9. apríl 2012

Good stöff brauðið!

Jesss kom að því að míns ákvað að baka - þó ekki vandræði - bara hrikalega hollt og gott brauð - bon appetit!

2,5 dl gróft spelt

2 dl haframjöl (líka hægt að nota rúgmjöl í staðinn - svakalega gott!)

2 dl hveitikím

1 msk lyftiduft

1 dl sesamfræ (líka hægt að skella rúgflögum í staðinn)

1 dl graskersfræ (einnig hægt að nota sólkjarnafræ og jafnvel 5-kornablönduna í staðinn)

1 dl muldar kasjúhnetur254367_217323344974714_216351865071862_622031_6329900_a

1 dl kókosmjöl

½ tsk salt

2,5 msk hunang

2 ½ dl vatn

1 msk sítrónusafi

     

- Þurrefnunum blandað saman.

- Hunangi, vatni og sítrónusafa blandað saman og skellt útí þurrefnin.

- Sett í smurt eldfast form.

- Bakað við 180°í ca 40-45 mín.

 Enjoy!

mynd
30. mars 2012

Sjóðandi grænn drykkur

Hér er glænýr og sjóðandi grænn drykkur sem var búinn til á örfáum mínútum úr því sem fyrir varð í eldhúsinu í dag!  Þó ég segi sjálf frá þá smakkaðist glundrið hreint fáránlega vel - prófa þú líka!Þessi skammtur var u.þ.b. 1 og hálft stórt glas - sem ég jú drakk allt í botn :)250 ml kókósvatnHnefi mangó (ég notaði frosið og þurfti því ekki að nota klaka í drykkinn)ca 2cm engiferbútur1/2 Meira
mynd
15. mars 2012

Nammnamm grænmetislasagna!

Elska það þegar ég mixa bara einhverju saman og úr verður "gúrme ossagott" dæmi :) Þannig varð það nákvæmlega í þetta sinn þar sem ég notaði það sem til var af grænmeti – en þessa dagana á ég alltaf til brokkoli – er eiginlega með æði fyrir því.  Fæ mér yfirleitt extra grænmeti með t.d. öllum Nings-heilsuréttunum því að þá fæ ég alveg slatta af uppáhaldsgrænmetinu Meira
mynd
1. mars 2012

Dásamlegt millimál :)

Er orðin húkt - komin með æði - og ekki í fyrsta sinn - en það góða við þetta er að það er búið að standa yfir í marga mánuði og einstaklega hollt. En eins og með margt annað - allt er gott í hófi :) Hér er s.s. komin hugmynd að millimáli - er það ekki eitthvað sem margir eru oft að vandræðast með - millimál og þá kannski fyrst og fremst að muna eftir því að borða - samt hvernig er í alvörunni Meira
mynd
13. febrúar 2012

Vorfílings byggsalat með grænmeti og kjúlla!

Elska´ða þegar ég fæ matarhugmyndir á leiðinni heim krúsandi um á Ja-Risanum eftir að hafa þjálfað allan daginn.  Einhvern veginn finnst mér vera vor í loft - þegar ég gekk út úr World Class Laugum núna seinnipartinn þá ómaði fuglasöngurinn út um allt - aha it´s getting closer.  Enda er þessi nýja uppskrift mjög svo vorleg - enjoy!Magnið á öllu neðantöldu er yfirleitt algjört Meira
mynd
5. febrúar 2012

Passaðu þrýstinginn maður!

Mikið ofsalega finnst mér það vera algengt að við mannfólkið setjum veraldlega hluti í meiri forgang heldur en okkar eigin líkamlega heilsu.  Bílarnir okkar skulu t.d. ástandsskoðaðir með reglulegu millibili því annars er það græni miðinn eða hreinlega að númerin eru klippt af.  En hvað með okkar eigin líkamlegt ástand? Í starfi mínu sem einkaþjálfari og verandi hjúkrunarfræðingur að Meira
mynd
4. febrúar 2012

Millimálshressing á laugardegi!

Fékk yfir mig brjálæðislega þörf til að fá mér eitthvað verulega ferskt og sætt!  Opnaði því ísskápinn og bjóst við að sjá eitthvað svakalega girnilegt - svona eins og það myndi bara hafa óvart dottið þarna inn án þess að ég vissi.  Glatað - "didn´t happen" - þurfti því að vera óvenju kreatíf og malla úr því sem ég fann í eldhúsinu í þetta skiptið og nammsi namms - Meira
21. janúar 2012

Áhrifarík og einföld six-pack æfing!

Ég viðurkenni það – er með fetish fyrir sippi - algjört tótal æði!  Má ekki heyra sippuhljóð þá sný ég mér við á parketinu í Laugum – er orðin að sippubandanördi!  Spyr fólk hvernig sippuband það sé með, á sjálf orðið nokkrar tegundir af sippuböndum. Horfi, glápi og stari á fólk taka sippuspor, fæ nánast gæsahúð þegar ég heyri í bandinu þegar sippufólkið tekur tvöfalt og Meira
mynd
14. janúar 2012

Hollustusalat með Mojito-ívafi!

Fékk þessa sjúku þörf í eitthvað reglulega ferskt svona í laugardagshádeginu.  Hentist fram í eldhúsið þar sem hlutirnir svo sannarlega gerast.  Eins og svo oft áður mokaði míns út úr ísskápnum það sem hendi var næst og úr varð þetta skemmtilega salat með lime og myntu sem ávallt minnir mig á 2007-kokteilinn Mojito.  Reyndar fékk ég upphaflegu grunnuppskriftina frá Meira
9. janúar 2012

Ég er ÍAK einkaþjálfari, má ég klippa á þér hárið og strípa þig upp?

„Fyrir hvað stendur þetta ÍAK?“  hef ég margsinnis verið spurð að.  Svo oft að ég fékk loks þessa hressilegu þörf til að skrifa um það : )  En ÍAK stendur s.s. fyrir eitt ítarlegasta einkaþjálfaranámið sem er í boði á Íslandi í dag og er kennt hjá Keili http://www.keilir.net/heilsa-og-uppeldi/page/iak-einkathjalfari  Einkaþjálfari – löggilt starfsheiti? Meira

Ásthildur Björnsdóttir

Ásthildur Björnsdóttir

Hjúkka, ÍAK einkaþjálfari & Tabatakennari World Class Laugum

Meira