20. febrúar 2012

Ertu í makaleit?

Vallhumall 1

Ef þú ert einn af þeim sem ekki átt maka og felldir tár annaðhvort á konudegi eða bóndadegi, þá er ég algjörlega með lausnina handa þér. Hún felst hvorki í sálfræðitímum né deiti á öldurhúsum. Forfeður okkar voru með mun einfaldari lausn á þessum vanda, þeir notuðu lækningajurtir við öllu!  

Ein af þeim jurtum sem var vinsæl í þessum tilgangi var vallhumall en hann vex allstaðar á landinu fyrir þá sem vilja tína hann í sumar og finna sér maka. Vallhumall þótti góður til að spá fyrir um örlög fólks og væri vallhumall settur undir kodda og eftirfarandi vísa höfð yfir átti það að kalla fram mynd af tilvonandi maka að morgni:

Thou pretty herb of Venus’ tree,
   Thy true name it is yarrow;
Now who my bosom friend must be,
   Pray tell thou me to-morrow.

 (Úr Halliwell’s Popular Rhymes)

Eins var það trú manna að seyði af vallhumli notað til andlitsþvotta eyddi hrukkum og ef vallhumall væri í brúðarvendi tryggði það hamingju í sjö ár. Á miðöldum var hefð fyrir því að brúðhjón bæru jurtina á sér til að tryggja langt og farsælt ástarlíf.

 

Burtséð frá ágæti vallhumals við makaleit  þá er hann ákaflega fjölhæf lækningajurt sem á sér margra alda sögu í grasalækningum. Hann þykir t.d. góður til að stöðva blæðingar og græða sár, auka matarlyst og stöðva niðurgang. Eins er vallhumall afar gagnlegur gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og hita og er líka notaður til að koma reglu á tíðablæðingar og við tíðaverkjum. Svo er hann einnig talinn geta lækkað blóðþrýsting, dregið út bólgum og gigt ásamt því að vera vatnslosandi.

Anna Rósa grasalæknir er með heimasíðuna www.annarosa.is og á facebook hér

Heimildir: Bókin "Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir" sjá nánar hér

mynd
30. janúar 2012

Sérdeilis kraftmikið kryddte

Mér finnst fátt betra í skammdeginu en að fá mér kryddte ættað frá Indlandi. Það er kallað „Chai te“ á vesturlöndum og er til í ótalmörgum útgáfum. Þetta te er alveg sérdeilis kröftugt og manni hlýnar niður í tær við það að drekka það. Ég er búin að drekka það nánast á hverjum degi í marga mánuði og hef sjaldan verið hressari! Yfirleitt fæ ég mér teið eftir kvöldmat því hunangið í því Meira
mynd
17. janúar 2012

Kjötsúpa grasalæknisins

Það er fátt betra á köldum vetrardegi en kraftmikil og saðsöm kjötsúpa. Ég hef í mörg ár eldað annars konar kjötsúpu en þessa hefðbundnu íslensku kjötsúpu. Mín kjötsúpa inniheldur að sjálfsögðu mikið magn af lækningajurtum, grænmeti og svo nokkra kjötbita. Ég hef mikla trú á forvarnargildi þess að neyta lækningajurta í mat og þessi kjötsúpa inniheldur kraftmiklar jurtir gegn kvefpestum og flensu. Meira
mynd
6. janúar 2012

Ristilhreinsandi og vatnslosandi lækningajurtir

Meltingin er í stakasta ólagi hjá mörgum eftir hátíðarnar og auglýsingar um allskyns hreinsunarkúra tröllríða nú öllu. Flestir geta verið sammála um að fyrsta skrefið sé að borða hollan mat og hætta smáköku og nammiáti og góð hreyfing fylgir svo fast á hæla þess. Ég er auðvitað einlægur aðdáandi þess að nota lækningajurtir við öll möguleg og ómöguleg tækifæri og ristilhreinsandi jurtir hafa verið Meira

Anna Rósa grasalæknir

Anna Rósa grasalæknir Anna Rósa veitir ráðgjöf sem grasalæknir ásamt því að framleiða krem, smyrsl og tinktúrur. www.annarosa.is Meira