c

Pistlar:

3. desember 2015 kl. 11:49

Marta María Jónasdóttir (martamaria.blog.is)

Andlitið lýgur ekki

Akkúrat á þessum árstíma á smáhesturinn alltaf í djö... basli með sjálfan sig. Togstreitan á milli þess að borða bara grænmeti, prótein og vatn og allt það (djók) eða byrja örlítið að hita upp fyrir desember getur flækt hversdagsleikann um 63% eða svo. Eftir að hafa dregið andann í rúmlega 38 ár veit smáhesturinn að ef hann byrjar að dreypa örlítið á jólaöli eða hvað þetta heitir allt saman þá er hann búinn að opna fyrir ákveðna flóðgátt sem getur reynst erfitt að stoppa. Um leið og hann gefur smá eftir verða mörkin óskýrari og erfiðara verður að halda um stjórnartaumana.

Smáhesturinn er ekki alveg viss um hvort hin hefðbundna sparigugga og smjörbobbi átta sig á því að í 500 ml eru um það bil jafnmargar hitaeiningar og í léttri máltíð. Það að bæta kannski eins og tveimur 500 ml dósum við hefðbundinn matarskammt gerir að verkum að orkuskammtur dagsins eykst umtalsvert.

Að drekka drykki eins og jólaöl er eins og að drekka síróp. Auðvitað hljómar það ósköp notalega en ef markmiðið er að lifa nægjusömu lífi þá passar þetta ekki alveg inn í prógrammið.

Þótt það sé nú seigt í smáhestinum og hann iði af hraustleika er hann á sama tíma alveg ofurviðkvæmur (og auðvitað saklaus). Ef hann borðar of mikinn ís verður hann veikur í maganum, ef hann stelst til að stöffa sig með bakarísmat er honum refsað með öfgafullum hætti með líkamlegri vanlíðan og fjandinn verður laus ef hann drekkur vín. Ekki vegna þess að hann verði alltaf „dólgurinn“ heldur vegna þess að hin hégómlega ytri ásjóna lætur verulega á sjá eftir svona skemmtanahald.

Ef hann sleppir fram af sér beislinu í gleðskap er gefið mál að hann verður eins og Gremlins í framan í marga marga daga á eftir. Það er því eiginlega bara vegna hégómlegra útlitspælinga sem smáhesturinn drekkur sjaldan. Honum finnst vín nefnilega alveg jafngott og flestum sem það drekka og veit alveg að tilveran verður alltaf örlítið skárri rétt á meðan hann hellir í sig.

Smáhesturinn sperrtist því allur upp þegar Nigma Talib, náttúrulæknir og húðsérfræðingur, sagði frá því að það væri hægt að lesa andlitið eins og opna bók. Það væri hægt að sjá nákvæmlega framan í fólki hvort það drykki of mikið, borðaði of mikið glúten, sykur og mjólkurvörur. Hún gaf nýlega út bókina Reverse The Signs of Ageing: The Revolutionary Inside-Out Plan to Glowing, Youthful Skin.

Talib segir að hægt sé að sjá langar leiðir hvort fólk drekkur of mikið vín eða ekki. Þeir sem drekka of mikið séu með roða milli augnanna, lafandi augnlok, stórar svitaholur, þurra húð með fínum línum sem teygja sig yfir kinnarnar. Einnig má sjá roða í kinnum og á nefi, sem og djúpar hrukkur í kringum nasir.

Hún segir að fólk með sykur-andlit sé með poka undir augum, eyðilegan blæ yfir andlitnu, sársaukafullar graftarbólur og svo verði húðin þunn og gráleit. Hún segir að sykur eyðileggi teygjanleika húðarinnar og að fólk í sykurmarineringu fái frekar bólur á ennið.

Og þetta er ekki búið.

Hún segir að fólk sem borðar of mikið af mjólkurvörum sé með bauga undir augunum og fái litlar hvítar bólur á hökuna.

Og svo eru það þeir sem borða of mikið glúten. Að sögn Talib fá þeir rauðar og þrútnar kinnar og dökka bletti á og í kringnum kinnarnar.

Þeir sem ætla að vera alveg eins og nýslípaðir demantar um jólin ættu að hugsa til Talib áður en þeir ofstöffa sig af öllum þeim bráðnauðsynlega óþarfa sem desember hefur upp á að bjóða. Þangað til næst, mússí múss!