Montes í Chile hafa löngum notið mikilla vinsælda hér á landi enda er hér á ferðinni eitt vandaðasta vínhús landsins. Ske " />

Montes Cabernet Sauvignon 2008

Montes Cabernet Sauvignon 2008

Vínin frá Montes í Chile hafa löngum notið mikilla vinsælda hér á landi enda er hér á ferðinni eitt vandaðasta vínhús landsins. Skemmst er að minnast að Carmenere-vínið Purple Angel frá Montes var valið vín ársins 2009 hér á síðunni. Það eru hins vegar ekki einungis ofurvínin Purple Angel, Folly og M eða toppvínin í Alpha-línunni sem halda uppi merkinu. Ódýrari vínin frá Montes eru oftar en ekki með betri kaupum í boði.

Montes Cabernet Sauvignon 2008 er flott dæmi. Hér er á ferðinni ungur Cabernet Sauvignon, stílhreinn, bjartur og þroskaður sólberjaávöxtur, með myntu, ekvalyptus og hófstilltri, sætri eik. Hreint og beint, með staðföstum en þægilegum tannínum í munni.

1.899 krónur. Mjög góð kaup fyrir verð en samspil verðs og gæða tryggja víninu fjórðu stjörnuna.

4.0 stjörnur

Sjá einnig vinotek.is



Spy Valley Pinot Noir 2010

Spy Valley Pinot Noir 2010
8.2. Vínhúsið Spy Valley hefur verið með þeim mest spennandi á Nýja Sjálandi síðustu misserin. Í byrjun hét vínhúsið Johnson Estate enda stofnað af þeim Bryan og Jan Johnson árið 1993. Árið 2000 breyttu þau hins vegar nafninu í Spy Valley og er nafnið tilkomið vegna njósnastöðvar Bandaríkjamanna, sem er hluti af Echelon-kerfinu, í Wairau dalnum. Meira »

Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009
6.2. Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira »

Turning Leaf Zinfandel 2009

Turning Leaf Zinfandel 2009
31.1. Turning Leaf-vínin frá Gallo koma oft verulega á óvart fyrir hreinan og tæran stíl og eitthvert besta dæmið um vel heppnað Kaliforníuvín fyrir fjöldamarkaðinn. Meira »

Fortius Crianza 2007

Fortius Crianza 2007
31.1. Fortius-vínin eru gerð í vínhúsi í eigu Faustino í héraðinu Tierra Estella. Vínin eru ræktuð í Navarra en rétt við mörkin að Rioja og óneitanlega er afskaplega mikill Rioja-fílingur í þessu víni. Meira »

Trivento Cabernet Sauvignon 2010

Trivento Cabernet Sauvignon 2010
29.1. Trivento er nútímalegt og athyglisvert vínhús í Argentínu sem byggt hefur verið upp á síðasta áratug. Vínin eru alþjóðleg, nútímaleg og athyglisverð. Meira »

Arthur Metz Pinot Gris 2010

Arthur Metz Pinot Gris 2010
26.1. Fyrirtækið Arthur Metz er eitt stærsta vínhúsið í Alsace í norðurhluta Frakklands en það er hluti af einu stærsta vínfyritæki Frakklands, Le Grand Chais de France. Meira »

Montes Cabernet-Carmenere 2010

Montes Cabernet-Carmenere 2010
22.1. Þetta rauðvín frá Montes í Chile er blanda úr þrúgunum Cabernet Sauvignon og Carmenere en sú síðarnefnda er að verða eins konar "þjóðarþrúga" Chile þó svo að hún eigi rætur sínar að rekja til Frakklands. Meira »

Saint Clair Pioneer Block 20 Sauvignon Blanc 2009

Saint Clair Pioneer Block 20 Sauvignon Blanc 2009
30.12. Pioneer Block 20 er einnar ekru Sauvignon Blanc frá Saint-Clair á Nýja-Sjálandi. Ekran heitir Cash Block og árgangurinn 2009 var fyrsta uppskeran af ekrunni. Meira »

Chateau Sainte-Marie Le Moulin 2008

Chateau Sainte-Marie Le Moulin 2008
30.12. Premieres Cotes de Bordeaux er svæði á hinum svokallaða hægri bakka í Bordeaux. Það byrjar rétt suður af Bordeaux og nær að bænum Cadillac. Chateau Saint-Marie er  fjölskylduvínhús sem hefur verið í eigu Dupuch-Mondon-fjölskyldunnar frá því um miðja síðustu öld. Ekran Le Moulin var keypt árið 2005. Meira »

Yalumba Y Series Shiraz Viognier 2008

Yalumba Y Series Shiraz Viognier 2008
30.12. Það kann að virka skrýtið að blanda rauðum og hvítum þrúgum saman og vissulega er ekki mælt með því að menn reyni að blanda rauðum og hvítum vínum saman í heimahúsi. Nokkur af þekktustu vínum heims eru hins vegar slíkar blöndur. Kampavín er augljósasta dæmið en einnig má nefna dæmi um rauðvín á borð við Cote Rotie í Frakklandi og Chianti Classico á Ítalíu þar sem leyfilegt er að nota smávægilegt hlutfall af rauðum þrúgum í bland við þær hvítu. Meira »

Campo Viejo Gran Reserva 2003

Campo Viejo Gran Reserva 2003
30.12. Campo Viejo er stórt vínhús í Rioja. Gran Reserva-vín eru orðin fullþroskuð og þau þarf að geyma að lágmarki í tvö ár á tunnu og þrjú ár á flösku áður en þau fara á markað. Vilji menn þroskuð vín eru þetta yfirleitt mjög góð kaup, enda búið að geyma vínin fyrir mann við kjöraðstæður. Meira »

Trimbach Pinot Blanc 2007

Trimbach Pinot Blanc 2007
30.12. Pinot Blanc er ein af klassísku Alsace-þrúgunum en hefur ekki verið nærri eins algeng hér og Riesling, Pinot Gris og Gewurztraminer. Trimbach-fjölskyldan í þorpinu Ribeauville hefur starfrækt eitthvert elsta vínhús héraðsins um aldaraðir og þetta Pinot Blanc. Meira »

Leit að uppskriftum og greinum

Ítalskt humarpasta | f.truncatewords(15)}

Ítalskt humarpasta

Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum | f.truncatewords(15)}

Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum

Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira
Isole e Olena Chianti Classico 2009

Isole e Olena Chianti Classico 2009

4 og hálf stjarna Upphaflega voru Isole og Olena tvö býli á sitt hvorri hæðinni. Paolo de Marchi sameinaði þau er hann tók við landinu árið 1976 og gerði Isole e Olena að einhverju virtasta vínhúsi Toskana. Meira

Fleiri víndómar