c

Pistlar:

7. janúar 2013 kl. 11:18

Árelía Eydís Guðmundsdóttir (arelia.blog.is)

Tuttugu og einn dagur!

Nú er tími til að gera það sem hægt er að gera í stað þess að einblína á það sem þarf að laga. Hugsa sér allt sem er mögulegt á þessu herrans ári. Nýjar hugsanir, ný ævintýri og ný ferðalög, nýjar hugmyndir um sjálfa þig.

Ég hef oft sett sömu markmið og finnst þá stundum eins og það sé fáranlegt að setja þau aftur nema mér hafi tekist að ná þeim. Hugsanir eins og "þetta er tilgangslaust, ég er búin að reyna svo oft.." fara á kreik. Þá minni ég mig á eftirfarandi tilvitnun sem ég einhver staðar týndi upp: "Okkar stærsta stund er ekki það að tapa aldrei heldur að rísa upp eftir hvern ósigur."  Persónuleg breyting, hvort sem maður vill skifta um vinnu eða hætta að reykja, skrifa bók, auka hreyfingu eða létta sig, er langtíma þróun sem maður stjórnar ekki alltaf með stífu tímaplani.

Ég var að kenna hópi nema í síðustu viku, sem ég kenndi síðast fyrir rúmu ári. Við vorum að tala um vana og vanabundna hegðun þegar einn nemandinn sagði að hann hefði farið að ráði mínu þegar hann hóf líkamsrækt. Ég hrökk í kút því ég á það til að ráðleggja eitt í dag og annað á morgun og mundi ekkert hvað ég hafði lagt til! Nemandi minn hafði fengið sér einkaþjálfara og eftir að hafa heyrt mig tala um að það tæki tuttugu og einn dag að festa ákveðna hegðun í sessi þá ákvað hann að fara í ræktina á hverjum degi í tuttugu og einn dag. Á hverjum degi! "Eftir að ég fór á hverjum degi í tuttugu og einn dag þá var ekkert mál og svo létt að fara í kjölfarið bara þrisvar í viku." Sagði viðkomandi sem hefur stundað sína líkamsrækt þrisvar í viku, í eitt og hálft ár síðan.

Ég hugsaði með mér að ég hefði kannski verið ansi sniðug í ráðleggingunum í þetta sinn. Það er  hægt að breyta vanabundinni hegðun á tuttugu og einum degi. Ég er að hugsa um að byrja á því að vera GREAT á hverjum degi í tuttugu og einn dag.

G - gefa af sér (e. give),

R - reyna að tengjast öðrum (e. relate),

E - elska að hreyfa sig (e. exchercise),

A - athygli (e. attent to the world around),

T - tosast í eitthvað nýtt (e. try someting new).

Hvað vilt þú gera í tuttugu og einn dag?

kveðja,