Cono Sur Cabernet Sauvignon 2008
Cono Sur er með framsæknustu framleiðendum Chile. Fyrirtækið sem var stofnað árið 1993 hefur haft forystu um margs kyns tækninýjungar , áherslu á umhverfismál og kolefnisjöfnun og í þróun nýrra framleiðslusvæða. Ein fimm vín úr grunnlínu Cono Sur bættust við vínúrval vínbúðanna nú um síðustu mánaðamót.
Cono Sur Cabernet Sauvignon 2008 er létt og kryddað, í nefi bláberja og blómaangan sem og nýbökuð jólakaka. Vínið hefur ungt, ferskt og þægilegt yfirbragð í munni.
Með grillkjöti og kjúkling.
1.799 krónur
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira






















