Luzon Monastrell 2007
Hér er þriðja vínið frá suður-spænska framleiðandanum Luzon, sem nýlega kom´á markaðinn, en þegar hefur verið fjallað um Luzom Jumilla og Piquito. Í þessu víni fær Monastrell-þrúgan, sem margir þekkja undir franska nafninu Mourvedre, að njóta sín til fulls og líkt og hin vínin tvö er þetta hörkuvín í ljósi verðs.
Luzon Monastrell 2007 er dökkt og þungt með krydduðum sveskjum, plómugraut og heitri, áfengri vanillu. Þykkt og heitt, kryddað og djúpt. Mjúkt í munni með þurrkuðum ávexti í lokin.
2.195 krónur. Mjög góð kaup fyrir verð sem tryggir víninu fjórðu stjörnuna.
Leit að uppskriftum og greinum
Ítalskt humarpasta
Skelfiskur er í hávegum hafður á Ítalíu og til eru fjölmargar tegundir af pasta með skelfisk. Hér notum við ítalskar ... Meira
Indverskur kjúklingur með kókos og tómötum
Þetta er bragðmikill indverskur kjúklingaréttur. Líkt og algengt er í indverska eldhúsinu er það margslungin kryddblanda sem myndar uppistöðuna og ... Meira






















