Hláturinn lengir lífið
Við vitum öll hvaða áhrif jákvæðar tilfinningar hafa á okkur. Fyrst finnum við fyrir þessari innri vellíðan, svo kemur brosið og síðan hláturinn. Jafnvel hugsun ein getur fengið okkur til að brosa eða hlægja - en á bak við hvert bros er flókið innra ferli í líkamanum.
Svipbrigðakenningin byggir á því að þegar við tjáum líkamlega tilfinningar okkar, þá sendi svipbrigði okkar efnafræðileg merki frá andlitsvöðvunum aftur til heilans. Þessu ferli má líkja við það að hljóðnemi getur numið hljóð sem kemur frá hátalara og sent það aftur til hátalarans sem magnaða svörun. Þetta skiptir miklu máli fyrir þá sem stefna að því að bæta tilfinningalega vellíðan sína og gefur til kynna að við höfum mun meiri getu en okkur hefur hingað til grunað, til að stýra tilfinningalífi okkar á meðvitaðan hátt.
Charles Darwin var einn fyrsti vísindamaðurinn til að koma fram með þessa kenningu. Hann skrifaði meðal annars: „Hin frjálsa ytri tjáning á tilfinningum kemur til með að efla hana." Á eftir honum hafa komið menn eins og bandaríski rithöfundurinn og pólitíski aðgerðarsinninn Norman Cousins, sem læknaði sig af verkjum og hjartavandamálum með stórum skömmtum af C-vítamíni, hlátri og jákvæðum og kærleiksríkum hugsunum og skrifaði um bataferli sitt nokkrar metsölubækur.
Bandaríski læknirinn Patch Adams gerði byltingu í tengslum við lækningar þegar hann fór að heimsækja sjúklinga sína með trúðanef eða fá þá á annan hátt til að hlægja sig frá veikindum sínum. Í framhaldi af starfi hans hafa verið stofnuð samtök víða um heim undir nafninu Clown Doctors, en innan þeirra starfar fólk sem heimsækir sjúklinga á sjúkrahús í þeim einum tilgangi að fá þá til að hlægja.
Nokkuð nýtt af nálinni er að fólk stundi hláturjóga, en upphafsmaður þess er indverski læknirinn Madan Kataria frá Mumbai, sem stofnaði fyrsta hláturklúbbinn í mars 1995. Nú eru, samkvæmt vefsíðu samtakanna, um 60 hláturklúbbar um allan heim, meðal annars einn á Íslandi undir stjórn Ástu Valdimarsdóttur.
Hláturinn lengir því lífið eða gera það að minnsta kosti skemmtilegra meðan við lifum því. Setjum því upp okkar bestu bros og brosum hvort til annars. Hlægjum dátt þegar við upplifum eitthvað skemmtilegt, hvort sem við erum ein eða með einhverjum öðrum - og leggjum okkur fram um að gera það sem oftast.
Heimildir: www.laughteryoga.com
Ásta Valdimarsdóttir - asta.hlaturjoga@gmail.com
http://en.wikipedia.org/wiki/Norman_Cousins
http://clowndoctors.org.au/home.html
http://www.imdb.com/title/tt0129290/ - kvikmyndin Patch Adams (1998)





Guðrún er ein af frumkvöðlum hvers kyns sjálfsræktarvinnu hér á landi, bæði í gegnum bækur sínar, fyrirlestra og námskeið, auk þess sem hún hefur undanfarin 20 ár unnið að sjálfbærni í ferðaþjónustu og sveitarfélögum. Hún rak umhverfisvottuð ferðaþjónustufyrirtæki á Hellnum í 12 ár og hefur haldið ótal fyrirlestra og skrifað greinar til að hvetja til sjálfbærni hér á landi. Guðrún hefur skrifað tólf bækur, sú nýjasta CANDIDA SVEPPASÝKING sem hún skrifaði með Hallgrími Magnússyni lækni, kom út hjá Sölku Forlagi í janúar 2011.