Víndómar
|
22. janúar
Montes Cabernet-Carmenere 2010
Þetta rauðvín frá Montes í Chile er blanda úr þrúgunum Cabernet Sauvignon og Carmenere en sú síðarnefnda er að verða eins konar "þjóðarþrúga" Chile þó svo að hún eigi rætur sínar að rekja til Frakklands.
Vínið er nokkuð dökkt á lit, það hefur þykka, feita angan, af þroskuðum, allt að því sultuðum, dökkum ávexti, plómum og sólberjum. Dökkt súkkulaði, vanilla og mikil, allt að því ýkt, angan af myntu.
1.999 krónur.
Leit að uppskriftum og greinum
Lambakótilettur með kúrbít, ólívum og feta
Hér eru það Miðjarðarhafsáhrifin sem eru ríkjandi, jafnvel svolítið grískur fílingur. Meira
Pizza með risarækjum og klettasalati
Þessi pizza er tilvalin sem puttamatur, skorin niður í litla bita, þótt auðvitað geti hún líka verið heil máltíð eða ... Meira





Prenta uppskrift
















