c

Pistlar:

20. september 2015 kl. 21:53

Marta María Jónasdóttir (martamaria.blog.is)

Mömmulíkaminn leggur línurnar

jógaSmáhesturinn fór að velta því fyrir sér hvort hann þyrfti að fara að klæðast tvöföldum aðhaldssokkabuxum innanundir kjólnum, eða mögulega borða örlítið minna, eftir að hann fékk þá spurningu hvort hann gengi með folald. Þessi spurning kom frá miðaldra, hvítum, íslenskum ritstjóra sem starfar á glanstímariti.

Viðbrögð smáhestsins voru eitthvað á þessa leið: „Hva ... ertu að segja að ég hafi fitnað???“

Ritstjórinn neitaði því vandræðalega og sagði að þetta gæti alltaf gerst hjá smáhestum á barneignaraldri. Þessi spurning hefði svo sem ekki átt að koma á óvart því smáhesturinn hefur svo allt of oft fengið hana í gegnum tíðina. Smáhesturinn má nefnilega ekki hugsa um sætabrauð og súkkulaðisnúða án þess að vömbin belgist út af sjálfu sér (sem er sjúklega ósanngjarnt).

Svona smáhestar eiga náttúrlega bara að drekka vatn og bíta gras, taka lýsi og fara snemma að sofa. Það að sleppa einstaka sinnum morgunmatnum, borða uppbakaðar súpur í mötuneyti, drekka of marga Flat White á dag eða stelast í sjálfsalann í vinnunni er dýru verði keypt. Tala nú ekki um þegar smáhestar tábrotna og eru kyrrsettir í meira en mánuð. Þá er voðinn vís. En stundum er bara svo of gaman að vera til og þegar gleðin stendur sem hæst er auðvelt að gleyma boðorðunum 10.

Auðvitað ættu allir heimsins smáhestar og spariguggur þessa lands að vera löngu búin að frelsa vömbina. Hér er verið að frelsa alla heimsins líkamsparta en einhvern veginn virðist vömbin alltaf verða útundan. Spáið í hvað lífið væri svo miklu afslappaðra og frjálsara ef vömbin fengi bara að flæða óhindruð. Tala nú ekki um hvað það væri fínt ef það teldist bara eðlilegt að allir væru bara alltaf með bert á milli – líka miðaldra konur með mömmumaga.helle

Árið 2010 ákvað norska sjónvarpskonan Helle Vaagland að frelsa vömbina og lærin og allt það. Á venjulegum degi í vinnunni ákvað hún að taka leikkonuna Demi Moore á þetta, sem nýlega hafði háttað sig inni á eigin baðherbergi og tekið selfie. Vaagland æddi inn á baðherbegi á NRK, þar sem hún starfaði á þeim tíma, girti sokkabuxurnar niður um sig og tók selfie. Vaagland er bara venjuleg, norsk, rúmlega fertug kona með femínískar skoðanir. Athæfið vakti mjög mikla athygli og komst í fréttir stærstu fjölmiðla heims.

Með myndbirtingunni vildi Vaagland ýta við kjánalegum hugmyndum samtímans um útlitsdýrkun sem fóru í taugarnar á henni. Hún sagði að það væri ömurleg þróun að það væri bara pláss fyrir fullkomna líkama í fjölmiðlum.

Á dögunum var sagt frá því í fjölmiðlum að pabbalíkaminn væri að koma sterkur inn. Það er að segja að feitir, skeggjaðir menn væru meira inn en grannir, skegglausir smjörbobbar. Meira að segja Leonardo DiCaprio væri orðinn feitur og skeggjaður. Út frá jafnréttisgrundvelli geri ég ekki ráð fyrir öðru en kvenpeningurinn taki þetta alla leið. Hætti að pakka mömmumaganum inn í aðhaldsföt og njóti alls þess besta sem vömbin hefur upp á bjóða. Og síðast en ekki síst njóti þess að vera nákvæmlega eins og þær eru.