Tapasbarinn

Tapasbarinn

Tapasbarinn í Hlaðvarpanum er fyrir löngu búinn að festa sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðunum í Reykjavík. Það er yfirleitt mikið að gera og gjarnan fullt út úr dyrum. Tapasmenningin spænska sem byggir á smáréttum sem gjarnan eru borðaðir við barborðið virðist eiga vel við Íslendinga. Stemmningin á Tapasbarnum er líka ansi suðræn, það er matarlykt í loftinu, angan af hvítlauk og grilluðum fisk og kjöti, líf og fjör á flestum borðum.

Það er vissulega hægt að sitja við barborðið á Tapasbarnum og fá sér tapas og glas af þurru fino en flestir gestir sitja við borð eða bása. Staðurinn leynir á sér og það komast ansi margir fyrir.

Þrátt fyrir suðræna stemmninguna eru tapas-réttirnir ekki hreinræktað spænskir, heldur einskonar blanda af íslenskum, spænskum og jafnvel ítölskum áhrifum. Úrvalið er mikið, skelfiskur, saltfiskur og rammíslenskt hráefni á borð við lunda og hrefnu, sem líklega finnst ekki á einum einasta tapasbar á Spáni, eða utan Íslands þess vegna. Líklega er þetta líka eini staðurinn í Reykjavík - eða heiminum - þar sem Sangría virkar jafnsjálfsögð og staup af ísköldu íslensku brennivíni.

Það fyrsta sem kemur á borðið er ágætis brauð með hummus og bragðmiklu og fínu ólívumauki - tapenade. Saltfiskurinn er fínn, fín og þykk stykki, vel útvötnuð og elduð. Vorum á báðum áttum hvor tapas-rétturinn væri betri, saltfiskurinn með maukuðum sætum kartöflum eða stökkri chorizo-pylsu og mildu döðlumauki. Serrano-skinka var góð með rifnum Manchego og ólívuolíu. Sömuleiðis bakaðir, sjóðheitir og sætir tómatar með basilsósu (pestó). Lambalundir komu með sýrumikilli og ágætri plómusósu, kjötið gott en hefði mátt krydda aðeins. Nautalundir meyrar og létteldaðar með .... pestó. Fínasta kjöt, en einn bitann hefði mátt sinuhreinsa betur. Einn klassískasti tapas-réttur Spánar eru Patatas Bravas, hinar voguðu kartöflur. Þarna voru þær sterkkryddaðri en ég hef fengið þær á Spáni og maður saknaði svolítið sósunnar með, en yfirleitt er það hún sem gefur hitann í réttinn. Að lokum sambland af eftirréttum þar sem meðal annars var virkilega gott crema catalana (creme brulée) og ágætis súkkulaðikaka og skyrturn með hvítu súkkulaði.

Þrátt fyrir að yfirleitt sé mjög mikið að gera gengur þjónustan hratt og örugglega fyrir sig. Það mættu margir staðir í Reykjavík, þar sem ösin er minni, taka sér skipulagið og skilvirknina á Tapasbarnum til fyrirmyndar. Og þótt starfsfólkið sé á stöðugum hlaupum er viðmótið óstressað gagnvart viðskiptavininum.

Það verður að segjast eins og er að Tapasbarnum hefur tekist afskaplega vel að íslenska spænska tapas-konseptið. Stemmningin og umgjörðin á að vera óformleg og einföld. Þetta er ekki staður fyrir brúðkaupsafmæli eða formlegan viðskiptakvöldverð heldur staður til að fara í góðum félagsskap og eiga góða stund. Ganga saddur og ánægður út.

3.5 stjörnur

Sjá einnig vinotek.is



Grillmarkaðurinn

Grillmarkaðurinn
6.5. Það er rétt um ár síðan að Grillmarkaðurinn opnaði dyr sínar og staðurinn hefur fest sig í sessi sem einn af vinsælustu veitingastöðum landsins. Staðsetningin gæti auðvitað ekki verið betri í nýbyggingunum á horni Lækjargötu og Austurstrætis sem voru reistar í kjölfar bruna árið 2007. Meira »

Kolabrautin

Kolabrautin
29.9. Það verður ekki af Kolabrautinni tekið að umgjörðin utan um hana er á heimsmælikvarða. Þótt bygging Hörpunnar hafi verið umdeild er húsið ekkert annað en listaverk. Það vakti töluverða spennu þegar tilkynnt var á sínum tíma að hjónin Leifur Kolbeinsson og Jónína Kristjánsdóttir, áður veitingamenn á Primavera, og Jóhannes Stefánsson, oft kenndur við Múlakaffi, myndu taka að sér veitingarekstur í hinu nýja og glæsilega tónlistarhúsi. Meira »

Argentína steikhús

Argentína steikhús
21.3.2011 Það eru nokkrir veitingastaðir orðnir að eins konar fasta í íslensku veitingahúsalífi.  Steikhúsið Argentína við Barónsstíg er óneitanlega í þeim flokki. Argentína er einhvern veginn alltaf söm við sig og alltaf jafnvinsæl meðal gesta. Meira »

Austur Steikhús

Austur Steikhús
1.7.2010 Austur Steikhús heitir veitingahúsið sem opnaði fyrr á árinu í fyrrum aðalútibúi gamla Búnaðarbankans við Austurstræti. Nafnið vísar væntanlega jafnt til staðsetningarinnar sem þess að eitthvað er sótt til Austurlanda í matargerðinni. Meira »

Fiskifélagið

Fiskifélagið
2.11.2009 Það var að mati margra að bera í bakkafullan lækinn að ætla að opna veitingahús í kjallara í Kvosinni þar sem áhersla væri lögð á fusion-matargerð. Þar voru þegar til staðar tveir slíkir staðir, Sjávarkjallarinn og Fiskmarkaðurinn, þegar Fiskifélagið opnaði dyr sínar í sumar fyrir gestum. Ljóst var að staðurinn yrði að marka sér sérstöðu á þessari sillu matargerðarinnar. Meira »

101

101
23.9.2009 Hótelið 101 markaði ákveðin tímamót þegar það opnaði dyr sínar í mars 2003. Það var fyrsta íslenska boutique-hótelið. Lítið, hrikalega hipp og kúl og hugsað fyrir hverju einasta smáatriði í hönnun og skreytingum. Það var greinilegt að nýtt Ísland var að fæðast, alþjóðlegt og spennandi og … jæja það héldum við að minnsta kosti þá. Meira »

Dill

Dill
16.8.2009 Veitingastaðurinn Dill hefur vissulega töluverða forgjöf á marga nýja staði. Það er ekki á hverjum degi sem að menn fá tækifæri til að opna veitingastað í húsi hönnuðu af sjálfum Alvari Aalto. Meira »

Orange

Orange
4.8.2009 Í gegnum glerhurðina sem leiðir úr matsalnum inn í eldhúsið  má sjá mann íklæddan hvítum sloppi með skíðagleraugu og risavaxna slaufu burðast með þunga kúta.  Sjá má gesti gauta spurulum augum hvor til annars? Hvar erum við eiginlega stödd? Er þetta eldhús eða er þetta tilraunastofa? Meira »

Heimilislegur Laugaás

Heimilislegur Laugaás
23.7.2009 Það eru þrír áratugir liðnir frá því að veitingahúsið Laugaás opnaði fyrst dyr sínar fyrir gestum. Þau eru ekki mörg íslensku veitingahúsin sem geta státað af svo langri tilveru hvað þá að árin hafi liðið án þess að breytingar yrðu á rekstrarhaldi og yfirmatreiðslumanni. Meira »

Mars og Venus

Mars og Venus
30.6.2009 Það er líklega vart hægt að hugsa sér ólíkari staði en Hamborgarabúlluna og matstofuna Maður lifandi. Það eina sem þessir staðir eiga sameiginlegt er að þeir eru "skyndibitastaðir" í þeirri merkingu að ekki þarf að bíða lengi eftir matnum og ekki þarf langan tíma til að borða hann. Alla rétti er sömuleiðis hægt að taka með sér heim eða í vinnuna og í báðum tilvikum eru staðirnir orðnir að eins konar "keðjum" þ.e. nokkur útibú eru starfrækt. Meira »

Hótel Holt

Hótel Holt
12.6.2009 Holtið hefur allt frá upphafi haft sérstöðu í hópi íslenskra veitingahúsa. Það hefur verið ákveðinn fasti, vin þar sem hefðir og gæði eru í hávegum höfð. Holtið hefur verið uppeldisstöð margra okkar bestu matreiðslumanna og þjóna. Það hefur verið leiðandi í þróun matreiðslu og vínmenningar á veitingahúsum. Vissulega hafa sum tímabil í sögu Holtsins verið betri en önnur en alla jafna hefur það verið það viðmið þegar kemur að gæðum og þjónustustigi sem aðrir í geiranum hafa til hliðsjónar. Meira »

Primavera

Primavera
12.6.2009 Það er eitthvað við La Primavera, sem gerir að verkum að maður leggur leið sína þangað aftur og aftur. Þetta er eitt af örfáum íslenskum veitingahúsum sem alltaf standa undir væntingum og yfirleitt meira en það. Það er ekki boðið upp á neinar flugeldasýningar eða gælt of mikið við tískustrauma í matargerð. Lykillinn að velgengni La Primavera er stöðugleiki, hæg en örugg þróun í matargerðinni og festa varðandi allt það sem mestu máli skiptir. Þannig hefur verið hægt að treysta á að sjá sömu andlitin í eldhúsi og veitingasal allt frá því að staðurinn var opnaður í fyrsta húsnæði sínu í Húsi verslunarinnar fyrir um áratug. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á ítalska matargerð eins og hún gerist best, sígilda en með nútímalegum blæ. og greinilegt að með árunum hefur eldhúsið verið undir sterkum áhrifum frá veitingahúsum á borð við River Café í London. Ekki spillir húsnæðið heldur fyrir og staðurinn sómir sér vel á efri hæð Egils Jacobsens-hússins í Austurstræti. Þetta fallega húsnæði þrengir þó einnig að staðnum, t.d. er barinn í miðjum matsalnum og fatahengið í holi við snyrtiaðstöðu. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta | f.truncatewords(15)}

Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta

Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati | f.truncatewords(15)}

Pizza með risarækjum og klettasalati

Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira
La Granja Tempranillo Garnacha 2010

La Granja Tempranillo Garnacha 2010

3 og hálf stjarna La Granja 360 er vín sem kemur frá spænska héraðinu Carinena í norðausturhluta landsins. La Granja þýðir bóndabýli á spænsku, vínið er hins vegar sveitalegt og nútímalegt í senn. Meira

Fleiri víndómar