Fiskmarkaðurinn

Fiskmarkaðurinn

Það er asískt andrúmsloft sem tekur á móti manni þegar gengið er inn úr íslenskri nepjunni í hitabeltisveröld Fiskmarkaðarins. Í húsinu við Aðalstræti, sem áður hýsti Maru og þar áður Stick n'Sushi, er búið að skapa hlýlegt og framandi umhverfi sem sækir innblástur jafnt til Indókína sem japanskrar naumhyggju.
Teymið á bak við Fiskmarkaðinn er um margt kunnuglegt frá Sjávarkjallaranum og vissulega má merkja greinileg tengsl í stíl og matargerð við þann stað, enda var Hrefna Sætran matreiðslumaður í Sjávarkjallaranum áður en hún stofnaði Fiskmarkaðinn. Segja má að hún sé fyrsti kvenstjörnukokkur Íslands.

Fiskmarkaðurinn er þó langt í frá einhver eftirlíking af Sjávarkjallaranum. Hann hefur sín eigin einkenni og stíl þótt ræturnar séu þær sömu: Nútímalegt og svalt umhverfi, afslöppuð en góð þjónusta og matargerð sem sækir innblástur til ólíkra svæða Asíu jafnt sem Evrópu í aðferðum og hráefni.

Til að upplifa Fiskmarkaðinn er best að velja smökkunarmatseðilinn. Hann er ekkert óhóflega dýr miðað við hvað er boði - kostar 8.900 krónur - og gefur gestum kost á að smakka á mjög fjölbreyttu úrvali rétta af matseðlinum.

Farið var í gegnum þann seðil í nokkrum heimsóknum og aldrei var hann nákvæmlega eins í tvö skipti. Sumt var þó sem betur fer alltaf til staðar. Gott nýbakað brauð með mismunandi tegundum aïoli, í síðustu heimsókn karrí-kókos, og léttsteiktir baunabelgir sem er ágætis dægrastytting að tæma á meðan beðið er eftir næsta rétti.

Máltíðin er þannig upp byggð að fyrst streyma inn litlir réttir sem gestir skipta á milli sín, nokkrir munnbitar á mann. Þá kemur sushi sem milliréttur, aðalréttir og eftirréttir. Réttirnir eru allir settir á mitt borðið og gestir skammta sér síðan á eigin disk með prjónunum.

Einn af þeim réttum sem oftast er hægt að ganga að sem vísum er kóngakrabbi. Heljarinnar krabbaklær eru bornar fram grillaðar með mildu chilimajonesi. Þetta er réttur sem er í senn upplifun fyrir augað sem bragðlaukana. Krabbakjötið milt og gott og búið að skera úr skelinni þannig að tiltölulega auðvelt er að veiða það upp með prjónunum.

Biti af hjartarkjöti vafinn í lauf með litlu spjóti og foie gras var mildur og þægilegur munnbiti, salat með ávöxtum og cashew-hnetum kannski ekki hápunktur kvöldsins en féll engu að síður vel að heildinni.

Sushi er mjög vel gert á Fiskmarkaðnum, með því betra sem fengist hefur hér á landi. Alltaf fjölbreytilegt, jafnt maki sem nigiri, við fengum til dæmis í einni heimsókn virkilega gott smokkfisks maki en einnig túnfisks- og laxasashimi sem var svo ferskt og ljúft að biðja varð um ábót. Allt er þetta borið fram með hefðbundnum hætti ásamt soja, wasabi og tveimur tegundum af engifer en jafnframt margvíslegu japönskættuðu skrauti, sumu ætu, öðru ekki.

Hægt er að fá saké með sushi-réttunum en ég get þó varla mælt með því, það saké sem hefur verið í boði hefur ekki verið nógu gott. Í eitt skipti var boðið upp á freyðandi saké sem tekið var fram að væri frá „japönsku ölpunum". Það var ekki betra fyrir það.

Lax var létteldaður og safaríkur og líkt og flestir fiskréttirnir grillaður á Robata-grillinu en í kringum það geta gestir raunar einnig setið og borðað að japönskum sið.

Síðasti aðalrétturinn var andarbringa sem kom niðursneidd, medium steikt og í hoi-sin sósu. Með henni eins konar „waldorf" úr sætum kartöflum og gúrkum sem mynduðu gott mótvægi við austurlenska kryddið.

Eftirréttirnir voru margir og hver öðrum betri: Heit súkkulaðikaka með ís, tvær sorbet-tegundir með fersku og frískandi ávaxtabragði, heitt hvítt súkkulaði og creme brulée. Ekki síður voru fersku ávextirnir með góðir, jafnt örsmáir ananasar, fersk litka- og skógarber.

Vínlistinn á Fiskmarkaðnum er vel valinn og fjölbreyttur en uppsetningin er óvenjuleg að því leytinu til að víninu er ekki raðað eftir löndum og svæðum heldur flokkað eftir eiginleikum s.s. „frísklegt" eða „blómailmur". Sem getur verið gagnlegt en þó ekki ef gestir eru t.d. að leita að einhverju tilteknu, s.s. Chablis eða Sauvignon Blanc frá Nýja-Sjálandi. Þarna er að finna margs konar ágætis vín en ég hef sjálfur einstakt dálæti á hinu austurríska Riesling Am Berg frá framleiðandanum Pfaffl sem er hreinasta sælgæti og fellur fullkomlega að matargerð líkt og þeirri á Fiskmarkaðnum.

Á heildina litið er heimsókn á Fiskmarkaðinn mjög skemmtileg upplifun. Staðurinn býður ekki einungis upp á margbreytilega og vandaða matargerð heldur er jafnframt hægt að njóta matarins í mismunandi andrúmslofti, allt eftir því hvað hugurinn girnist. Þjónusta var ávallt fumlaus og vandvirknisleg, nær aldrei feilpúst í matargerðinni og allir gengu ávallt út með bros á vör. Hvað er hægt að biðja um meira?

4.0 stjörnur

Sjá einnig vinotek.is



Grillmarkaðurinn

Grillmarkaðurinn
6.5. Það er rétt um ár síðan að Grillmarkaðurinn opnaði dyr sínar og staðurinn hefur fest sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðum landsins. Staðsetningin gæti auðvitað ekki verið betri í nýbyggingunum á horni Lækjargötu og Austurstrætis sem voru reistar í kjölfar bruna árið 2007. Meira »

Tapasbarinn

Tapasbarinn
30.10. Tapasbarinn í Hlaðvarpanum er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðunum í Reykjavík. Það er yfirleitt mikið að gera og gjarnan fullt út úr dyrum. Tapasmenningin spænska sem byggir á smáréttum sem gjarnan eru borðaðir við barborðið virðist eiga vel við Íslendinga. Stemmningin á Tapasbarnum er líka ansi suðræn, það er matarlykt í loftinu, angan af hvítlauk og grilluðum fisk og kjöti, líf og fjör á flestum borðum. Meira »

Kolabrautin

Kolabrautin
29.9. Það verður ekki af Kolabrautinni tekið að umgjörðin utan um hana er á heimsmælikvarða. Þótt bygging Hörpunnar hafi verið umdeild er húsið ekkert annað en listaverk. Það vakti töluverða spennu þegar tilkynnt var á sínum tíma að hjónin Leifur Kolbeinsson og Jónína Kristjánsdóttir, áður veitingamenn á Primavera, og Jóhannes Stefánsson, oft kenndur við Múlakaffi, myndu taka að sér veitingarekstur í hinu nýja og glæsilega tónlistarhúsi. Meira »

Argentína steikhús

Argentína steikhús
21.3.2011 Það eru nokkrir veitingastaðir orðnir að eins konar fasta í íslensku veitingahúsalífi.  Steikhúsið Argentína við Barónsstíg er óneitanlega í þeim flokki. Argentína er einhvern veginn alltaf söm við sig og alltaf jafnvinsæl meðal gesta. Meira »

Austur Steikhús

Austur Steikhús
1.7.2010 Austur Steikhús heitir veitingahúsið sem opnaði fyrr á árinu í fyrrum aðalútibúi gamla Búnaðarbankans við Austurstræti. Nafnið vísar væntanlega jafnt til staðsetningarinnar sem þess að eitthvað er sótt til Austurlanda í matargerðinni. Meira »

Fiskifélagið

Fiskifélagið
2.11.2009 Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar Fiskifélagið opnaði dyr sínar í sumar fyrir gestum. Ljóst var að staðurinn yrði að marka sér sérstöðu á þessari sillu matargerðarinnar. Meira »

101

101
23.9.2009 Hótelið 101 markaði ákveðin tímamót þegar það opnaði dyr sínar í mars 2003. Það var fyrsta íslenska boutique-hótelið. Lítið, hrikalega hipp og kúl og hugsað fyrir hverju einasta smáatriði í hönnun og skreytingum. Það var greinilegt að nýtt Ísland var að fæðast, alþjóðlegt og spennandi og … jæja það héldum við að minnsta kosti þá. Meira »

Dill

Dill
16.8.2009 Veitingastaðurinn Dill hefur vissulega töluverða forgjöf á marga nýja staði. Það er ekki á hverjum degi sem að menn fá tækifæri til að opna veitingastað í húsi hönnuðu af sjálfum Alvari Aalto. Meira »

Orange

Orange
4.8.2009 Í gegnum glerhurðina sem leiðir úr matsalnum inn í eldhúsið  má sjá mann íklæddan hvítum sloppi með skíðagleraugu og risavaxna slaufu burðast með þunga kúta.  Sjá má gesti gauta spurulum augum hvor til annars? Hvar erum við eiginlega stödd? Er þetta eldhús eða er þetta tilraunastofa? Meira »

Heimilislegur Laugaás

Heimilislegur Laugaás
23.7.2009 Það eru þrír áratugir liðnir frá því að veitingahúsið Laugaás opnaði fyrst dyr sínar fyrir gestum. Þau eru ekki mörg íslensku veitingahúsin sem geta státað af svo langri tilveru hvað þá að árin hafi liðið án þess að breytingar yrðu á rekstrarhaldi og yfirmatreiðslumanni. Meira »

Mars og Venus

Mars og Venus
30.6.2009 Það er líklega vart hægt að hugsa sér ólíkari staði en Hamborgarabúlluna og matstofuna Maður lifandi. Það eina sem þessir staðir eiga sameiginlegt er að þeir eru "skyndibitastaðir" í þeirri merkingu að ekki þarf að bíða lengi eftir matnum og ekki þarf langan tíma til að borða hann. Alla rétti er sömuleiðis hægt að taka með sér heim eða í vinnuna og í báðum tilvikum eru staðirnir orðnir að eins konar "keðjum" þ.e. nokkur útibú eru starfrækt. Meira »

Hótel Holt

Hótel Holt
12.6.2009 Holtið hefur allt frá upphafi haft sérstöðu í hópi íslenskra veitingahúsa. Það hefur verið ákveðinn fasti, vin þar sem hefðir og gæði eru í hávegum höfð. Holtið hefur verið uppeldisstöð margra okkar bestu matreiðslumanna og þjóna. Það hefur verið leiðandi í þróun matreiðslu og vínmenningar á veitingahúsum. Vissulega hafa sum tímabil í sögu Holtsins verið betri en önnur en alla jafna hefur það verið það viðmið þegar kemur að gæðum og þjónustustigi sem aðrir í geiranum hafa til hliðsjónar. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar