Benchmark Shiraz 2008
Þessi suður-ástralski Shiraz frá Suður-Ástralíu er í essinu sínu núna. Ég smakkaði hann í fyrra og fannst þá 2008 árgangurinn full ungur og hrár. Núna blómstrar hann hins vegar.
Þetta er þykkur og kraftmikill Shiraz á la Australía, dúndrandi lakkrís og leður, haugar af súkkulaði í bland við súrsætan sólberjaávöxt og meira að segja smá tannín sem bíta. Þetta er nokkuð áfengt vín, heil 14,5%, sem birtist í sætri og þægilegri "skósvertu"-angan.
En þessi Shiraz þarf svolítið kröftugan mat. Reynið með grilluðu kjöti og gjarnan BBQ-sósu og hví ekki réttum á borð við Osso Bucco.
Frábær kaup á 1.850 krónur
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira






















