5. apríl 2013 kl. 14:27

Mamma veit best

Í vikunni stóð ég í svefnherbergi mínu og ákvað að festa loftljós á rússaperuna sem er gjörsamlega að drepa mig. Til þess þurfti tvennt að gerast: ég þurfti að ná í skrúfjárn og taka rafmagnið af. Ég þusti inn í eldhús. Þar gerðist eitthvað sem ég get ekki útskýrt. Ég rankaði við mér inni í svefnherbergi um það bil hálftíma síðar. Rafmagnið var enn á og ég hélt á diski með tveimur hrökkbrauðsneiðum með osti, rauðu pestói og grænni papriku. Ekkert skrúfjárn í höndum.

Eins og rúmlega hálf þjóðin sjálfgreindi ég mig með athyglisbrest og ofvirkni með Stefáni Boga síðasta vetur. Ég horfði í framhaldinu á hann í Kastljósi með vinkonu minni. Við horfðumst í augu undir þessu og kinkuðum báðar kolli. Við vorum líka með þetta. Alveg klárt. Það bara hlýtur að vera.

Um daginn var ég á leið á gigg með kórnum mínum (við vorum að gigga sko). Uppdubbuð og fín hentist ég út um útidyrnar með bíllykil í hönd. Leit eldsnöggt yfir bílastæðið eins og rándýr í leit að bráð. Kastaði hausnum ótt og títt til hægri og vinstri og hægri aftur. Sá ekki drossíuna. Hljóp kringum blokkina og leitaði á nærliggjandi bílastæðum. Hvergi var kagginn. Þegar ég var í símanum við 118-fólkið að biðja um númerið hjá Vöku mundi ég að ég hafði skilið hann eftir við Hallgrímskirkju kvöldið áður. Skellti á 118 og hringdi í 5885522. 

Eðlilega æstist ég mjög upp við þessa sjálfgreiningu og hringdi í móður mína sem er hjúkrunarfræðingur og fær þar af leiðandi allar spurningar frá mér og vinkonum mínum sem tengjast heilbrigðismálum. Hún tók sér stutt hlé frá mikilvægum störfum og talaði við mig. Mamma, á ég ekki að fá þessi lyf sem Stefán Bogi mælir með?

Ég sá heimildamynd ekki alls fyrir löngu. Þegar ég og samferðamaður minn vorum sest á annan bekk var tilkynnt að um Q&A-sýningu væri að ræða þar sem kvikmyndagerðarmennirnir væru í salnum. Ég fann fyrir líkamlegum óþægindum þar sem ég áttaði mig á því að við gætum ekki hlaupið út áður en kreditlistinn rúllaði inn á tjaldið. Samferðamaður minn, sem sjálfgreindi sig einnig með Stefáni Boga, hvíslaði glottandi að mér í myrkrinu: „We are trapped“. Hann hafði rétt fyrir sér. 

Mamma, mér finnst bara eins og þetta meiki geðveikt mikið sens. Ég er alltaf að gleyma öllu og koma mér í algjörlega óhugsaðar aðstæður sem reyna svo á þolrifin. Keypti mér sko hlaupaskó um daginn til að vera í dags daglega af því að mér finnst ég komast svo skelfilega hægt yfir ef ég er í háum hælum eða óþægilegum skóm. Þú veist alveg hvernig ég er, það þarf allt að gerast núna, helst í gær. 

Ég var svo spennt að vakna og hefja daginn á tímabili í síðasta mánuði að ég svaf nánast ekkert. Ókei, smá ýkjur. Svaf lítið. Vaknaði upp úr fjögur. Horfði á daginn rísa í Vesturbænum. Hljóp 14 kílómetra fyrir níu. Hjólaði miðbæinn á enda og til baka. Fór á snyrtivörukynningu og lét pranga upp á mig sumarvaralit. Appelsínugulum. Keypti mér fjórar sams konar alpahúfur og átta alveg eins hárspangir (af því ég er alltaf að týna öllu). Sat messu og kyngdi oblátunni. Fór í brunch með vinum og bakaði. Þegar ég tók kökurnar út sló klukkan 14. 

Jaaa, þú ert líklega á rófinu. En þetta er nú ekki slæmt tilfelli. Ég meina, þetta hjálpar þér meira en þetta háir þér. Hefur alltaf gert. Þó þú sért óþolinmóð. Og svo: „Ég hef alltaf hugsað um þig eins og vél sem er aðeins of hátt stillt.“ Til í þá greiningu. Ég þarf ekki þessi lyf. Mamma veit best. (Vona ég. Alveg innilega).
29. mars 2013 kl. 18:59

Knús eða nei?

