og gæði eru í hávegum höfð. Holtið hefur verið uppeldisstöð margra okkar bestu matreiðslumanna og þjóna. Það hefur verið leiðandi í þróun matreiðslu og vínmenningar á veitingahúsum. Vissulega hafa sum tímabil í sögu Holtsins verið betri en önnur en alla jafna hefur það verið það viðmið þegar kemur að gæðum og þjónustustigi sem aðrir í geiranum hafa til hliðsjónar. Meira »

Primavera

Primavera
12.6.2009 Það er eitthvað við La Primavera, sem gerir að verkum að maður leggur leið sína þangað aftur og aftur. Þetta er eitt af örfáum íslenskum veitingahúsum sem alltaf standa undir væntingum og yfirleitt meira en það. Það er ekki boðið upp á neinar flugeldasýningar eða gælt of mikið við tískustrauma í matargerð. Lykillinn að velgengni La Primavera er stöðugleiki, hæg en örugg þróun í matargerðinni og festa varðandi allt það sem mestu máli skiptir. Þannig hefur verið hægt að treysta á að sjá sömu andlitin í eldhúsi og veitingasal allt frá því að staðurinn var opnaður í fyrsta húsnæði sínu í Húsi verslunarinnar fyrir um áratug. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á ítalska matargerð eins og hún gerist best, sígilda en með nútímalegum blæ. og greinilegt að með árunum hefur eldhúsið verið undir sterkum áhrifum frá veitingahúsum á borð við River Café í London. Ekki spillir húsnæðið heldur fyrir og staðurinn sómir sér vel á efri hæð Egils Jacobsens-hússins í Austurstræti. Þetta fallega húsnæði þrengir þó einnig að staðnum, t.d. er barinn í miðjum matsalnum og fatahengið í holi við snyrtiaðstöðu. Meira »

Ó Sushi

Ó Sushi
11.6.2009 Það hefði mátt ætla að á fáum stöðunum í heiminum væru betri aðstæður til að reka góðan sushi-stað en á Íslandi, að minnsta kosti hvað hráefnið varðar. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að starfrækja slíka staði eða jafnvel fjöldaframleiðslu á sushi með misgóðum árangri Stundum hefur tekist mjög vel til og smátt og smátt hefur líka tekist að venja landann á að meta þessa fíngerðu japönsku framsetningu á fiski og hrísgrjónum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar