Hvítar eða litaðar tennur?
Ef þú drekkur kóladrykki, kaffi, te eða rauðvín, geturðu átt
von á því að tennur þínar dragi í sig lit frá þessum efnum og gulni eða
dökkni. Reyndar á það sama við um allan þann mat sem skilur eftir sig bletti á
fötum eða gólfteppum, þar á meðal ávaxtasafa, bláber, bláberjasultu, sojasósu
og karrý, sem líka geta litað á þér tennurnar. Og ekki má gleyma því að þær
litast líka af reykingum og munntóbaki.
Vera má að besta leiðin til að losna við erfiða bletti af tönnunum sé að láta hreinsa þær hjá tannlækni, en þú getur komið í veg fyrir gulnun tannanna á eftirfarandi hátt:
- Skolaðu munninn með hreinu vatni eftir að þú hefur drukkið eða borðað fæðu sem gefur frá sér sterkan lit.
- Burstaðu tennurnar tvisvar á dag með tannkremi sem hvíttar tennurnar. Í heilsubúðum fæst tannkrem úr náttúrulegum efnum, meðal annars matarsóda, sem hvíttar tennurnar vel.
- Notaðu tannþráð daglega eða litlu tannburstana sem nú fást og notaðir eru til að hreinsa á milli tannanna.
- Drekktu vökva sem geta litað tennurnar í gegnum rör, til að draga úr snertingu hans við tennurnar.
Sjálf hallast ég að því að nota bara tannkrem með góðum náttúrulegum efnum til að halda mínum tönnum nokkuð hvítum. Glerungurinn hefur þynnst með árunum, svo ég læt hvíttun tannanna með öðrum efnum alveg eiga sig.
Þeir sem vilja hins vegar kaupa sér hvíttunarefni og hvítta tennurnar sjálfir, ætti að hafa samband við tannlækninn sinn og leita ráð hvernig best er að gera slíkt, áður en ráðist er í verkið. Rétt er að hafa í huga að allar þær aðferðir sem notaðar eru til að hvítta tennur, geta með tímanum haft skaðlega áhrif á glerunginn og tennurnar og jafnvel gert það að verkum að þær dragi meira af lit í sig. Og ekki gleyma því að eymsli í tönnum eru algeng hliðaráhrif af hvíttun þeirra og að þau geta varað í nokkra daga eftir hvíttunarmeðferðina.




Guðrún er ein af frumkvöðlum hvers kyns sjálfsræktarvinnu hér á landi, bæði í gegnum bækur sínar, fyrirlestra og námskeið, auk þess sem hún hefur undanfarin 20 ár unnið að sjálfbærri þróun og umhverfismálum hjá ferðaþjónustu og sveitarfélögum. Nýjast bók Guðrúnar heitir UNG Á ÖLLUM ALRDI og kom hún út í lok október 2012.
