27. febrúar 2013 kl. 17:30
Hvað meinaru? Tékkaðu á kjólnum!
B1: Fallið á leið upp á svið?
JL: Var það viljandi?
BL1: Hvað gerðist?
JL: Hvað meinaru hvað gerðist? Tékkaðu á kjólnum sem ég er í! Ég reyndi að komast upp stiga í þessum kjól. Það er það sem gerðist. Ég hef bara stigið á kjólinn, þeir vaxa stigann…
BL2: Hvað fór í gegnum huga þinn þegar þú dast?
JL: Ee... Slæmt orð sem ég get ekki haft eftir. Það byrjar á „f“…
BL3: Nú ert þú 22 ára og færð fyrsta Óskarinn en hefur þegar fengið tvær tilnefningar. Þú ert óttalega ung miðað við alla þessa velgengni. Er jákvætt að þetta gerist svo snemma á ferlinum?
JL: Ég vona það. Já. Hver veit. Við verðum bara að sjá til.
BL3: En hefur þú ekkert áhyggjur af því að toppa of snemma?
Eee… ég hef þær kannski núna. Guð… Mér líður eins og ég sé að velja fólk til þess að gera grín að mér. Næsti...
--
Einhvern veginn svona gekk blaðamannafundur Jennifer Lawrence fyrir sig (sjá hér) eftir að hún hlaut Óskarsverðlaun sem besta leikkona fyrir leik í kvikmyndinni Silver Linings Playbook.
„Hvernig svara á heimskulegum spurningum“ ætti þetta eiginlega að heita. Vista bara pistilinn undir því heiti í tölvunni hjá mér.




Stjórnmálafræðingur með MA próf í hagnýtri menningarmiðlun frá Háskóla Íslands. Ávallt Verzlingur en aðallega Hafnfirðingur sem býr í 101. Fyrrverandi formaður Stúdentaráðs HÍ og fyrrverandi og núverandi margt annað. Sendið póst á bjorgmagnus@gmail.com.