Wachauer Gruner Veltliner 2008
Þetta hvítvín frá austurríska framleiðandanum Reiner Weiss er kennt við Wachau sem er eitt þekktasta víngerðarsvæði Austurríkis og liggur upp af Dóná. Þrúgan er Gruner Veltliner, sem er eitt helsta flaggskip austurrískrar víngerðar, enda einstaklega góð.
Wachauer Gruner Veltliner 2008 er nokkuð arómatískt, líkt og gjarnan er um vín úr þessari þrúgu. Rósir og kryddjurtir í nefi ásamt ljósum ávexti, ilmsápa og svo hvíti piparinn sem er svo dæmigerður fyrir þessa þrúgu blandast saman við hvítt súkkulaði í nefi og munni. Vínið hefur ágætis fyllingu og sýru til að gefa því ferskleika.
Fjölhæft matarvín. Reynið með t.d. indverskum Bengal-kjúklingi eða Parmesanfisk.
2.490 krónur. Góð kaup.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira





