Ég hugsaði fyrst um þetta eftir að ég kyssti fjölskylduvin á sextugsaldri óvart á munninn. Fyrir framan foreldra mína og börn fjölskylduvinarins. Senan var í alla staði mjög óþægileg. Ekki síst fyrir mig. Næst hugsaði ég um þetta eftir að hafa þrykkt einum blautum á háls konu sem ég þekki allt of lítið. Það var líka einstaklega óþægilegt og í raun óafsakanlegt og erfitt að útskýra hvað gerðist. Í Meira
13. mars 2013 kl. 21:12

Upp með þau

Er hann ekki búinn að vera óvenju dimmur þetta árið? Sótsvartur alveg? Þungur. Morkinn. Sleipur og harður. Miskunnarlaus og drungalegur. Óupplýstur og skuggalegur. Viðbjóðslega langur líka? Er það ekki? Klárlega lengri en venjulega. Eða er þetta alltaf svona? Ég bara man það ekki! Sólarlítill og niðurdrepandi. Þunglyndislegur og grár. Kaldur og svo gott sem laus við hvíta duftið. Næstum því Meira
27. febrúar 2013 kl. 17:30

Hvað meinaru? Tékkaðu á kjólnum!

B1: Fallið á leið upp á svið? JL: Var það viljandi?BL1: Hvað gerðist?JL: Hvað meinaru hvað gerðist? Tékkaðu á kjólnum sem ég er í! Ég reyndi að komast upp stiga í þessum kjól. Það er það sem gerðist. Ég hef bara stigið á kjólinn, þeir vaxa stigann…BL2: Hvað fór í gegnum huga þinn þegar þú dast?JL: Ee... Slæmt orð sem ég get ekki haft eftir. Það byrjar á „f“…BL3: Nú Meira
19. febrúar 2013 kl. 22:08

Veit ekki hvað þær heita

 „Nú er ég búin að vinna í þessum skóla í tvær vikur og ég veit hvað allir strákarnir í bekknum heita. Ég kann samt ekki enn eitt nafn á stelpu í bekknum.“  Allir stara. Hún heldur áfram.  „Og það er ekki af því að ég sé eitthvað á móti því að læra stelpunöfn. Það er af því að þær eru aldrei með læti. Það þarf ekki að segja þeim að hlýða, þær eru búnar að Meira
14. febrúar 2013 kl. 21:01

Nenniði að. Æi.

Það sem ég held að þið hafið verið að hugsa (sjá frétt). Og kannski ekki endilega áttað ykkur á því. En með því að hugsa þetta – mögulega óvart - og skrifa þetta á blað og dreifa blaðinu sem hluta af ratleik eruð þið að festa hugsanavillur. Og dreifa þeim. Og ítreka þær. Og stimpla þær inn. Og gera þær eðlilegar. Normalísera þær. Samþykkja þær. Endurtaka hversu súrar og klikkaðar og Meira
mynd
30. desember 2012 kl. 21:38

Gert upp

Ég hóf pistlaskrif í mars 2012 á þessum vettvangi. Tæpt hefur verið á ýmsu. Áfengisneyslu. Einsemd. Kynfærum kvenna. Femínisma. Hjólreiðum. Hressleika. Tilgangi frambjóðenda. „Stjörnublaðamennsku DV". Einhverjum hafa verið sendar pillur. Aðrir fengu hrós. Ég ákvað að gera upp árið með völdum einstaklingum sem ég skrifað um (eða tilnefndum fulltrúum þeirra). Gjörningurinn fór þannig fram Meira
21. desember 2012 kl. 9:10

Hann ætlar að drepa mig

-Á ég ekki að keyra þig, vinan?Ég horfi á manninn. Upp og niður og aftur upp. Kem mér í samband við innsæi mitt sem ég tel sterkt. Nánast óskeikult. Horfi fast í augun á honum. Er þetta glæpamaður? Sýnist ekki. Hendurnar hafa unnið erfiðisvinnu. Það sést. Hvorki druslulegur né huggulegur til fara. Giska á að hann sé utan af landi. Ég hika. -Drífðu þig bara inn í bílinn, er þér ekki kalt? Ég tek Meira
8. desember 2012 kl. 12:18

Blindfull með appelsínuhúð

Ekkert nema brjóstin og plasthælarnir. Hauslaus í eftirpartý. Kim Kardashian er alls ekki með'etta. Rihanna "tippar" súludansmey. Fær seint verðlaunin best klædda konan. Blindfull með appelsínuhúð. (ATH! Það er búið að breyta þessari síðustu). Þetta eru allt raunverulegar fyrirsagnir sem hafa birst á síðustu dögum á Fókus-vef dv.is, þriðja vinsælasta vef landsins samkvæmt mælingum Meira
26. nóvember 2012 kl. 8:43

Bara ein?

