Víndómar
|
30. desember
Chateau Sainte-Marie Le Moulin 2008
Premieres Cotes de Bordeaux er svæði á hinum svokallaða hægri bakka í Bordeaux. Það byrjar rétt suður af Bordeaux og nær að bænum Cadillac. Chateau Saint-Marie er fjölskylduvínhús sem hefur verið í eigu Dupuch-Mondon-fjölskyldunnar frá því um miðja síðustu öld. Ekran Le Moulin var keypt árið 2005.
Þetta er hinn prýðilegasti Bordeaux, rifs og sólber í nefi svolítið grænt, létt, þægilegt með krydduðum sólberjaávexti í munni, viður. Gefið því smá tíma til að opna sig, hálftíma, klukkutíma. Það borgar sig.
2.298 krónur.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





Prenta uppskrift

















