16. maí 2012

Góður skilnaður

IMG_1114

Síðustu mánuðir hafa verið erfiðir hjá mér líkamlega. Ég er búin að vera að undirbúa mig fyrir Íslandsmót, Evrópumeistaramót, mörg stórmót og Ólympíuleikana. Erfiðar æfingar, veikindi, ennþá fleiri erfiðar æfingar og ennþá verri veikindi hafa verið allsráðandi hjá mér. Ég fékk lungnabólgu í vetur og það setti strik í reikninginn. Í hvert skipti sem ég hef keppt á síðustu mánuðum hef ég verið að klóra mig í gegnum einhverskonar veikindi eða sýkklalyfjakúra og þar af leiðandi erfiðað meira en ég hef gert áður. 

Þegar hlutirnir ganga ekki upp einsog maður ætlar að þeir gangi upp þá dettur maður oft niður í vonleysi. Ég gerði það allavega á sínum tíma og fór í gegnum allskonar stress og vanlíðan útaf þessu öllu. Það gerir engum gott að líða illa og rembast í lífinu. Ég gerði mitt allra besta á öllum æfingum og hef sem betur fer náð mér á strik og er önnum kafin við að undirbúa mig fyrir Evrópumeistaramótið í Ungverjalandi sem hefst í næstu viku. Loksins líður mér vel og orkan er komin aftur. 

Það sem hjálpaði mér mikið var setning sem ég heyrði í vetur. <Mundu að skilja að tilfinningar þínar og gildismat þitt>  Ég hugsaði mikið um þetta. Já, ég ætti nú að geta það, hugsaði ég. Vonleysið sem kom upp í huga mér nokkrum sinnum þegar ég sat uppi í sófa, vafin í sæng og teppi að hósta úr mér líffærin, dró mig svakalega niður andlega. Allt í einu fannst mér ég bara 'nó good' einsog maður segir, í öllu. 

Ef þú ert ekki að standa þig á einu sviði, af hverju ætti það að hafa áhrif á önnur svið í lífinu. Ég elska til dæmis að baka. Þegar ég var þreytt og orkulítil á æfingum þá kom oft upp í huga mér að ég skella mér bara í eldhúsið og baka eitthvað. En um leið og ég ætlaði mér að setja á mig svuntuna færðist yfir mig vonleysi á því sviði líka. Ég hugsaði með mér, hver ætli vilji borða þetta brauð, ég er ekkert góð í þessu. 

Um leið og mér var sagt að skilja að vonleysis tilfinningar mínar og gildismat mitt þá fór að ganga betur. Ég er nú góð í ýmsu og þótt það hafi komið ferlega djúpur dalur í árangri mínum í vetur í lauginni þá ákvað ég að vera samt mjög ánægð með mig. Ég er búin að gera mitt allra besta miðað við aðstæður og það er nokkuð gott.

Ekki leyfa þér að sökkva í dalinn þótt það gangi ekki allt upp einsog þú planaðir. Ef eitthvað eitt í lífinu er í mínus, ekki draga restina af þér og þínum kostum niður með því. Styrktu þig frekar á þeim sviðum sem eru í plús og ég lofa að líðan þín mun breytast til batnaðar. Það virkaði allavega fyrir mig. 

mynd
28. mars 2012

Úti í kuldanum

 Það er ótrúlega skemmtilegt að henda sér út í sveit. Það er líka svakalega mikið fjör að fara með fagmönnum í skemmtilega myndatöku. Ég er mikil kuldaskræfa og verð að viðurkenna að þegar ég hugsa til þess að standa úti í snjó á tánum í fínum kjól, verð ég frekar hrædd. Maður lætur sig samt hafa ýmislegt til að ná fallegum myndum.  Við Lalli Sig ákváðum fyrir löngu síðan að kíkja Meira
mynd
8. mars 2012

Óvart? Alls ekki!

Það er ekkert óvart við það að vera í formi og líta vel út. Þetta er hellings vinna. Æfa vel, borða hollt, hugleiða og hugsa vel um alla þættina þegar kemur að líkamanum og huganum. Fyrir mér er þetta ekki lengur vinna samt. Þegar maður elskar að gera það sem maður gerir þá getur maður ekki kallað þetta vinnu. Þetta er bara lífið.Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að líta betur út og líða Meira
mynd
21. febrúar 2012

Leiðin á leikana

Mangó marineraður kjúklingur með kókos og makademíuhnetuhjúp, ávaxtachutney og shiraz salatÞetta er rétturinn minn á Saffran. Hann er gómsætur, hollur og gefur manni orku til að takast á við daginn. Daginn sem ég byrjaði undirbúning minn fyrir Ólympíuleikana 2012 var daginn eftir að keppti á Ólympíuleikunum 2008. Ég stóð og horfði á sundhöllina í Peking og hugsaði með mér, fjögur ár í leikana Meira
mynd
27. janúar 2012

Club Fit í Hreyfingu

Ég er í formi. Hef verið í formi frá því ég man eftir mér. Ég hef tekið vel á því í sundlauginni, ræktinni og alls kyns íþróttum. Ég er samt ný byrjuð að taka sjúklega vel á því í Club Fit tímum í Hreyfingu. Jón Oddur sundþjálfarinn minn er þjálfari í Club Fit og sagði mér að það væri ekkert annað en að bæta við 2-3 Club Fit tímum á viku inn í æfingaprógramið mitt. Jújú, ég gerði einsog þjálfarinn Meira
mynd
10. janúar 2012

Glamúr á Borginni

Þegar maður æfir 2-3 sinnum á dag alla daga og íþróttafötin eru besti vinurinn þá er ekkert betra en að skella sér í glamúr-gallann og fá smá kinnalit á kinnarnar.  Ég var í sambandi við frábæran ljósmyndara, Lárus Sigurðsson og við vorum lengi búin að vera á leiðinni að gera eitthvað skemmtilegt glamúr verkefni. Við ákváðum að skella í skemmtilega myndatöku í tilefni af nýju ári. Ég tengi Meira
mynd
8. desember 2011

Aukakílóum ekki boðið heim um jólin

Jólin eru á næsta leiti. Mér finnst reyndar jólin vera komin og búin að vera til staðar síðan um miðjan nóvember. Ég er ekki mikið jólabarn, nema bara svona rétt yfir mestu hátíðarnar. Ég get tekið einn og einn dag í desember í jólastúss, en fyrir utan það held ég mínu striki og hugsa lítið um þennan eina dag þar sem fólk gefur hvort öðru allskonar góðgæti og leyfir sér óhóflega Meira
mynd
2. nóvember 2011

Ég og Zidane

Ég er sundkona. Zidane er fótboltakappi. Við eigum kannski ekki mikið sameiginlegt þegar kemur að íþróttinni okkar, né getu og frægðar, en eitt eigum við sameiginlegt. Við erum það ákveðin í að standa okkur vel að við hugsum vel um líkamann okkar. Ég og Zidane notum bæði LPG.   Hvað er LPG? Þetta er tæki sem er svokallað sogæðanudd-tæki.  Tækið er frá LPG í Frakklandi sem er Meira
mynd
18. ágúst 2011

Fyrir Tierra Bomba

Ég ætla að fara út annaðkvöld. Skella mér á tónleika. Styrktartónleika á Sódómu fyrir Tierra Bomba sem er eyja í Kolumbíu. Á eyjunni búa um 3000 manns. Menntun er lítil og mikil fátækt ríkir á eyjunni. Tækifæri ungs fólks eru takmörkuð og er mjög algengt að unga fólkið fari að stunda vændi þegar það kemst á táningsaldurinn. Mikil þörf er á hjálp þar og rennur allur ágóði tónleikana til verkefnis Meira
mynd
15. ágúst 2011

Eitthvað yfirnáttúrulegt

Nú þegar sumarið er bráðum á enda hérna á Íslandi, fer sumarið virkilega að byrja hjá mér. Ég er að flytja til Suður Afríku eftir tvær vikur og vorið er rétt að byrja þar. Það er góð tilfinning að vita til þess að þurfa ekki að pakka öllum sumarfötunum niður í kassa og merkja hann "sjáumst eftir 8 mánuði". Ég keppti á Heimsmeistaramótinu í Kína í júlí. Ég var mjög einbeitt, með Meira

Ragga Ragnars

Ragga Ragnars Ragnheiður er ein fremsta sundkona okkar Íslendinga. Hún hefur tvisvar keppt á Ólympíuleikum fyrir Íslands hönd og stefnir á næstu leika sem verða í London árið 2012. Ragga, einsog flestir kalla hana, er einnig fatahönnuður, fyrirsæta og förðunarfræðingur. Ragga hannar föt með ömmu sinni undir merkinu M-Design. Ragga er þekkt fyrir að vera góð fyrirmynd í íþrótt sinni og hugsar vel um heilsuna. Meira