c

Pistlar:

15. ágúst 2016 kl. 8:28

Júlía heilsumarkþjálfi (juliamagnusdottir.blog.is)

Ég skora á þig að sleppa sykri með mér!

13658741_1556390254669909_351771064_n@2x

Í dag, 15. ágúst hefst ný 14 daga sykurlaus áskorun hjá Lifðu til fulls. Það kostar ekki krónu að taka þátt!

Með þátttöku þinni getur þú aukið orkuna, lést og losnað við sykurpúkann í eitt skipti fyrir öll!

Ég skora því á þig að sleppa sykrinum með mér í 14 daga og gefa líkama þínum næringuna sem hann raunverulega kallar eftir!

Ég sendi þér uppskriftir, innkaupalista og allskonar ráð, það eina sem þú þarft að gera er að prófa eina nýja, ljúffenga og sykurlausa uppskrift á hverjum degi!

Sjálf var ég algjör sykurfíkill hér áður og þekki vel hversu erfitt er að reyna sleppa sykri. Ég vildi því gera þetta eins auðvelt og hægt væri, en líka ótrúlega djúsí!Það er ekkert spennandi að sleppa sykri til þess eins að sitja eftir með kálhaus.

DSC_6553

Uppskriftirnar eru þannig samsettar að þær slá á sykurþörfina og eru vegan að auki. Markmiðið er að þú gerir þitt besta, eina sem ég legg til er að þú verslir inn og prófir eina uppskrift á dag eða farir alla leið ef það er það sem þú vilt.

Þegar ég byrjaði að borða þennan mat var ekki aftur snúið því ég upplifði þvílíka vellíðan, einbeitingu og orku. Ég er handviss um að þessi dásamlegi matur úr áskoruninni smakkist betur en sykraða fæðan sem ég neytti hér áður og nú er komið að þér að prófa!

Hvað segirðu, 14 dagar af þessum 365 á árinu, þetta mun líða hraðar en þú getur ímyndað þér!

Ég vona að þú fáir alla vini þína með þér, og að saman skapið þið nýjar og heilsusamlegri venjur.

Smelltu hér til að skrá þig og taka þátt!

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

P.s. Ég verð á snapchat:lifutilfulls í fullu fjöri á meðan áskorun stendur! Bættu mér við og fylgstu með…

Júlía heilsumarkþjálfi

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsumarkþjálfi, vottaður markþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi. Stofnandi Lifðu Til Fulls , einnar fremstu heilsumarkþjálfunar hérlendis, www.lifdutilfulls.is sem hjálpar konum og hjónum að léttast, auka orku og fyllast ungleika.

Meira