Mars og Venus

Mars og Venus

Það er líklega vart hægt að hugsa sér ólíkari staði en Hamborgarabúlluna og matstofuna Maður lifandi. Það eina sem þessir staðir eiga sameiginlegt er að þeir eru "skyndibitastaðir" í þeirri merkingu að ekki þarf að bíða lengi eftir matnum og ekki þarf langan tíma til að borða hann. Alla rétti er sömuleiðis hægt að taka með sér heim eða í vinnuna og í báðum tilvikum eru staðirnir orðnir að eins konar "keðjum" þ.e. nokkur útibú eru starfrækt.

Að öðru leyti eru þeir andstæður. Og þó, kannski eiga þeir eitt enn sameiginlegt, þeir standa sig báðir með prýði í sínu hlutverki.

Það voru nokkur tíðindi er Hamborgarabúllan var opnuð við Geirsgötu um páskahelgina 2004. Segja má að Tómas Tómasson eða Tommi sé guðfaðir íslenska hamborgarans. Margir hafa eflaust snætt sinn fyrsta hamborgara á sínum tíma í Tommaborgurum við Lækjargötu en Tommaborgarar urðu smám saman að fyrstu alíslensku hamborgarakeðjunni. Það sama virðist vera að gerast með nýjasta afkvæmi hans - Hamborgarabúlluna - en hana er nú víðar.

Hin eina sanna Hamborgarabúlla er hins vegar sú upprunalega við Geirsgötu og hún stendur svo sannarlega undir nafni. Húsið er með þeim sérkennilegri í Reykjavík og var upprunalega byggt sem vigtarhús og kaffistofa fyrir höfnina. Þarna voru lengi reknar kaffihús en smám saman fór húsið í niðurníðslu og var vægast sagt í hrörlegu ástandi er því var breytt í hamborgarastað. Vigtarhúsið gamla er friðað og hefur fengið að halda sér að mestu í upprunalegri mynd. Gólfið er gróft og allar innréttingar einfaldar og um margt sérstakar - t.d. "jólaskreytingaljósin" í loftinu sem mynda eins konar stjörnuhimin yfir gesti.

Hamborgarabúllan er sannkallaður amerískur "diner" og stemmningin einstök. Það er frekar dimmt og drungalegt í þröngu rýminu, steikingarlyktin megn í loftinu og brakið af hamborgurum á pönnunni keppir við háværa tónlistina. Tónlistarvalið er saga út af fyrir sig, þegar inn er komið er kannski verið að spila jazz, næsta lag er með bítlunum, þá kemur brasilískur samba og að því búnu eitthvað sem hefði getað sómað sér sem framlag Þjóðverja í Eurovision fyrir 2-3 áratugum.

Matseðillinn er einfaldur - lítill, stór eða tvöfaldur hamborgari og franskar og sósa með. Nýlega bættist einnig við ein af samlokunum vinsælu frá Hard Rock-tímabili Tómasar.

En í þessum einfaldleika felst snilldin. Þetta er staður sem býður upp á pottþétta, ramm-ameríska hamborgara. Basta og búið. Brauðið, sem oft er veikasti hlekkur íslenskra hamborgara, er fínt og á borgaranum kál, tómatur, tómatsósa, sinnep og majonnes. Ostur ef menn kjósa en hann er að mínu mati það síðsta á borgaranum.

Tommi hefur með Hamborgarabúllunni sannað á ný að engum er hægt að treysta betur fyrir borgaranum en honum.

Á Manni lifandi er hins vegar gengið inn í aðra veröld. Heilsusemin æpir á mann. Í versluninni er hægt að kaupa alls konar heilsusamlegan og lífrænan varning, staðurinn er bjartur og ljós. Hægt er að kaupa margvíslega rétti - í boði er salatbar (einn sá besti á landinu)  en einnig tilbúnir réttir til að kippa með sér, bökur og svo auðvitar réttur dagsins.

Styrkur Maður lifandi er fjölbreytnin og frábær hráefni. Matargerðin er alla jafna spennandi, réttirnir bragðmiklir og kokkarnir hika ekki við að hafa bragð af matnum með frumlegri notkun krydda. Stundum eru réttir dagsins ættaðir frá Evrópu, aðra daga rómönsku Ameríku, stundum eru afrísk eða asísk áhrif áberandi. Á diskinum er ávallt góð blanda af heitu og köldu, stökku og mjúku, baunum, grjónum, hnetum, ávöxtum og margvíslegu grænmeti og það verður að segjast eins og er að ég hef aldrei verið óánægður með matinn.

Ekki síst er ágætt að þetta er ekki hreinræktaður grænmetisstaður - stundum er t.d. kjúklingakjöt í réttunum.

Eitt af því sem vakið hefur athygli mína er hversu kynjaskiptingin er ólík á þessum tveimur stöðum. Á Manni lifandi eru konur alla jafna í miklum meirihluta en á Hamborgarabúllunni eru karlar ríkjandi. Þetta endurspeglast einnig í því lesefni sem í boði er fyrir gesti. Glanstímarit liggja á víð og dreif í Manni lifandi en á Búllunni er hægt að glugga í gömul dagblöð og þykkan doðrant sem ber heitið "The World's Best Pub Jokes" eða bestu pöbbabrandarar veraldar - bæði bindin.

Í nýlegri heimsókn á Hamborgarabúlluna var engin kona meðal gesta framan af en úr því rættist þó um það leyti er ég var að yfirgefa staðinn. Það reyndist hins vegar vera erlendur ferðamaður að leita að sushi-staðnum í nágrenninu.


Hamborgarabúllan
Geirsgötu 1
Traustir borgarar í sérstæðu umhverfi
Stór ostborgari, franskar og sósa kosta um 900 krónur


Maður lifandi
Borgartúni 24
Fjölbreytt og bragðgott heilsufæði í björtu og þægilegu umhverfi
Réttur dagsins á 1.250 krónur og tíunda skiptið frítt ef klippikort er notað

2.0 stjörnur

Sjá einnig vinotek.is



Tapasbarinn

Tapasbarinn
30.10. Tapasbarinn í Hlaðvarpanum er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðunum í Reykjavík. Það er yfirleitt mikið að gera og gjarnan fullt út úr dyrum. Tapasmenningin spænska sem byggir á smáréttum sem gjarnan eru borðaðir við barborðið virðist eiga vel við Íslendinga. Stemmningin á Tapasbarnum er líka ansi suðræn, það er matarlykt í loftinu, angan af hvítlauk og grilluðum fisk og kjöti, líf og fjör á flestum borðum. Meira »

Kolabrautin

Kolabrautin
29.9. Það verður ekki af Kolabrautinni tekið að umgjörðin utan um hana er á heimsmælikvarða. Þótt bygging Hörpunnar hafi verið umdeild er húsið ekkert annað en listaverk. Það vakti töluverða spennu þegar tilkynnt var á sínum tíma að hjónin Leifur Kolbeinsson og Jónína Kristjánsdóttir, áður veitingamenn á Primavera, og Jóhannes Stefánsson, oft kenndur við Múlakaffi, myndu taka að sér veitingarekstur í hinu nýja og glæsilega tónlistarhúsi. Meira »

Argentína steikhús

Argentína steikhús
21.3. Það eru nokkrir veitingastaðir orðnir að eins konar fasta í íslensku veitingahúsalífi.  Steikhúsið Argentína við Barónsstíg er óneitanlega í þeim flokki. Argentína er einhvern veginn alltaf söm við sig og alltaf jafnvinsæl meðal gesta. Meira »

Austur Steikhús

Austur Steikhús
1.7.2010 Austur Steikhús heitir veitingahúsið sem opnaði fyrr á árinu í fyrrum aðalútibúi gamla Búnaðarbankans við Austurstræti. Nafnið vísar væntanlega jafnt til staðsetningarinnar sem þess að eitthvað er sótt til Austurlanda í matargerðinni. Meira »

Fiskifélagið

Fiskifélagið
2.11.2009 Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar Fiskifélagið opnaði dyr sínar í sumar fyrir gestum. Ljóst var að staðurinn yrði að marka sér sérstöðu á þessari sillu matargerðarinnar. Meira »

101

101
23.9.2009 Hótelið 101 markaði ákveðin tímamót þegar það opnaði dyr sínar í mars 2003. Það var fyrsta íslenska boutique-hótelið. Lítið, hrikalega hipp og kúl og hugsað fyrir hverju einasta smáatriði í hönnun og skreytingum. Það var greinilegt að nýtt Ísland var að fæðast, alþjóðlegt og spennandi og … jæja það héldum við að minnsta kosti þá. Meira »

Dill

Dill
16.8.2009 Veitingastaðurinn Dill hefur vissulega töluverða forgjöf á marga nýja staði. Það er ekki á hverjum degi sem að menn fá tækifæri til að opna veitingastað í húsi hönnuðu af sjálfum Alvari Aalto. Meira »

Orange

Orange
4.8.2009 Í gegnum glerhurðina sem leiðir úr matsalnum inn í eldhúsið  má sjá mann íklæddan hvítum sloppi með skíðagleraugu og risavaxna slaufu burðast með þunga kúta.  Sjá má gesti gauta spurulum augum hvor til annars? Hvar erum við eiginlega stödd? Er þetta eldhús eða er þetta tilraunastofa? Meira »

Heimilislegur Laugaás

Heimilislegur Laugaás
23.7.2009 Það eru þrír áratugir liðnir frá því að veitingahúsið Laugaás opnaði fyrst dyr sínar fyrir gestum. Þau eru ekki mörg íslensku veitingahúsin sem geta státað af svo langri tilveru hvað þá að árin hafi liðið án þess að breytingar yrðu á rekstrarhaldi og yfirmatreiðslumanni. Meira »

Hótel Holt

Hótel Holt
12.6.2009 Holtið hefur allt frá upphafi haft sérstöðu í hópi íslenskra veitingahúsa. Það hefur verið ákveðinn fasti, vin þar sem hefðir og gæði eru í hávegum höfð. Holtið hefur verið uppeldisstöð margra okkar bestu matreiðslumanna og þjóna. Það hefur verið leiðandi í þróun matreiðslu og vínmenningar á veitingahúsum. Vissulega hafa sum tímabil í sögu Holtsins verið betri en önnur en alla jafna hefur það verið það viðmið þegar kemur að gæðum og þjónustustigi sem aðrir í geiranum hafa til hliðsjónar. Meira »

Primavera

Primavera
12.6.2009 Það er eitthvað við La Primavera, sem gerir að verkum að maður leggur leið sína þangað aftur og aftur. Þetta er eitt af örfáum íslenskum veitingahúsum sem alltaf standa undir væntingum og yfirleitt meira en það. Það er ekki boðið upp á neinar flugeldasýningar eða gælt of mikið við tískustrauma í matargerð. Lykillinn að velgengni La Primavera er stöðugleiki, hæg en örugg þróun í matargerðinni og festa varðandi allt það sem mestu máli skiptir. Þannig hefur verið hægt að treysta á að sjá sömu andlitin í eldhúsi og veitingasal allt frá því að staðurinn var opnaður í fyrsta húsnæði sínu í Húsi verslunarinnar fyrir um áratug. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á ítalska matargerð eins og hún gerist best, sígilda en með nútímalegum blæ. og greinilegt að með árunum hefur eldhúsið verið undir sterkum áhrifum frá veitingahúsum á borð við River Café í London. Ekki spillir húsnæðið heldur fyrir og staðurinn sómir sér vel á efri hæð Egils Jacobsens-hússins í Austurstræti. Þetta fallega húsnæði þrengir þó einnig að staðnum, t.d. er barinn í miðjum matsalnum og fatahengið í holi við snyrtiaðstöðu. Meira »

Ó Sushi

Ó Sushi
11.6.2009 Það hefði mátt ætla að á fáum stöðunum í heiminum væru betri aðstæður til að reka góðan sushi-stað en á Íslandi, að minnsta kosti hvað hráefnið varðar. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að starfrækja slíka staði eða jafnvel fjöldaframleiðslu á sushi með misgóðum árangri Stundum hefur tekist mjög vel til og smátt og smátt hefur líka tekist að venja landann á að meta þessa fíngerðu japönsku framsetningu á fiski og hrísgrjónum. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar