c

Pistlar:

25. júlí 2014 kl. 22:30

Sif Jóhannsdóttir (gullrikid.blog.is)

Björk og Tori Amos saman í eina sæng

Þessi vika hefur verið stórkostleg. Enn einn æskudraumurinn ræst.

lady-gaga-meat-dress-yom-kippur-ecard-someecards.jpg

Ég fór á tvenna tónleika. Mér áskotnuðust miðar á kostakjörum á Lady Gaga á mánudagskvöldið sem var alveg dúndrandi leið til að byrja vikuna. Ég er enginn sérstakur aðdáandi en það er ekki hægt að neita því að sýningin sem hún setur upp er ansi mögnuð. Tilfinningin var svolítið eins og að vera á Cirque de Soleil. Hún blaðrar líka heil ósköp við áhorfendur og er lagin við að rífa upp stemmninguna. Hún blótar út í eitt, setti upp furðulega svipi, dansaði sig sveitta, mæmaði og söng til skiptis en greinilegt að hún á sína aðdáendur með húð og hári.

En það voru tónleikarnir sem ég fór á í Greek Theater sem skildu mig eftir orðlausa og stundum í tárum. Greek Theater er stórskostleg svið úti undir berum himni hér í borg. Og söngkonan var Tori Amos.   Tori kynntist ég fyrst um 14 ára þegar ein vinkonan dró upp diskinn Little Earthquakes (sem var reyndar tekinn upp hér í LA og hún sagði á tónleikunum að flest lögin hefðu verið samin þarna rétt hjá tónleikasvæðinu). Hormónafylltir unglingar fundu sig í tónlistinni og við spiluðum diskinn látlaust heilan vetur. Ég lét mig dreyma um að verða hún þrátt fyrir að píanóhæfileikarnir hafi ekki verið miklir og söng Winter af miklum móð allan þann vetur og hugsaði um draumaprins þeirrar stundar meðan ég söng orðin "when are you going to love you as much as I do" (bara svo þið náið stemmningunni). 6 árum seinna bjó ég í Suður Frakklandi með myndarlegum manni. Hann spilaði Winter fyrir mig á gítar úti á svölum í kvöldsólinni meðan ég söng undir og ég hélt að þetta væri toppurinn á tilverunni. Ókei. Þetta hljómar betur en þetta var er ég viss um. Það var rósarvín í spilinu og ég hlýt að hafa innbyrt meira en dagsskammtinn þetta kvöld því næst þegar við reyndum þetta þá hljómaði þetta ekki himneskt heldur miklu frekar sem falskt gaul og hann kominn út úr skápnum. En ég gleymi þessu samt aldrei!

tori.jpg

En ást mín til Tori Amos hefur aldrei dáið og að heyra hana syngja öll þessi lög sem eru tengd ljúfsárum minningum unglingsáranna og óendurgoldinni ást var magnað. Hún söng öll uppáhalds lögin mín og toppaði þetta svo með að taka cover af Hyperballad eftir Björk. Hún hefur engu gleymt þó hún sé þjökuð af breytingarskeiðinu (hennar orð, ekki mín!)

Næst á óskalistanum er að sjá U2 og syngja með þeim undir laginu One og þá mögulega þarf ég ekki að sjá fleiri bönd um ævina!

P.s. Þeir sem vilja sjá Tori syngja lagið hennar Bjarkar geta gert það hér.

Sif Jóhannsdóttir

Sif Jóhannsdóttir

Sif Jóhannsdóttir er 34 ára húsfrú í Los Angeles þótt hún verði alltaf Vesturbæingur í hjarta sínu. Í fyrra lífi starfaði hún hjá Forlaginu sem verkefnastjóri útgáfu enda eru bækur hennar helsta áhugamál. Nú sinnir hún dætrunum tveimur og heimilinu í fullu starfi í sól og sumaryl. Nýja starfið er ansi krefjandi sem veldur því að hún lætur sig stöðugt dreyma um starfsframa, nám eða hvað sem er utan heimilis. Hún byrjaði að blogga í aðdraganda flutninganna til að halda utan um þær breytingar sem voru að eiga sér stað í lífi hennar.

Meira