10. febrúar 2012

Ljúffengt mexíkóskt Lasagna

 Uppskrift fyrir 6 manns. 

 

1 x Pakki kjúklingabringur

1 x Rauðlaukur

1x Askja sveppir

1x Paprika

1x Dós saxaðir tómatar

1x Krukka salsasósa

1x Dós gular baunir

1 x 200 - 250  gr. Rifinn ostur

125 gr. Hreinn rjómaostur 

1x Pakki hveititortillur 

Salt&pipar 

 

Grænmetið er skorið niður og steikt á pönnu við vægan hita upp úr olíu. 

Kjúklingabringurnar eru sömuleiðis skornar smátt niður og steiktar á pönnu. 

 

Við látum tómatana og salsasósuna í stóran pott, leyfum þessu að malla í fáeinar mínútur.

Setjum síðan grænmetið, baunirnar

 og kjúklinginn saman við.

Þessu er blandað vel saman við vægan hita. Rjómaosturinn fer síðan sam


Salt og pipar eftir smekk.an við og áferðin verður agalega falleg og girnileg þegar að hann er kominn í pottinn.

Þá er næsta skref að sækja frekar stórt eldfast mót. Við röðum þessu eins og venjulega Lasagne nema við erum með hveititortillur í stað pasta.

Þekjum réttinn með rifnum osti og látum inn í ofn við 180°C í 20 - 25 mínútur.

Ótrúlega gott að bera þetta  fram með sýrðum rjóma og fersku salati með nachos flögum.

 Gómsætt!

 Njótið og hafið það sem allra best um helgina. 

 xxx

 

Eva Laufey Kjaran 

003

302284_290358544312734_290343130980942_1428966_613025197_n


  

036

 www.evalaufeykjaran.com


  

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

www.evalaufeykjaran.com

Ég elska að borða, elda, baka og tala um mat. Ég fæ ekki nóg af matarpælingum og hef sérlega gaman af því að deila því með ykkur. Ég vona að þið hafið gaman af.

Meira