Þjónustufulltrúi: Já, ertu sem sagt bara ein? (leggur áherslu á „bara"). Ég: Já (bíð smá). Ég vil nú reyndar ekki meina að það sé eitthvað „bara" (að reyna að slá á létta strengi). Þjónustufulltrúi: Já, ókei (verður skrýtinn í framan). Það reyndar breytir stöðunni aðeins (klikkar fullt í tölvunni. Ég sé ekki á skjáinn útaf þessu dóti sem varnar því að viðskiptavinir banka Meira
12. nóvember 2012 kl. 8:21

Er ég þá ekki stelpa?

„Þú veist að við höfum aldrei verið klassískar stelpur." Þetta sagði vinkona mín við mig. Með „klassískum stelpum" átti hún við stelpur sem eru prúðar, finnst bleikur flottasti liturinn, fíla sig í prinsessukjólum, kunna að farða sig almennilega og vita ekki hvað rangstaða er. Þetta var rétt hjá henni. Við höfum vitað það í meira en tvo áratugi og það þurfti enginn að segja Meira
30. október 2012 kl. 9:05

Þetta eru bara brjóst!

Þar sem ég sat í hópi vina og barðist um athygli þeirra við haug af snjallsímum áttaði ég mig á því að stríðið er tapað. Óskipt athygli fólks er munaðarvara. Það eru allir alltaf að vesenast í tækjunum sínum. Ef ekki er verið að hlaða inn myndum af mat sem viðkomandi er í þann mund að skella niður vélindað er verið að njósna um „vini", spyrja Barnalandskonur spurninga, lesa, skoða mat Meira
9. október 2012 kl. 7:44

Af hverju ertu að þessu?

Þær eru teknar að hrúgast inn í fjölmiðla. Vel teknar ljósmyndir af fólki. Yfirleitt brjóstmyndir. Þetta fólk er vel til fara. Stílíserað. Samt ekki of stílíserað. Má ekki virka ferkantað eða leiðinlegt. Fólkið er brosandi eða gáfulegt. Í augnráðinu má greina mýkt og skilning. „Mér er treystandi," er eins og það segi. Gleði og hlýja stafar af sumum andlitunum. „Ég talaði við Guð Meira
28. september 2012 kl. 8:27

Opið bréf til Sverris

Ég held að ég hafi aldrei sagt þér hvað það var þungu fargi af mér létt þegar ég gekk út eftir okkar fyrsta fund. Þú spurðir ekki hvað ég væri að gera í lífinu. Þú spurðir ekki hvaðan ég væri og þú spurðir ekki hvort ég væri í sambandi. Þú spurðir engra „hefðbundinna" spurninga sem maður er allt lífið að svara með misjafnri hreinskilni og árangri. Þú sagðir hins vegar helling af Meira
16. september 2012 kl. 22:44

Til allra sem geta gert eitthvað

Enn á ný er launamunur kynjanna staðfestur á Íslandi. Enn á ný blikkar tala í fjölmiðlum sem sýnir í prósentum hve mikið konur fá minna borgað fyrir sömu vinnu og karlar. Í þetta skipti mælast konur með 9-12% lægri laun samkvæmt könnunum stéttarfélaga. Þessi tala hefur bæði verið aðeins lægri og miklu hærri en aldrei hefur hallað á karla eins og allir vita.Í frétt RÚV um málið 10. september Meira
9. september 2012 kl. 22:55

4,5 sinnum

Ég hefði getað fyllt bensíntankinn á bílnum mínum 4,5 sinnum fyrir peninga sem ég notaði frekar til þess að kaupa mér hjól. Fyrir sex árum, þegar ég keypti umræddan bíl, hefði ég getað fyllt hann 10,5 sinnum fyrir sömu upphæð. Ástæða kaupanna var upphaflega fjárhagslegur ávinningur til lengri tíma. Eftir mánuð á hjóli hafa aðrar ástæður bæst við. Hamingjan við það að rúlla um Reykjavík og kynnast Meira
26. ágúst 2012 kl. 22:57

Þetta hjálpar ekki neinum

Um helgina fylgdist ég með internetinu éta unga konu sem skrifaði bakþanka í helgarútgáfu Fréttablaðsins og á Vísi. „Hef aldrei lesið verri grein á öllu netinu", „OJJ", „afsakið á meðan ég æli" og „hvaða ógeðslegi fáviti er þetta?" spurðu notendur sem áttu ekki orð yfir þessari manneskju sem sagðist fíla að vera ósjálfbjarga og þurfa á karlmönnum að Meira
21. ágúst 2012 kl. 21:27

