c

Pistlar:

23. nóvember 2014 kl. 11:52

Guðrún Bergmann (gudrunbergmann.blog.is)

Yfirvinnutími ofurkvenna

Fyrir nokkru hélt ég fyrirlestur fyrir stjórnendur í mjög fjölmennri kvennastétt. Fyrirlesturinn fjallaði um eitt af hugðarefnum mínum: Ekki láta vinnuna brenna þig upp. Þar sem ég hef sjálf nokkrum sinnum unnið yfir mig, síðast fyrir tæpum fimm árum með það alvarlegum afleiðingum að líf mitt lá við, vil ég endilega vara fólk, þá einkum konur við að gera ekki slíkt hið sama og læra að þekkja einkennin, áður en skaðinn er skeður. Innst inni skynjaði ég alveg hvað var að gerast hjá sjálfri mér, en náði ekki að snúa ferlinu við, fyrr en ég hætti að djöflast eins og hamstur í hjóli. Með hörki og þrautseigju, endalausri leit að náttúrulegum lausnum, með því að fara jafnsnemma að sofa á kvöldin og lítil börn og með því að vera tilbúin til að vinna að bata, alveg sama hvað, tókst það.

Mér hefur tekist að öðlast góða heilsu og líkamlegan styrk á ný. Ég geri mér jafnframt grein fyrir að heilsan er eitthvað sem þarf að sinna daglega. Í mínu tilviki snýr það jafnt að fæðunni sem ég borða, bætiefnunum sem ég tek inn og líkamsræktinni minni. Rannsóknir hafa sýnt að vöðvar taka að rýrna eftir 76 tíma æfingarleysi. Við þurfum því að vera vakandi fyrir þessum þáttum svo lengi sem við lifum, ef við viljum vera virkir þátttakendur í lífinu.

Framundan er einn mesti yfirvinnutími ofurkvenna, sem auk þess að sinna eigin starfi, uppeldi barna, rekstri heimilis og öllu sem að því snýr; ætla líka að kaupa flottustu jólagjafirnar, pakka þeim óaðfinnanlega inn, skreyta heimilið svo það myndi sóma sér vel sem fyrirmynd annarra, baka kökur, búa til konfekt, föndra og finna ómótstæðilegan kjól, hafa tíma til að lakka neglurnar, laga hárið og vera með fullkominn andlitsfarða á aðfangadagskvöld.

Ég held ég hafi snemma verið í þessum ofurkvennahópi og því var útbruninn fyrir fimm árum bara afleiðing af einhverju sem hófst fyrir langalöngu síðan. Talandi af reynslu veit ég að það er einmitt í svona bilunarferli eins og í jólaundirbúningi ofurkonunnar, sem konur geta brennt sig upp, ekki síst vegna innri spennu. Ég lærði seint af reynslunni, en kannski verða þessi orð mín til þess að einhver tekur ákvörðun um að slá strax af kröfunum, leggja minna upp úr því hvernig gjöfunum er pakkað inn, baka færri sortir, nota bara kjólinn frá í fyrra, en ná sér í staðinn í lengri nætursvefn og slaka meira á með þeim sem skipta mestu máli í lífinu.

 

Guðrún Bergmann

Guðrún Bergmann

Guðrún er einn af frumkvöðlum ýmis konar sjálfsræktarnámskeiða, sem hún hefur haldið í rúm 26 ár. Undanfarin tvö ár hefur hún beint sjónum sínum að heilsunni með námskeiðunum HREINT MATARÆÐI. Annars hafa námskeið hennar spannað vítt svið, en þó alltaf með fókus á hvernig bæta má andlega og líkamlega líðan, ná meiri árangri í starfi og njóta aukinna lífsgæða. Nýjasta bók Guðrúnar er matreiðslubókin HREINT Í MATINN, en það er sextánda bók hennar. Að auki hefur hún þýtt fjölda bóka.

Meira