Argentína steikhús

Argentína steikhús

Það eru nokkrir veitingastaðir orðnir að eins konar fasta í íslensku veitingahúsalífi.  Steikhúsið Argentína við Barónsstíg er óneitanlega í þeim flokki. Argentína er einhvern veginn alltaf söm við sig og alltaf jafnvinsæl meðal gesta.


Síðast þegar að ég fjallaði um Argentínu fyrir nokkrum árum var niðurstaðan sú að Argentína ætti eiginlega að heita Steikhús Íslands, svo rótgróið væri þetta veitingahús orðið í þjóðarvitundinni. Heimsókn á Argentínu hefst strax á Barónsstígnum þar sem ilmurinn af nautakjöti á grillinu berst út á götu með loftræstingunni. Eftir að hafa gengið í gegnum undirgöngin inn að kunnuglegu anddyrinu er gestum boðið að setjast við barinn þar sem hægt er að ylja sér við arineldinn.

Argentína er steikhús og um þau gilda sérstök lögmál, þangað fara flestir gestir í einum ákveðnum tilgangi - að fá góða steik!

Forréttir eru meira forleikur að kjötinu en forleikurinn skiptir auðvitað sem slíkur máli. Ristuð risahörpuskel með furuhnetupesto var mild - allt ágætlega útfært en ekki eftirminnilegt. Þegar kemur að Carpaccio er Argentína hins vegar í essinu sínu, hvort sem það er klassískt með parmesan, klettasalati og olíu eða þá með bragðmiklu wasabi og aioli sem gjörbreytir réttinum.

Steikhús eru hins vegar auðvitað dæmd af steikunum og þar brillerar Argentína. Einhver besta steik - ef ekki sú besta - sem hægt er að fá á landinu er Porterhousesteik Argentínu. Þetta er þykk og mikil steik sem dugar fyrir tvo hið minnsta, jafnvel þótt um tvo hrausta karlmenn sé að ræða. Steikin var fullkomlega elduð í tveimur heimsóknum, mitt á milli rare og medium-rare eins og beðið var um. Skorið meðfram beininu fyrir grillun til að tryggja að hún eldist sem jafnast.

Meðlætið hefur ekki tekið miklum breytingum í gegnum árin. Bökuð kartafla með mjög góðri kaldri hvítlaukssósu og frekar daufu chimicurri. Hiins vegar var okkur einnig boðið upp á að reyna steikina með truffluoliu og reyndist hún falla vel að steikinni - jafnvel betur en hinar sósurnar tvær.

Sígildasti eftirrétturinner Valrhona-súkkulaðitertan, hún var traust og mjúk með góðum blautum súkkulaðikjarna og ís. Pavlova var biti af mjúkum marengs með berjasósu. Í báðum tilvikum traustir en ekki stórkostlegir réttir.

Þjónusta á Argentínu er yfirleitt góð og það er passað vel upp á gesti frá því að þeir mæta og þangað til þeir fara enda er það - ásamt steikunum - líklega helsta ástæða þess hversu fastan sess Argentína á í hugum þjóðarinnar.

Vínlistinn hefur löngum verið nokkuð metnaðarfullur á Argentínu enda á fátt betur saman en rautt steik og rautt vín. Kreppan hefur vissulega sett mark sitt á seðilinn og það er ekki eins mikið um flott vín og fyrir kreppu. Það er þó hægt að fá nokkur mjög fín vín og bestu kaupin - þegar horft er á muninn á "búðarverði" og "veitingahúsaverði" sýndist mér vera í vínum rétt yfir tíu þúsund kallinn. Þar er hægt að gera fantagóð kaup - t.d. Lehmann Mentor og Ciacci Brunello.


 

4.0 stjörnur

Sjá einnig vinotek.is



Grillmarkaðurinn

Grillmarkaðurinn
6.5. Það er rétt um ár síðan að Grillmarkaðurinn opnaði dyr sínar og staðurinn hefur fest sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðum landsins. Staðsetningin gæti auðvitað ekki verið betri í nýbyggingunum á horni Lækjargötu og Austurstrætis sem voru reistar í kjölfar bruna árið 2007. Meira »

Tapasbarinn

Tapasbarinn
30.10. Tapasbarinn í Hlaðvarpanum er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðunum í Reykjavík. Það er yfirleitt mikið að gera og gjarnan fullt út úr dyrum. Tapasmenningin spænska sem byggir á smáréttum sem gjarnan eru borðaðir við barborðið virðist eiga vel við Íslendinga. Stemmningin á Tapasbarnum er líka ansi suðræn, það er matarlykt í loftinu, angan af hvítlauk og grilluðum fisk og kjöti, líf og fjör á flestum borðum. Meira »

Kolabrautin

Kolabrautin
29.9. Það verður ekki af Kolabrautinni tekið að umgjörðin utan um hana er á heimsmælikvarða. Þótt bygging Hörpunnar hafi verið umdeild er húsið ekkert annað en listaverk. Það vakti töluverða spennu þegar tilkynnt var á sínum tíma að hjónin Leifur Kolbeinsson og Jónína Kristjánsdóttir, áður veitingamenn á Primavera, og Jóhannes Stefánsson, oft kenndur við Múlakaffi, myndu taka að sér veitingarekstur í hinu nýja og glæsilega tónlistarhúsi. Meira »

Austur Steikhús

Austur Steikhús
1.7.2010 Austur Steikhús heitir veitingahúsið sem opnaði fyrr á árinu í fyrrum aðalútibúi gamla Búnaðarbankans við Austurstræti. Nafnið vísar væntanlega jafnt til staðsetningarinnar sem þess að eitthvað er sótt til Austurlanda í matargerðinni. Meira »

Fiskifélagið

Fiskifélagið
2.11.2009 Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar Fiskifélagið opnaði dyr sínar í sumar fyrir gestum. Ljóst var að staðurinn yrði að marka sér sérstöðu á þessari sillu matargerðarinnar. Meira »

101

101
23.9.2009 Hótelið 101 markaði ákveðin tímamót þegar það opnaði dyr sínar í mars 2003. Það var fyrsta íslenska boutique-hótelið. Lítið, hrikalega hipp og kúl og hugsað fyrir hverju einasta smáatriði í hönnun og skreytingum. Það var greinilegt að nýtt Ísland var að fæðast, alþjóðlegt og spennandi og … jæja það héldum við að minnsta kosti þá. Meira »

Dill

Dill
16.8.2009 Veitingastaðurinn Dill hefur vissulega töluverða forgjöf á marga nýja staði. Það er ekki á hverjum degi sem að menn fá tækifæri til að opna veitingastað í húsi hönnuðu af sjálfum Alvari Aalto. Meira »

Orange

Orange
4.8.2009 Í gegnum glerhurðina sem leiðir úr matsalnum inn í eldhúsið  má sjá mann íklæddan hvítum sloppi með skíðagleraugu og risavaxna slaufu burðast með þunga kúta.  Sjá má gesti gauta spurulum augum hvor til annars? Hvar erum við eiginlega stödd? Er þetta eldhús eða er þetta tilraunastofa? Meira »

Heimilislegur Laugaás

Heimilislegur Laugaás
23.7.2009 Það eru þrír áratugir liðnir frá því að veitingahúsið Laugaás opnaði fyrst dyr sínar fyrir gestum. Þau eru ekki mörg íslensku veitingahúsin sem geta státað af svo langri tilveru hvað þá að árin hafi liðið án þess að breytingar yrðu á rekstrarhaldi og yfirmatreiðslumanni. Meira »

Mars og Venus

Mars og Venus
30.6.2009 Það er líklega vart hægt að hugsa sér ólíkari staði en Hamborgarabúlluna og matstofuna Maður lifandi. Það eina sem þessir staðir eiga sameiginlegt er að þeir eru "skyndibitastaðir" í þeirri merkingu að ekki þarf að bíða lengi eftir matnum og ekki þarf langan tíma til að borða hann. Alla rétti er sömuleiðis hægt að taka með sér heim eða í vinnuna og í báðum tilvikum eru staðirnir orðnir að eins konar "keðjum" þ.e. nokkur útibú eru starfrækt. Meira »

Hótel Holt

Hótel Holt
12.6.2009 Holtið hefur allt frá upphafi haft sérstöðu í hópi íslenskra veitingahúsa. Það hefur verið ákveðinn fasti, vin þar sem hefðir og gæði eru í hávegum höfð. Holtið hefur verið uppeldisstöð margra okkar bestu matreiðslumanna og þjóna. Það hefur verið leiðandi í þróun matreiðslu og vínmenningar á veitingahúsum. Vissulega hafa sum tímabil í sögu Holtsins verið betri en önnur en alla jafna hefur það verið það viðmið þegar kemur að gæðum og þjónustustigi sem aðrir í geiranum hafa til hliðsjónar. Meira »

Primavera

Primavera
12.6.2009 Það er eitthvað við La Primavera, sem gerir að verkum að maður leggur leið sína þangað aftur og aftur. Þetta er eitt af örfáum íslenskum veitingahúsum sem alltaf standa undir væntingum og yfirleitt meira en það. Það er ekki boðið upp á neinar flugeldasýningar eða gælt of mikið við tískustrauma í matargerð. Lykillinn að velgengni La Primavera er stöðugleiki, hæg en örugg þróun í matargerðinni og festa varðandi allt það sem mestu máli skiptir. Þannig hefur verið hægt að treysta á að sjá sömu andlitin í eldhúsi og veitingasal allt frá því að staðurinn var opnaður í fyrsta húsnæði sínu í Húsi verslunarinnar fyrir um áratug. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á ítalska matargerð eins og hún gerist best, sígilda en með nútímalegum blæ. og greinilegt að með árunum hefur eldhúsið verið undir sterkum áhrifum frá veitingahúsum á borð við River Café í London. Ekki spillir húsnæðið heldur fyrir og staðurinn sómir sér vel á efri hæð Egils Jacobsens-hússins í Austurstræti. Þetta fallega húsnæði þrengir þó einnig að staðnum, t.d. er barinn í miðjum matsalnum og fatahengið í holi við snyrtiaðstöðu. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar