6. maí 2012

Ítalskar kjötbollur með spaghettí.


Ítalskar kjötbollur með spaghettí og sósu. 
 
500 gr. Nautahakk
1 dl. Brauðmylsna
½ Laukur, smátt niðurskorinn
½ Rautt chili, smátt niðurskorið
3 Hvítlauksrif, marin
3 msk.
Fersk steinselja, söxuð.
1 msk. Fersk basilika, söxuð
1 msk. Rifinn parmesan ostur
1 msk. Ólífuolía
1 Egg
Salt og grófmalaður pipar
 
Kryddið nautahakkið með salt og pipar, bætið brauðmylsnu, basiliku, steinselja, lauk, hvítlauk, parmesan, chili olíu og eggi saman við, blandið mjög vel saman og mótið litlar bollur. Steikið í um tíu mínútur við miðlungshita upp úr olíu á stórri pönnu. Mikilvægt að snúa bollunum reglulega við svo þær steikist jafnt. Ég lét þær  inn í ofn við 180°C í fimm mínútur.
 
 
Ljúffeng og einföld pastasósa.
 
1 msk. Olífuolía
1 laukur, smátt skorinn
4 hvítlauksrif, marin
4 msk. Basilika, söxuð
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 dl. Vatn½ kjúklingateningur
1 msk. Rifinn parmesan osturSalt og pipar
 
Mýkið lauk og hvítlauk í olíu á pönnu við vægan hita, bætið niðursoðnum tómötum saman við og vatninu. Látið malla í nokkrar mínútur, bætið síðan kjúklingateningnum, salti og pipar saman við. Að lokum fer söxuð basilika og parmesan ostur saman við  og látið malla í smá stund í viðbót. Smakkið ykkur til, það virkar oftast best. Kannski viljið þið meiri pipar eða meiri basiliku! Þið finnið það. Ótrúlega einföld og góð sósa.
 
Berið kjötbollurnar fram með spaghettíi, sósunni, rifnum parmesan og ferskum basilikulaufum.  
 
 
 Ég mæli með því að þið prufið.
 
xxx
 
Eva Laufey Kjaran
 
www.evalaufeykjaran.com 
 
IMG_1475
 
 
IMG_1480
 

  
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
   
 
 
mynd
15. apríl 2012

Oreo Cupcakes

  12 Dásamlegar Oreo cupcakes   125 gr. Smjör 2 dl. Sykur 2 Egg 1 dl. Mjólk 3 dl. Hveiti 1,5 tsk. Lyftiduft 1 tsk. Vanillusykur (Eða vanilla extract) 50    gr. Oreo kexkökur, mulið í grófa bita.      1.     Hrærið saman í hrærivél smjöri og sykri, blandið síðan einu og einu eggi út í. 2.     Blandið þurrefnum Meira
mynd
28. mars 2012

Súkkulaðiblómvöndur.

 Mér finnst fátt betra en súkkulaðikaka. Mömmudraumur er í sérlegu uppáhaldi, hún er einföld og ótrúlega góð. Mamma bakaði hana oft þegar að við vorum yngri og það var mikil ánægja að koma heim úr skólanum og finna dásamlega kökulykt. Ég skreytti kökuna og bjó til rósir. Að mínu mati kom það virkilega vel út og mér finnst kakan algjört augnyndi. Hér kemur Meira
mynd
23. mars 2012

Vanillu cupcakes með karamellum.

Um helgar þá finnst mér fátt betra en að baka og hvað er þá dásamlegra en fallegar cupcakes með góðu kremi?  Mér finnst þessar agalega góðar og kremið dásamlegt. Þær eru líka bara svo fallegar, ég tók svo margar myndir af þeim og var farin að semja sögur um hverja köku fyrir sig. Jú þið heyrðuð rétt, að mínu mati segir hver og ein kaka krúttlega sögu. Ég er líkast til pínu skrýtin að Meira
mynd
20. mars 2012

Spínat-spergilskáls fiskur í raspi.

Ég elska fisk og mér finnst voðalega gaman að elda hann.  Mér finnst sérlega gaman að prufa nýjar aðferðir með fisk.  Hvítlaukur - Spínat - Fetaostur - spergilkál saman í eitt.  Spínat-spergilskáls fiskur í raspi. 2 Lófar spínat2/4 Spergilkálshöfuð1 Hvítlauksgeiri100 gr. Rasp2 msk. Fetaostur1 msk. OlíaSafi og rifinn börkur úr 1/2 LimeSalt & pipar að vild! Allt Meira
mynd
11. mars 2012

Ekki skylda að við séum alltaf sammála en við eigum að bera virðingu hvort fyrir öðru.

 Ég hef verið að velta fyrir mér Facebook undanfarið í ljósi þess að svo margir tala um það hvar við eiginlega værum ef ekki væri fyrir Facebook. Auðvitað er þetta frábær miðill að mörgu leyti, auðveldar samskiptin og er öflugur auglýsingamiðill. Virðing í garð annarra er þó lítil á Facebook, að því leytinu að hver og einn þykir öðrum betri. Fólk keppist um að deila fréttum Meira
mynd
6. mars 2012

Bláberja bollakökur.

                 Ef það er eitthvað sem ég gæti borðað alla daga þá eru það þessar ljúffengu bláberja bollakökur.Þær eru ferlega fljótlegar og eiga alltaf vel við.Hér kemur uppskriftin fyrir ca. 12 bollakökur280 gr. Hveiti 1 tsk. Lyftiduft1 tsk. Salt115 gr. Púðursykur2 egg150 gr. Bláber (Frosin eða fersk)250 Meira
mynd
4. mars 2012

Gróft hrökkbrauð.

Ég er nokkuð viss um að það sé fátt huggulegra en að byrja daginn á því að hitta góðar vinkonur og borða með þeim ljúfan morgunmat. Þessi hrökkbrauð eru svakalega góð. Einföld, ljúffeng og holl.  Mæli með því að þið prufið.  Hér kemur uppskriftin  4 dl. Haframjöl 4 dl. Rúgmjöl1 dl. Graskersfræ1 dl. Sólkjarnafræ1 dl. Sesamfræ1 dl. Hörfræ7 dl. Vatn1 msk. Hunang   Meira
mynd
24. febrúar 2012

Vanilluskyrkaka með berjum.

Vanilluskyrkaka með berjum. Botn:   1 ½ Pakki Lu Bostogne Kex.  200 gr. SmjörFóðrið formið að innan með filmuplasti, látið plastið ná upp á barmana.  Myljið kexið í matvinnusluvél. Blandið smjörinu saman við og þrýstið kexblöndunni á botn og upp með börmum á bökuformi. Kælið á meðan að þið útbúið fyllinguna.Fylling.        Meira
mynd
10. febrúar 2012

Ljúffengt mexíkóskt Lasagna

 Uppskrift fyrir 6 manns.    1 x Pakki kjúklingabringur1 x Rauðlaukur 1x Askja sveppir 1x Paprika 1x Dós saxaðir tómatar 1x Krukka salsasósa 1x Dós gular baunir 1 x 200 - 250  gr. Rifinn ostur 125 gr. Hreinn rjómaostur  1x Pakki hveititortillur  Salt&pipar    Grænmetið er skorið niður og steikt á pönnu við vægan hita upp úr olíu.  Meira

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

www.evalaufeykjaran.com

Ég elska að borða, elda, baka og tala um mat. Ég fæ ekki nóg af matarpælingum og hef sérlega gaman af því að deila því með ykkur. Ég vona að þið hafið gaman af.

Meira