Opið bréf til Jóns Stóra

Sæll Jón Sendi þér nokkrar línur í tilefni skrifa þinna á Facebook í dag vegna þessarar fréttar. Sameiginlegur vinur okkar á samskiptaforritinu „lækaði" hjá þér sem vakti athygli mína á því sem þú settir fram. Þar sem þú ert með opna síðu hef ég skrifin eftir þér:„Klárlega frétt ársins ..... blaðamaðurinn fær pottþétt verðlaun.... Heimurinn er þannig að standpína eru karlmanna og Meira
13. ágúst 2012 kl. 0:36

Við verðum að fara að hittast!

Ég hitti fólk á hverjum degi. Allskonar fólk. Ég er búin að skipta því í fjóra hópa. Í fyrsta hópnum er fólk sem býr eða vinnur á sama stað og ég og hefur því sameiginleg „base" í lífinu á ákveðnum tíma. Þessa lykilstaði sem þarf að fara til og frá daglega. Í öðrum hópnum er fólk sem ég þarf að hitta. Til dæmis vegna skyldleika eða tengsla, náms, veikinda, vinnu eða annarra verkefna. Í Meira
1. ágúst 2012 kl. 11:07

Börn, unglingar og Internetið

Í febrúar sl. lauk ég meistaranámi í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Lokaverkefni mitt er útvarpsþáttaröðin Eins og eldur, unnin í samstarfi við RÚV og fjallar um börn, unglinga og Internetið. Nafn þáttaraðarinnar vísar í marga ólíka eiginleika Netsins, sem hægt er að nota til góðs og ills.   Ég ræddi við 26 einstaklinga, 13 nemendur í 5. - 10. bekk í grunnskóla, foreldra Meira
20. júlí 2012 kl. 9:58

Er glæpur að vera hress?

Ég hef allt of oft orðið vitni að neikvæðum viðbrögðum fólks við „of hressu" kvenfólki. Og með „of hressu" á ég ekki við ölvaðar konur heldur lífsglaðar, æstar og málglaðar. Í mín eyru hafa þessar konur verið kallaðar dólgar, erfiðar, ofurölvi (þrátt fyrir að vera edrú) og athyglissjúkar brussur. Í framhaldinu hef ég spurt mig hvort staðreynd málsins sé sú að það sé rjúkandi Meira
6. júlí 2012 kl. 21:55

Opið bréf til íslensks karlmanns (I)

Ég hef oft hugsað til þín eftir að leiðir okkar lágu saman eitt fimmtudagskvöld á Boston fyrr á árinu. Framkoma þín, talandi og hegðun öll hefur ollið mér heilabrotum. Hvernig þú sagðir mér að fara í rassgat, þegar ég bað þig að fara, hefur líka setið í mér.   Ef þú manst ekki eftir þessu skal ég rifja þetta upp. Ég sat með tveimur vinkonum mínum á borði nálægt barnum - við höfðum ekki hist Meira
30. júní 2012 kl. 18:21

Ástæða skilnaðar Tom Cruise?

Vinkona mín gerði einlæga játningu frammi fyrir mér sem var svona: „alltaf þegar ég fæ „missed call" úr ókunnugu númeri, er ég sannfærð um að Tom Cruise sé að reyna að ná í mig til að biðja mig að leika konuna sína í næstu stórmynd." Ég hafði engin mótrök og ég meina auðvitað er það fullkomlega eðlilegt að Tom Cruise hafi spottað hana í nýlegri Íslandsreisu, sé búinn að redda Meira
mynd
20. júní 2012 kl. 16:02

Æ, bara ef þetta væri strákur

„Þegar ég fæddist, árið 1954, sagði fólk við mömmu, prestfrúna: Æ, bara ef þetta væri strákur - þá hefði hann geta orðið prestur!“ Þetta sagði séra Agnes M. Sigurðardóttir tilvonandi biskup m.a. í predikun sinni á kvennamessu við þvottalaugarnar í Laugardalnum í gærkvöldi þann 19. júní 2012. #face Meira
11. júní 2012 kl. 1:36

Þóra, Birgitte og börnin

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi og Birgitte Nyborg, danski forsætisráðherrann í þáttunum Borgen, eiga ýmislegt sameiginlegt.  Báðar eru þær hæfileikaríkar, orðheppnar og skeleggar konur sem sækjast eftir ábyrgðarstöðum í samfélagi sínu. Báðar eru þær sterkar og mikilvægar fyrirmyndir og sönnun þess að ekki sé í boði að útiloka konur á barneignaraldri eða konur með fjölskyldur frá Meira
30. maí 2012 kl. 23:47

