Ertu í makaleit?

Ef þú ert einn af þeim sem ekki átt maka og felldir tár annaðhvort á konudegi eða bóndadegi, þá er ég algjörlega með lausnina handa þér. Hún felst hvorki í sálfræðitímum né deiti á öldurhúsum. Forfeður okkar voru með mun einfaldari lausn á þessum vanda, þeir notuðu lækningajurtir við öllu!
Ein af þeim jurtum sem var vinsæl í þessum tilgangi var vallhumall en hann vex allstaðar á landinu fyrir þá sem vilja tína hann í sumar og finna sér maka. Vallhumall þótti góður til að spá fyrir um örlög fólks og væri vallhumall settur undir kodda og eftirfarandi vísa höfð yfir átti það að kalla fram mynd af tilvonandi maka að morgni:
Thou pretty herb of Venus’ tree,Thy true name it is yarrow;
Now who my bosom friend must be,
Pray tell thou me to-morrow.
(Úr Halliwell’s Popular Rhymes)
Eins var það trú manna að seyði af vallhumli notað til andlitsþvotta eyddi hrukkum og ef vallhumall væri í brúðarvendi tryggði það hamingju í sjö ár. Á miðöldum var hefð fyrir því að brúðhjón bæru jurtina á sér til að tryggja langt og farsælt ástarlíf.
Burtséð frá ágæti vallhumals við makaleit þá er hann ákaflega fjölhæf lækningajurt sem á sér margra alda sögu í grasalækningum. Hann þykir t.d. góður til að stöðva blæðingar og græða sár, auka matarlyst og stöðva niðurgang. Eins er vallhumall afar gagnlegur gegn kvefi, hálsbólgu, flensu og hita og er líka notaður til að koma reglu á tíðablæðingar og við tíðaverkjum. Svo er hann einnig talinn geta lækkað blóðþrýsting, dregið út bólgum og gigt ásamt því að vera vatnslosandi.
Anna Rósa grasalæknir er með heimasíðuna www.annarosa.is og á facebook hér
Heimildir: Bókin "Anna Rósa grasalæknir og íslenskar lækningajurtir" sjá nánar hér