Niðurlægð af stjórnmálaleiðtoga

Fyrst byrja hrafnarnir að krunka. Svo kemur undirspilið. Loks kikkar röddin hennar Rihönnu inn. Í byrjun eins og hún sé að tala við mig. Persónulega (spilið lagið hér). Ég er með hlaupabrettið stillt á rúmlega 11 og í miklu stuði. Ég á salinn í ræktinni. Það er enginn að taka jafn fáránlega vel á því. Feel it comin‘ in the air Hear the screams from everywhere I‘m addicted to the thrill Meira
14. maí 2012 kl. 22:01

VIP fyllibyttur

Þar sem ég stóð í almenningsröðinni að bugast úr kulda horfði ég á lágvaxinn, ungan mann með blátt hár, dökka húð og sólgleraugu með rauðri umgjörð dúndra sér í VIP-röðina og sleppa samstundis inn. Hann þurfti rétt svo að veifa litla fingri úr nokkurra metra fjarlægð, hreyfingin hafði skipandi áhrif á dyraverðina og þykkri keðjunni var vikið frá. Konungur næturinnar augljóslega á ferð. Ég beið í Meira
30. apríl 2012 kl. 0:06

Frábært og nauðgun

„Eftir næsta lag ætla ég að segja ykkur frá alveg frábærri nauðgun. Farið ekki langt." Röddin týndist í þykkum teknótakti sem tók alveg yfir plássið í bílnum. Röddin var mjög hress og skipti um tóntegund á milli orða eins og ekkert væri meira viðeigandi. Hún var og er í eigu ónefnds útvarpsmanns sem lagði áherslu á „frábærri" sekúndubroti áður en hann sagði orðið Meira
19. apríl 2012 kl. 22:59

Þórhildur Berglind

Við rífumst um fullt af hlutum. Við höfum reynslu í því að rífast. Við þrífumst stundum á því að rífast um hluti. Forsetaframbjóðendur, opnunartíma skemmtistaða, framtíðarsýn, skilning á fortíðinni, stjórnmálaleiðtoga, matarverð, ESB, glæpagengi og skatta. Þrátt fyrir ítrekuð og eiginlega stanslaus rifrildi, rafræn eða í raunheimi, erum við líka sammála um fullt af hlutum. Til dæmis að íslenskar Meira
9. apríl 2012 kl. 23:17

Hún er ekki til

Hressilegar umræður um hina „fullkomnu píku" hafa farið fram á opinberum vettvangi í ár. Bæði hefur verði ritað og rætt um hvernig og hvort eigi að snyrta þetta þarfaþing en einnig hafa fréttir verið fluttar af því að sífellt fleiri konur láti „laga" litlu vinkonuna. Farið í lýta- eða fegrunaraðgerð á skapabörmum og því svæði þið vitið. Þar sem ég er ekki læknismenntuð ætla Meira
28. mars 2012 kl. 21:58

Af hverju ertu ekki að drekka?

Það eru til svo ótrúlega mörg og ótrúlega sorgleg, vandræðaleg, leynileg og asnaleg svör við þessari spurningu: af hverju ertu ekki að drekka? Engu að síður spyrjum við stanslaust að þessu, alla aðila í hverju einasta partýi eða samkomu sem inniheldur þó ekki sé nema nokkra áfenga dropa. Þetta er ein af þessum gullnu setningum í íslenskri tungu sem er notuð og endurnotuð út í hið óendanlega. Þær Meira
20. mars 2012 kl. 9:08

Botninn út og upp!

Strangt til tekið ætti ég aldrei að segja þessa sögu. Ástæðan er sú að annað hvort kemur hún fáránlega vel eða fáránlega hallærislega út fyrir mig. Ég veit að ég á ekki að hreykja mér af eigin ágæti en ég veit líka að ég á ekki að draga sjálfa mig í svaðið á opinberum vettvangi. Þar sem mér finnst sagan falla inn í óskilgreint tómarúm á milli sjálfshóls og niðurlægingar læt ég hana flakka. Við Meira

Björg Magnúsdóttir

Björg Magnúsdóttir Stjórnmálafræðingur með MA próf í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Ávallt Verzlingur en aðallega Hafnfirðingur sem býr í 101. Fyrrverandi formaður Stúdentaráðs HÍ og fyrrverandi og núverandi margt annað. Sendið póst á bjorgmagnus@gmail.com. Meira